Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1965, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1965, Blaðsíða 1
nomum, svo aö þetta er Ainetanleg heimild um elztu sögu íslendin-ga. Loksins tókum við nú að nálgast ís- land. Gegnum þokuna mátti greina hvern stóra jökulinn eftir annan, háa og volduga og yfir jöklunum sáum við litskrúðið frá sólarlaginu. Það var æv- intýri og féll vel að ía andsnafinu. Við fórum framhjá Vestmannaeyjum, Hlíðarenda, bæ Gunnars, og Bergþórs- hvoli, bæ Njáls. Eftir sex daga útivist var varpað akkerum á ytri höfninni i Reykjavík- ICora lá í Rej’kjavík í fjóra daga, svo að ég hafði góðan tíma til að skoða bæinn. Reykjavík var þá með 16.000 íbúa. Mér fannst það viðkunnanlegt að sjá, að í símaskránni voru allir skráðir eftir skirnarnöfnum, en ekki ættarnöfn- um eins og hjá oss tíðkast. Þar var félag að nafni Gigant, sem átti Dettifoss. Ég heimsótti stjórnar- formanninn, Eggert Claessen, hæstta- réttarmálaflutningsmann, eins og það er kallað á íslenzku. Sérlega duglegur og við'kunnar/egur maður. Aðrir stjórnarmenn áttu heima úti á landi, utan Reykjavíkur. Ég komst í fyrsta sinn á hestbak, þegar ég fór að heimsækja þá. Ég gerði mitt bezta til að vera sem allra riddaralegastur oig sýna, að ég kynni að stjórna hesti, en líklega höfum við nú að mestu farið eins og hestinum þóknaðist. F östudaginn 2. júlí fór Kora frá Reykjavík. Ég fékk nýjan káetufélaga, Edvard Mortensen, siðar áberandi mann í sjálfstæðisbaráttu Færeyinga. Einnig komu .argir Islendingar um borð. Jafnvel þótt þeir ætluðu ekki nema stutta leið, höfðu þeir með sér rúmföt, kodda, undirsæng, lök og yfirsæng og iágu svo á þilfarinu á hléborða, hver við annars hlið. Ströndin var stórkost- leg ásýndum, há blá fjöll með hvítum snjófönnum í, sem hurfu hálfvegis í ský in. Við sigldum norðureftir, yfir Faxa- flóa og Breiðafjörð. En uppi yfir öllu gnæfði Snæfellsjökull með blikandi hvítan sólgylltan tindinn. Við komum til ísafjarðar, sem hafði um 2000 íbúa. Thomas Amlie kaupmað- ur og faðir minn ráku þar hvalveið- ar, endur fyrir löngu, en nú var hval- stöðin orðin að síldarstöð. Við fórum fyrir Hornbjarg eða Kap Nord, sem er rétt norður undir heim- skautsbaugnum. Hafís rekur upp að landinu, að meðaltali fjórða eða fimmta hvert ár. Stöku smnum kemur isbjörn til Norðurlandsins með rekís. Árið áð- Framihald á bls. 4. EDVARD SVANÖE: VID LANDMÆLINGAR Á HESTBAKI 1920 Norðmaður segir frá sumardvöl á Islandi Fiá Bergen til Akureyrar með KORA Arið 1920 fór enskt félag þess á leit við mig, að ég færi til íslands og gæfi skýrslu um Detti- foss. Af íslandskorti sá ég, að Deiiti- foss var í Jökulsá. Jökulsá á upptök sín í Vatnajökli, stærsta jökli ís- lands og allrar Norðurálfu, og síðan rennur áin í norðurátt, um 200 kíló- metra veg, út í Norður-íshafið. í þá daga varð ekki flogið til ís- lands. Bergensfélagið hafði lítið kaupfar í förum þangað. Það hét KORA og skipstjórinn Abel. \ ið lögðum _af stað frá Bergen á Jónsmessukvöld. Ég lenti í káetu með Övrevik, skólakennara frá Sogni. Hann hafði fengið 1000 króna styrk til að athuga staðina, sem nefndir eru í forn- sögum. Hann gekk með 1000-krón seð- ilinn í buxnavasanum og sýndi hann hverjum sem hann vildi. Þarna var einnig ræðismaður Norðmanna á ís- Dandi, Bay. Generalkonsúll hét þá á íslenzku „medismaðr" (sic!). Við komum við á Hjaltlandi og á margar hvalveiðistöðvar í Færeyjum. Eitt kvöld vorum við boðnir til Olsens forstjóra í hvalveiðistöðinni í Torsvig. Olsen hafði orðið fyrir tundurskeyti 1917, um veturinn. 34 menn voru í björgunarbáti - 52 klukkustundir, áður en þeir náðu Noregi, og fimm menn voru dánir áður en að landi væri kom- ið. Hvalfangararnir áttu erfiða dag. Mér fannst ég vera kominn innan um gömí.u víkingana. Ég spurði, hvernig hvala- skoti væri hlcypt af. Þeir hleyptu af einu skoti við borðið, svb að flöskur og glös dönsuðu, en án þess að neinn meiddist. Þegar þeir heyrðu, að ég ætl- aði að fara að ferðast ríðandi um ís- land, skeimmtu þeir sér við að segja mér ýmsar reyfarasögur af því, hve hestarn- ir gætu verið óþægir. Þetta varð til þess að koma mér í það rétta skap. Ég hafði verið svo vitlaus að fara að segja þeim, að ég væri heldur bágbor- inn reiðmaður. E ftir stutt viðdvöl í Thórshavn, fórum við framhjá vestasta odda Fær- eyja, Mýnesi. Skipstjórinn hélt þá ,.skipstjóraveizlu“. Honum fannst það ótæikt, að ég færi brennivínslaus til bannlandsins íslands og lét mig því hafa nokkrar flöskur. En þá var ein- mitt líka bann hjá okkur í Noregi. Um kvöldið sáum við tvo stóra hvali, sem voru að busla í sjónum, svo að háir vatnsstrókar gusu í loft upp. Seinna skemmtum við okkur við að skjóta fugla. Skipstjórinn stýrði skipinu sitt á hvað til þess að útvega okkur sem bezt skotfæri. Ekkert er jafn skemmtilegt og að vera farþegi á kaupfari. Það er við- Jbuvard Svanóe. Noreg — en trúlega hefur einnig ævin týraþrá nokkru um valdið. íslendingar eru þannig komnir af mörgum duglegum og voldugum ætt- um, og það má telja einsdæmi, að ís- lendingar hafa í sögum sínum talið upp 400 fjölskyldur með 3500 manna- | — 8. tbl. 28. febrúar 1965. 40 árg. — | kunnanlegt ferðalag. Það hetur eKKi verið eins þægilegt hjá þeim, sem voru að flytjast til íslands kringum árið 1000. Einn hinna fyrstu var Ingólfur Arn- arson, fyrsti landnámsmaður Islands, sem kom frá Noregi. Seinna kom stöð- ugur straumur landflótta manna frá Noregi, íitandi og Skotlandi. Sumir voru smákóngar frá Noregi, sem komu með heila skipaflota, en svo voru líka einstakar bændafjölskydur, sem komu á einni fleytu. Þeir komu í opnum skipum með smábörn, húsdýr og lausa- fé. Kompásar þekktust ekki í þá daga, svo að sennilega hafa ekki allir náð til íslands. Ástæðan til þessa útflutn- ings hefur að líkindum verið andstaða gegn Haraldi konungi hárfagra, sem hafði gengizt fyrir því að sameina

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.