Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1965, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1965, Blaðsíða 8
Jón Þorkelsson skólameistari í Skálholti faðir barna- og unglingafræðslunnar Erindi flutt við afhjúpun minnisvarða hans i Innri-Njarðvík Herra forseti fslands, hæst- virtir ráðherrar, sveitar- stjóri, virðulegir samkvæmisgestir. Vér erum hér saman komin í boði hreppsnefndar Njarðvíkurhrepps í tilefni þess, að í dag hefir verið af- hjúpaður minnisvarði hins merka Suðurnesjamanns, Jóns Þorkelsson- ar, skólameistara í Skálholti, við há- tíðlega athöfn á fæðiftgarstað hans, Innri-Njarðvík, því að „í vöggunnar landi skal varðinn standa“. Ég hefi verið beðinn að flytja hér stutt er- indi um Jón Þorkelsson og Thor- killiisjóðinn, og er mér ánægja að því að verða við þeim tilmælum. Jón Þorkelsson eða Johannes Thor- killius, eins og hann sjálfur skrifaði sig á latínu, fæddist í Innri-Njarðvík í Gull- bringusýslu árið 1697 og ólst þar upp. Voru foreldrar hans Þorkell lögréttu- maður Jónsson bóndi í Njarðvík og Ljót- unn kona hans Sigurðardóttir, Árnason- ar lögmanns, Oddssonar biskups í Skál- holti, og var Jón einbirni þeirra. Var hann nákominn afkomandi síra Odds Oddssonar prests á Stað í Grindavík og á Reynivöllum í Kjós, ,,er nafnkenndur maður var á sinni tíð og þótti margvís og fjölfróður“. Meðal systkina Þorkels í Njarðvík, föður Jóns, voru þau síra Gísli á Útskálum og Guðbjörg, kona Gísla lögréttumanns í Ytri-Njarðvík Ól- afssonar. Þeirra son var Ólafur biskup i Skálholti Gíslason, og voru þeir Jón skólameistari og Ólafur biskup því syst- kinasynir. Forfeður Jóns frá síra Oddi og afkomendur þeirra eru margir þjóð- kunnir menn. Þar á meðal má nefna málsnillinginn og skáldið Sveinbjörn Egilsson, sem einnig er fæddur í Innri- Njarðvík tæpum 100 árum síðar eða 1791. Guðlaug, systir Þorkels lögréttumanns, var langamma Sveinbjarnar Egilssonar. F immtán ára gamall var Jón Þor- kelsson sendur í Skálholtsskóla, og var þar við nám í 3 vetur. Faðir hans lézt úr Stórubólu 1707, er drengurinn var 10 ára að aldri, en móðir hans bjó við allgóð efni og gat því kostað þennan gáfaða son þeirra til náms. f Skálholtsskóla komu strax fram hinir miklu hæfileikar Jóns Þorkelssonar; á öðru skólaári var hann efstur sinna félaga, og er hann brautskráðist 18 ára gamall, var hann efstur í skólanum. Jón Vídalín biskup veitti honum sérstaka athygli og viður- kenningu sakir gáfna og námshæfileika. Eftir að Jón Þorkelsson hafði lokið skólanámi, dvaldist hann hér á landi um tveggja vetra tíma við kennslu og aðrar lærdómsiðkanir, annan á Staðastað hjá Þórði prófasti Jónssyni, mági biskups, en hinn í Skálholti hjá Jóni biskupi sjálfum. Að þessum tíma liðnum hélt hann til móður sinnar. Hann stóð nú á tvítugu og hugði til framhaldsmennta erlendis. Ljótunn, móðir hans, veitti honum farar- eyri. Hélt hann síðan frá Innri-Njarð- vík yfir Miðnesheiði, steig um borð í Bátsendafar og sigldi með því til Kaup- mannahafnar haustið 1717, en Kaup- mannahöfn var þá og um langan aldur sameiginleg höfuðborg íslendinga og Dana. Settist Jón nú í háskólann þar, sem þá var einnig háskóli íslands, og lagði aðallega stund á