Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1965, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 25.04.1965, Blaðsíða 13
Scjur af ÁSA-ÞÓR. Úr Eddu Snorra Sfurlusonar — Teiknínqar eftir Harald Gubbergsson ÞA n/ELTI ÞÓRft, AT ÞEiS ISO*% SKAL HKVHC.NIR lOKAiK, 'ABft bJANN HrMI \JT. áfram að virða hann fyrir sér eins og eitthvert furðuverk. Ekki er fyrir það að synja að Allir skaut mörgum skógarbúum skelk í bringu. Þeim fannst að þeir gsetu aldrei sigrað þennan jötun. En Enginn reyndi að telja í þá nýjan kjark. Hann benti þeim á hivað þeir væru margir. Þeir væru óteljandi, og ekki yrði mikill vandi að sigra Alla ef þeir legðust á eitt. Nú dygði ekki bleyðuskapur. Allir væri bölvaldur landsins og þeir yrðu að losa sig við hann hið skjótasta. Eng- inn brýndi fyrir þeim hve friðsælt og áhyggjulaust líf tæki við ef seinasti afkomandi Allra ættarinnar yrði lagður að velli. Þessi ætt sem farið hefði með báli og brandi um landið, væri nú senn aldauða, og nú hefði seinasti ættingi hennar í hyggju að ganga sömu braut og hinir blóðþyrstu fyrirrennarar hans. Þarna stæði hann í þeim klæðum sem hefðu vakið ótta hinna friðsömu íbúa landsins áður fyrr, og í augum hans logaði sami eldur og hefði farið eyðandi um landið. En hvernig sem Enginn reyndi að fá skcgarbúa til að ganga fram til orrustu varð þeim ekki hnikað. Aðeins fuglinn eem hann hafði fyrst hitt úti í skógin- um hélt áfram að berja í hurðina á útsýnistuminum með hvössum goggin- um. Skógarbúar fóru nefnilega að hugsa, og þeir komust að þeirri niðurstöðu að Allir hefði ekkert gert á hluta þeirra. Þeir höfðu oft séð hann á göngu starandi upp í himininn, dreymandi á svip, og þeir gátu ekki ímyndað sér að hann gerði nokkrum mein. Innst inni dáðust þeir að hve hann var stór og glæsilegur og hvað húsið hans var mikil völundarsmáð. Það var nú mim- ur á því og holunum þeirra. Þeir komust að raun um að Enginn hafði gabbað þá, og líklegt væri það satt að hann væri bölvaðux hrekkjalótm- ur og þjófóttur í þokkabót, eins og Allir hafði sagt. f þeirra augum varð nú Allir mik- iimennið sem hafði orðið fyrir ofsókn- um að óverðugu, og þeim fannst nauð- synlegt að bæta fyrir þátttöku sína í þeirri óhæfu með þvi að játa honurn .virðingu sina. Þess vegna gekk virðulegur fugl fram fyrir Alla, hneigði sig og mælti: Herra, Allir. Okkur þykir það mjög leitt að við skulum hafa verið tældir í þessa för í því skyni að valda yður ó- þægindum, og jafn vel steypa yðar há- tign af stóli. Við sjáum nú hversu fá- ránleg sú hugmynd er, og um leið verð- ur okkur ljóst að þér eruð réttsýnn og mikilhæfur, eins og verið hafa forfeð- ur yðar í gegnum aldirnar. Við lýsum sök á hendur Engum, sem er rógberi og skaðræðiskvikindi, og sjáum ekkert athugavert við þá ráðstöfun yðar að vísa honum á burt. En til að milda dóm- inn lítillega vegna þess að við erum sanngjamir, og það vitum við að þér eruð lika yðar tign, þá stingum við upp á því að Enginn verði ekki dæmdur til að hverfa að fullu úr landi heldur skal hann dæmast til útlegðar um stund arsakir að minnsta kosti, eða þangað til hann hefur bætt ráð sitt og er fær um að búa í námunda við siðað fólk. Hann skal afla sér matar sjálfur og híbýli verður hann að smíða sér, og annast að öllu leyti um sig sjálfur eins og flestir verða að gera nema böm og ör- vasa gamalmenni. Við skógarbúar álít- um það mikinn heiður að fá að búa í námunda við jafn tignarlega persónu og þéx eruð. Við óttumst