Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1965, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 28.11.1965, Side 10
SIGGI SIXPENS ARI — I>a3 er mús í búrinu hjá mér. Vildirðu ekki lána mér — Lána? Ég held nú síður, þú skilar aldrei aftur því, sem þú færð! — Ég ætlaði að fá hann Sigga lán- aðan! — Þú getur fengið hvað sem þú vilt! Á erlendum bókamarkaði Ævisögur I’romeíheus — The Life of Balzac. André Maurois. Translated by Norman Denny. The Bodley Head 1965. 50/— Franska útgáfan kom út hjá Hachette í ár. Þetta er ævisaga eins afkastamesta og eftirtektar- verðasta rithöfundar, sem Frakk- ar eiga, og er vel skrifuð af ein- um fremsta rithöfundi Frakka nú á dögum. Balzac var stórveldi, enginn getur skilið né skynjað franska sögu og andrúmsloft á íyrri hluta og fram undir mið- bik 19. aldar, nema með nokkr- um lestri Balzacs, hann er slík tjáning tímanna í ritum sínum ásamt að vera tjáning allra tíma. Áhugi manna fyrir höfundi og verkum hans hefur alltaf verið mikill og síðustu fimmtán ár hefur hann aukizt, eða frá hundr- að ára ártíð hans 1950. Margir ágætir höfundar hafa ritað ævi Balzacs, meðal þeirra André Billy og Stefan Zweig, en nýjustu rann- sóknir og nýjar heimildir um líf þessa manns urðu til þess að Maurois tókst á hendur að rita ævisögu þessa stórveldis bók- menntanna. Hann tengir líf hans verkum hans í ríkara mæli en aðrir hafa gjört. í þessu riti svipt ir hann hulunni af ýmsu, sem áð- ur var hulið, og skýrir með því ýmislegt í verkum og lífshlaupi þessa afkastamikla höfundar. í ensku útgáfunni hefur verið sleppt athugagreinum frönsku út- gáfunnar og auk þess mjög ítar- legri biblíógrafíu, það er talið óþarft og birta þetta í þessari út- gáfu, þar eð hún er ætluð ensku- mælandi fólki, en flestar heimild- ir, sem vísað er til I þessum at- hugagreinum frönsku útgáfunnar, eru á frönsku og hafa að mestu leyti aðeins þýðingu fyrir þá, sem eru mjög vel að sér í frönskum bókmenntum og sérfræðingar í verkum Balzacs. Því hefur verið horfið að því ráði að birta að- eins stutta bókaskrá og neðan- málsgreinum sleppt. Þetta er mjög læsileg bók eins og vænta má. Samtíma myndir fylgja. The Mordaunts. An Eighteenth- century Family. Elizabeth Hamil- ton. Heinemann 1965. 45/— Útgeíandi þessara plagga, sem hér birtast, fann þau af tilviljun á húsi, sem langamma eiginmanns hennar lét reisa á sínum tíma skammt frá Wellesboume í Warwickshire. Þarna fundust ým- is plögg og bréf, þau elztu frá síðustu árum sautjándu aldar og yngstu frá því um 1820. Úr þess- um efnivið vann útgefandi þessa bók, sem gefur ágæta hugmynd um líf og hugsunarhátt þeirra, sem bréfin rituðu, og jafnframt ágæta aldarfarslýsingu. Þetta verður með ágætri niðurröðun útgeíanda ættar- og landssaga, því Mordauntarnir voru ýmsir á þingi og gegndu ýmsum embætt- lun um sína daga. Öðru hverju finnast gömul bréf og plögg, sem varpa nýju ljósi á liðna atburði. Skammt er að minn ast þess þegar dagbækur Bos- wells fundust, en það er einn merkasti bókmenntafundur síð- ustu ára. Slíkt getur enn gerzt, þar sem mannabústaðir hafa ver- ið það vel gerðir að pappír geym ist þar óskemmdur. Hér á landi er slíku ekki til að dreifa, manna- bústaðir hérlendis áður fyrr voru slíkir, að mikla aðgæzlu þurfti að hafa til þess að bækur og pappírar eyðilegðust ekki af sagga og fúa auk þess