málfræði og guð- fræði; fór síðan til Jótlands og Holtseta- lands og dvaldi eitt ár við háskólann í Kiel í Þýzkalandi. Fékkst hann þar eink- um við heimspeki og sögu. Sýndi hann sem fyrr frábærar gáfur og lauk hinum ágætustu prófum. Dvaldist hann nú við ritstörf, kennslu og nám erlendis samfleytt nsestu árin til 1728 að undantekinni snöggri ferð til íslands 1720 til að heimsækja ætlingja sína. Eftir heimkomuna 1728 varð hann skólameistari í Skálholti. Skólameistaraembættinu þjónaði hann í 9 ár með miklum dugnaði og alúð. J[ ón Þorkelsson var einn mesti lær- dóms- og gáfumaður þjóðarinnar á sinni tíð og talinn mesta latínuskáld íslend- inga fyrr og síðar. Hann hafði á námsár- um sínum erlendis lagt stund á mælsku- fræði, skáldskaparvísindi, stærðfræði, grasafræði, læknisfræði og eðlisfræði og þjóðréttarvísindi. „Er skoðun Jóns á þjóðréttarstöðu landsins hin merkileg- asta, því að hann segir blátt áfram, að „landið lúti konunginum alleina"....“ Eftir hann liggur mikill fjöldi rita í handriti, bæði í bundnu máli og ó- bundnu, frumsaminna og þýddra á ýms- um tungumálum, þó mest á latínu, enda var latína eftirlætismál hans og alþjóða- mál þeirra tíma, sem hann mun hafa talið, að lifa mundi um aldir. Hafa rit þessi verið lesin af fræðimönnum víða um lönd og hvarvetna þótt hin merkustu. Hefir hann með ritum þessum vakið athygli á landi og þjóð, sem ekki verður metin að verðleikum, enda mun ísland hafa í mörgu haft beint gagn af þessari landkynningu. Munu flest hand- rit hans vera í erlendum söfnum, aðal- lega dönskum og einnig brezkum, en af- skriftir af ritum hans allflestar í Lands- bókasafninu. Af hinum meiriháttar ljóðabálkum Jóns Þorkelssonar á latínu má nefna ís- lendingadrápu, en þar hefir hann að einkunnaroi'ðum upphaf gamallar þulu: — Sat ég undir fiskihlaða föður míns, og Gullbringuljóð og verður vikið að þeim síðar. Þá orti Jón mörg erfiljóð á latínu. Jón Þorkelsson átti margar hugsjónir um betra land og mannaðri þjóð en var um hans daga. Hann gerði því margar tillögur til umbóta á ýmsum sviðum, einkum mennkigarmálum, svo sem fræðslu- og kirkjumálum. Eru margar tillögur hans og uppástungur svo merkar cg frumlegar, að telja má hann fyrir- rennara og brautryðjanda ýmissa þeirra inenningarhátta, er vér metum nú mikils og teljum oss ekki mega án vera í þjóð- félaginu. Má telja, að Jón hafi skapað hliðstæðan kafla í menningarsögu lands- ins og störf samtíðarmanns hans, Skúla Magnússonar, í þágu iðnaðar og verzl- unar. Jón Þorkelsson hefir* verið rétt- nefndur faðir barna- og alþýðufræðsl- unnar í landinu, og má meðal annars benda á, að hann á fyrstur manna hug- myndina að hinum svo nefndu verk- námsskólum, sbr. reglugerð Hausastaða- skóla frá 1792. Þá setti Jón fram, fyrstur manna, hug- myndina um, að landsmenn eigi að hafa æðstu menntastofnanir handa sér í land- inu sjálfu. í skrá, sem Jón Þorkelsson samdi um tilJögur sínar um „það, sem virðist þurfa winnsóknar og breytingar til batnaðar á íslandi", má rekja efni þessara tillagna, en þær voru undanfari nútíma fræðslu- og menningarkerfis. Og skal þá vikið að nokkurum þeirra. Til menningar alþýðu taldi hann nauð- synlegt að stofnaðir yrðu opinberir