aðeins þann dag þegar þér verðið það stórir að við grein- um ekki hið Ijómandi og fagurlagaða andlit yðar. Mættu þá allir öfunda ský- in og vinda himinsins að vera í félags- skap jafns göfugs höfuðs. Frænda minn þann sem hefur brýnt gogg sinn á hurð yðar biðjum við yður að taka í sátt, því hann veit ekki hvað hann gerir sak- ir ofdirfsku þeirrar sem grípur hann á stundum, og sakir þess að hann er ungur að árum. Biðjum við yður svo vel að lifa og allar góðar vættir blessi hús yðar og verndi. Nú snúum við til okkar heima, því þar höfiun við annað og þarfara fyrir stafni en að standa í styrjöldum, er það og ekki venja skógarbúa að berjast öðm vísi en inn- byrðis. Enn að nýju hörmum við það sem hefur gerst, eða var að því komið að gerast, og strengjum þess heit að því líkt og annað eins muni ekki eiga sér stað aftur. SVIPMYND Framhald af bls. 10. þennan nauma meiriíhluta, en sú afsök- un getur bara ekki gilt til eilífðar nóns. Hans viðkvæma hlutverk er nú að s'eppa úr þessum vanda, með þvi ann- aðhvort að grípa réttu stundina og efna til skyndikosninga, eða þá að stjórna roeð festu, rétt eins og hann hefði örugg an meirihluta. Til skamms tíma héldu fiestir, að hann mundi taka fyrri kost- inn, nauðugur viljugur. En nú, eftir örugga meðferð hans á flugvélamálinu og fjárlögunum, eru menn teknir að hallast að þeirri skoðun, að hann ætli sér að stjórna um óákveðinn tíma og færast í fang erfiðari og erfiðari við- fangsefni. Pólitiska áhættan er mikil, því að nýr ósigur gæti sent verkamanna íiokkinn inn í langa framtíð nöldrandi stjórnarandstöðu. Ef hr. Wilson getur haft tök á innlendum og erlendum vandamálum, haldið flokki sinum sam- an og annaðhvort lifað, af á sínum tæpa meirihluta, eða unnið í hættuspili nýrra kosninga, verður hann áreiðan- lega í sögunni talinn meðal undramanna brezkra stjórnmála. TUNGLIÐ Framhald af bls. 1. vafalaust skekin af endurteknum jarð- skjálftum og endurteknu hraunflóði, sem færir skorpuna í kaf. Loksins hef- ur sólin betur í þessari togstreitu, flóð- bungan fer fram úr hámarki, aðdráttar- afl jarðarinnar getur ekki lengur dregið hana saman, en í staðinn varpar jörðin frá sér stóru stykki af sjálfri sér. Hinn byrjandi máni, því að þetta er hann, getur ekki sloppið alfarið frá jörðinni og fer því á braut umhverfis hana. Sjálf stætt þyngdarafl hans tryggir það að hann verður undir eins að hnetti. Stór stykki sem fylgt hafa mánanum ná í hann og klessast niður á yfirborð hans og mynda um leið hina geysistóru giga, sem við nú sjáum. Þegar svo loksins jörðin kólnar, verður Kyrrahafið eftir eins og heljarstórt ör, sem tunglið hef- ur verið skorið út úr. E nda þótt kenning Sir George Darwins hafi ýmislegt forvitnilegt til síns ágætis, hafa vísindamenn haft mörg mótmæli gegn henni tiltæk. Það er ekki í samræimi við reglur himingeimsins, að jörðin hafi getað komið tunglinu þannig á braut með því að „hleypa því af stokk unum“ svona allt í einu. Sá kraftur, sem nauðsynlegur er til að losa nógu stórt stykki myndi einnig setja það á svo mikla ferð að það slyppi alveg frá jörð- inni og færi á braut kring um sólina. eins og sólkerfis-gervihnöttur, frekar en á braut um jörð eins og nútíma gervi- hnöttur. Og jarðeðlisfræðingar halda því fram, að jörðin hafi verið of lím- kennd til þess að flóðbungan yrði nægi- lega há til að brotna frá og mynda tungl ið. Framhald á bls. 14. 15. tbl. 1965. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.