Lesbók Morgunblaðsins - 23.05.1965, Blaðsíða 10
Eftirlit
17726.
— Gisti- og veitingastaðaeft-
irlit ríkisins. Góðan dag.
— Góðan dag, þetta er hjá
Lesbók Morgunblaðsins. Er Ed«
ward Frederiksen við.
— Já, þetta er hann.
— Hvað er helzt á döfinni
hjá þér núna?
— Ég er að undirbúa ferða-
lög út um landsbyggðina til að
athuga ástandið í veitinga- og
gistihúsum, og hvað gert hefur
verið til úrbóta síðan ég var
síðast á ferðinni. Síðastliðið
sumar og haust heimsótti ég
alla slika staði á landinu, smáa
og stóra, nema á Austfjörðum.
Við þá hafði ég hins vegar sam
band með bréfaskriftum og i
síma.
— Hvernig var ástandið yi~
irleitt í fyrra?
— Það var mjög misjafnt,
hvað varðar hreinlæti og allan
aðbúnað. Á flestum stærri hót-
eianna var aðbúnaður mann-
sæmandi en þó eru því miðul
nndantekningar frá því, jafn-
vel á hótelum, sem teija sig
í betra flokki. Um smærri hót-
elin er það að segja, að þau
fulinægja engan veginn þeim
með gistihúsum
kröfum, sem þeim eru settar.
— Hvaða aðferðum beitir þú
til að athuga ástandið?
— Ég tek sýnishorn af upp-
þvotti og athuga með kemísk-
um aðferðum gerlagróður á
borðbúnaði. Uppþvottur er yf-
irleitt í lagi, þar sem hann er
framkvæmdur í vélum, en ann-
ars ekki. Öll vinnsluverkfæri í
eldhúsi, pottar og pönnur eru
athuguð með tilliti til þrifnað-
ar, einnig klæðnaður og hrein-
læti starfsfólks þar. Ekki sízt
skoða ég kæli- og frystigeymsl-
ur, svo og aðrar matargeymsl-
ur. Er ærin ástæða til þess. í
gistiherbergjum skoða ég sæng
urfatnað, umbúnað rúmstæða
o.fl. í salarkynnum athuga ég
vitaskuld hreinlæti og snyrti-
herbergin eru skoðuð mjög ná-
kvæmlega. Þar er umgengninni
í flestum tilfellum mjög ábóta-
vant, en oftast má kenna það
gestum fremur en veitinga-
mönnum.
— Hvað gerðir þú í haust til
að fá úr ástandinu bætt?
— Á hverjum stað, sem ég
heimsæki, geri ég skýrslu um
það, sem ábótavant er, og gef
veitingamanninum frest til
framkvæmda. Hann undirritar
skýrsluna ásamt mér og heid-
ur frumritinu. Hef ég um leið
samband við heilbrigðisyfir-
völd viðkomandi staðar og
skýri þeim frá niðurstöðum
skoðunarinnar. Núna mun ég
athuga, hvort úrbætur hafa ver
ið gerðar samkvæmt fyrirmæl-
um. Sé svo ekki, mun verða
farið fram á lokun í alvarlegri
tilfellunum, þar til öllu hefur
verið kippt í lag.
— Ætlar þú að fara margar
ferðir um landið í sumar?
— Meiningin er að fara þrjár
yfirferðir um landið, þó ekki
reglulega, heldur þannig að ég
komi ætíð að óvörum og sjái
ástandið eins og það er venju-
lega á hverjum stað. í haust
mun ég svo yinna úr upplýs-
ingunum, sem fást í sumar, og
verður þá gerð flokkun á öll-
um veitinga- og gististöðum
landsins. Skrá yfir þessa staði
ásamt flokkuninni verður síð-
an látin í té öllum ferðaskrif-
stofunum og öðrum, sem þess
óska.
— Hvað segir þú um starfs-
fólk veitinga- og gistihúsa úti
á iandi?
-— Gamall málsháttur segir,
að betra sé að veifa röngu tré
en engu, en í þessu tilfelli er
það alrangt frá mínum bæjar-
dyrum séð. Engin stofnun er
til í landinu, sem þjálfar hið
álmenna starfsfólk til þess-
arar vinnu, og vankunnáttunn-
ar verður maður var á fjölda
af stöðum á landsbyggðinni,
einkum í móttöku gesta og um-
gengni við þá. Þessi vankunn-
átta kemur harðast niður á er-
lendum ferðamönnum, sem
eiga henni ekki að venjast, og
verður það veitingamönnum á
íslandi sem ferðamannalandi
til tjóns, því flýgur fiskisagan.