barnáskólar, en svo sem kunnugt er urðu þeir ekki til fyrr en löngu síðar. Um utanfarir stúdenta ræðir Jón og eru athuganir hans í því sambandi i samræmi við þá þjóðlegu skoðun hans, að hér á landi ætti að vera framhalds- skóli eftir latínunámið, fyrir embættis- mannaefni landsins. Þarna er háskóla- hugmyndin fyrst sett fram. Sjálfur hafði Jón boðizt til að verða forstöðumaður prestaskóla, er stofnaður yrði í Hítar- dal, ef sér yrðu veitt skilyrði til þess. Þarna er hann meira en 100 árum á undan sínum tíma. Þá er tillaga Jóns um „grasafræðing og landlækni, af því að enginn er sá í landinu, er beri skynbragð á þessi efni til gagns“, eins og hann orðar það. Upp af þessari tillögu var stofnað landlæknis- embættið, 20 árum síðar, og má telja, að þá hafi hin fyrsta af stórhugmyndum Jóns komið til framkvæmda. Þá má benda á þá tillögu Jóns, að ís- lenzkir biskupar yrðu vigðir í landinu sjálfu. Þá bar hann fram tillögu um „afnám brennivíns eða hegning fyrir vanbrúkun þess og fyrir ofdrykkju, sem af því leið- ir“. Tillögu þessa bar hann fram í anda merkustu samtíðarmanna sinna, er of- bauð óregla og drykkjuskapur þjóðar- innar. Hér var fyrirboði og upphaf bindindisstarfsemi í landinu. Eitt mesta áhugamál Jóns var endur- bætur á latínuskólanum. Vegna þeirrar reynslu, sem hann hafði í skólameistara- starfinu um þau bágindi, sem nemendur og skólarnir áttu við að búa, sagði hann lausu embætti eftir 9 ára þjónustu, og fór utan 1737 til þess að vinna að endur- bótum á skóla- og kirkjumálum á ís- landi. Málflutningur Jóns og skýrslur hans um ástandið á Islandi, varð til þess, að konungur ákvað að senda menn hing- að til lands til þess að rannsaka mennt- unarástand þjóðarinnar og gera tillögur til úrbóta. Til þeirrar farar var valinn ágætur maður, Ludvig Harboe að nafni, ungur prestur í Kaupmannahöfn, síðar Sjálandsbiskup. Var Jón Þorkelsson fenginn til þess að ferðast með Harboe um landið. Skyldi hann vera einkaritari hans, túlkur og ráðgjafi. eir félagar ferðuðust um hér á landi 1741 til 1745. Störfuðu þeir mikið og vel. Eftir för þeirra voru gefnar út margar tilskipanir um skóla- og kirkju- hald. Að þessum ferðalögum loknum sigldu þeir félagar til Kaupmannahafnar. Jón leit ísland ekki framar og dvaldist í Kaupmannahöfn við ritstörf til dauða- dags 5. maí 1759 og var jarðsettur þar 10. dag sama mánaðar. Jón var barnlaus og hafði aldrei kvænzt. Þrátt fyrir dvöl sína erlendis, og ef dl vill ekki sízt hennar vegna, unni hann jafnan íslandi og íslenzkum málum, en þó sérstaklega fæðingarhéraði sínu. Allt þótti honum fegurst og bezt í Gull- bringusýslu, og stúlkurnar líka, það sanna hin fögru Gullbringuljóð hans, sem ort eru á latínu. „Sjálfur tók hann sér nafn af Gullbringusýslu og kallaði sig oftast „Chrysorinus", þ. e. úr Gull- bringum. . . . Chrysoris eða Gullbringu- ljóð er lofkvæði um Gullbringusýslu og nafnkunnustu staði í sýslunni, og inn í það spunnin saga héraðsins og héraðs- manna og sagnir ýmsar á marga vegu‘\ Um þessar mundir tilheyrði Reykjavík Gullbringusýslu og voru verzlunarhúsin Q LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 26. tbl. 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.