Svavar Gests skrífar um:
NÝJAR PLÖTUR
MÚSÍK-FRÉTTIR. Fyrir Anthony Newley og Leslie
nokkru sömdu þeir félagar ,3ricuss nýjan söngleik, heit-
ir hann „The roar of the
greasepaint, the smell of the
crowd“ og var frumsýndur í
New York fyrir skömmu.
Bendir allt til þess að hann
muni njóta sömu vinsælda
og fyrsta tilraun þeirra fé-
laga „Stöðvið heiminn, hér
fer ég út“. Annars virðast
brezkum söngleikjasmiðum
standa allar dyr opnar í Am
eríku um þessar mundir.
Þar er verið að sýna, á vest-
urströndinni, brezka söng-
leikinn „Pickwick“, sem
taka á til sýninga í New
York með haustinu, en þessi
söngleikur var sýndur í
London í tvö ár samfleytt.
Þá var annar brezkur söng-
leikur frumsýndur í New
York fyrir stuttu. Hann heit
ir „Half a sixpence" og
hlaut mjög góða dóma. .Að-
alleikarinn þar fékk skín-
andi dóma en það er enginn
annar en Tommy Steele,
sem söng „Water, water ev-
erywhere“ inn á plötu á
sínum tíma og týndist svo
íslendingum. En Tommy hef
ur haft nóg að gera síðan.
Hann hefur leikið í nokkr-
um enskum miðlungskvik-
myndum, en hvar sem hann
kemur fram á leiksviði er
honum fagnað, svo líklega
hallar hann sér að söng- og
gamanleikjum í framtíðinni.
Lögin úr öllum framantöld-
um söngleikjum hafa verið
gefin út á plötum, en söng-
leikjaplötur seljast mjög vel
í Ameríku. Til marks um
það má nefna, að platan
með lögum úr ,,My fair
lady“ hefur verið á lista yf-
ir metsöluplötur samfleytt í
átta og hálft ár!
Hinni árlegu danslaga-
keppni í San Remo á ítaliu
lauk fyrir nokkru, en þar
fengu á sínum tíma verð-
laun lög eins og ,,Volare“,
„Romantica“ og fleiri sem
síðan urðu heimskunn. Lag-
ið sem verðlaun fékk 'í ár
heitir „Se Piangi, se Ridi“.
Önnur danslagakeppni,
sem síðustu árin hefur vakið
allt eins mikla athygli og
San Remo-keppnin, er Eur-
ovision, en hvert Evrópu-
landanna (flestra) sendir
listamenn, sem kynna lögin,
og þar vann að þessu sinni
ung söngkona frá Luxem-
borg með laginu „Poupee
de cire, poupee de Son“.
Kornungur, amerískur
þjóðlagasöngvari, Bob Dyl-
an að nafni, hélt tvenna
hljómleika í Albert Hall í
London fyrir stuttu. Húsið
tekur u.m sjö þúsund manns
og seldist upp á hljómleik-
ana á örfáum klukkustund-
um mörgum vikum fyrir-
fram.
Kvikmyndin, sem The Be-
atles hafa verið að gera síð-
ustu vikurnar verður senni-
lega frumsýnd samtímis í
Englandi og Ameríku í ág-
ústmánuði (og þá sennilega
Tónabíói daginn eftir?).
Ringo Starr hafði gefið
henni nafn eins og hinni
fyrri og átti hún að heita
„Eight arms to hold you“,
en líklega hefur þeim ekki
þótt það nógu gott, því nú
er talað um að hún eigi að
heita „Help!“ Lögin úr kvik
myndinni verða gefin út á
LP plotu um svipað leyti.
Sala á LP plötum, eða 33
snúninga plötum, hefur auk-
izt mikið í Englandi síðustu
mánuði en sala á 4 snúninga
plötum dregizt saman. Vilja
plötuútgefendur kenna þann
samdrátt hinum svonefndu
sjóræningjaútvarpsstöðvum,
sem leika nýjustu plöturnar
svo oft, að unga fólkið legg-
ur það ekki á sig að kaupa
þær.
Mest seldu plöturnar í
Englandi um síðustu helgi
voru: Tioket to ride (Beatl-
es), 2. King of the road
(Roger. Miller), 3. The min-
ute you‘re gone (Cliff Rich
ard), 4. Here comes the
night (Them), 5. Bring it on
home to me (Animals), 6.
Pop go the workers (Barr-
on Knights), 7. A world of
our own (Seekers), 8. Little
things (Dave Berry), 9.
Catch the wind (Donovan)
10. True love ways (Peter
& Gordon).
essg.
19. tbl. 1965
10 LESBÓK; MORGUNBLAÐSINS