sem gömul skinnræksni urðu bótarefnl á skinnbrækur, þegar volæðið var hér hvað mest. Það munu ef til vill kallast ýkjur að íslendingar hafi undireins lesið, etið og klæðst skinnbókum, en þó er sannleikskjarni í þessari staðhæf ingu. Það væri helzt von til þess að gömul bréf og plögg leyndust á húsloftum gamalla bygginga í sumum kaupstöðum landsins, verzlunarbækur haía fundizt, en örlög þeirra margra hafa orðið slík, að skammarlegt er að minn- ast. Kirkjur voru hér áður oft notaðar sem bókageymslur, og mætti vera að eitthvað væri að hafa á kirkjuloftum eða í öltör- um. Þessi saga Mordauntanna er einkar læsileg, myndir fylgja, bókaskrá og registur. Bókmenntir Shakespeare Survey. An Annual Survey of Shakespearian Study & Production 18. Edited by Allar- dyce Nicoll. Cambridge 1965. 45/— Átjánda heftið af þessu safni er lokahefti þriggja þeirra sið- ustu, sem helguð eru fjögur hundruð ára -afmæli skáldsins. Þetta hefti ber undirtitilinn „Shakespeare Then Till Now“. Fyrsta greinin íjallar um gagn- rýnendur leikritanna og ástæð- urnar fyrir gagnrýni þeirra, sem eru margvíslegar. Arthur Brown ritar um afstöðu útgefenda til höf undar og afstöðu lesendanna, ræð ir mismunandi lestrarvenjur og segir frá- hinum ýmsu helztu út- gáfum rita skáldsins. Harold Jenkins ritar um Hamlet, leik- hússögu þessa leikrits og mis- munandi útleggingar á boðskap verksins. Ein greinanna fjallar um útvarps- og sjónvarpsgerðir leikritanna. Skrá fylgir um sýn- ingar og bókaskrá varðandi höf- und og verk hans, myndir fylgja og registur. Þetta er handbók allra þeirra, sem stúdera Shakespeare, og einnig ágæt bók fyrir leikara og leikhúsfólk. Friedrich Schillcr dtv Gesamtaus gabe Band 1—4. Deutscher Tasch enbuch Verlag 1965. Verð allra bindanna DM 15.20. dtv útgáfan er nú að hefja endur- prentun Carl Hanser-útgáfunnar, en það er talin vandaðasta útgáfa Schillers, sem út hefur komið. Um þessa útgáfu sjá Gerhard Fricke, Herbert G. Göpfert og Herbert Stubenrauch. Alls verð- ur þessi útgáfa í tuttugu bindum og verða þá útgefin öll verk höf- undar. Þetta er annað stórvirkið sem dtv ræðst í. Áður hafa þeir gefið út Artemis-útgáfuna af Goet- he í fjörutíu og fimm bindum. Tíu þýzkar útgáfur standa að dtv. meðal þeirra mörg vönduðustu út gáfufyrirtæki Þýzkalands. Þessi útgáfa Schillers er í vasabroti, pappír vandaður og kjöllíming góð, útlit bókanna er snoturt. Þetta er fullkomin endurútgáfa Carl Hanser-útgáfunnar, engu sleppt. Þetta verður.dangódýrasta heild- arútgáfa Schiliers, sem fáanleg verður. Gert er ráð fyrir því að öll bindin verði komin út í sept- ember 1986. Vasabrotsbækur hafa valdið byltingu £ útgáfustarfsemi á síðustu árum. Eintakafjöldi hef- ur fjórfaldazt við það sem áður var og álitið er að tala þeirra, sem kaupa bækur að staðaldri, hafi fjórfaldazt. Þetta þýðir meiri atvinnu fyrir þá, sem setja sam- an bækur, enda ekki óalgengt að vasaútgáfurnar yfirbjóði hverja aðra þegar um vinsæla höfunda er að ræða. dtv hefur i hyggju að gefa út flestar vönduðustu útgáf- ur þýzkra klassíkera á næstu ár- um. Goethe er þegar útgefinn, einnig Kleist og Biichner og nú þessi útgáfa. Jóhann Hannesson: ÞANKARÚNIR AÐEINS þriðjungur þjóðanna I S.Þ. verður nú um stundir talinn til lýðræðisþjóða. En tala þjóðanna í samtökunum er nú 114 samkvæmt nýlegum tölum frá London. Einræði er í uppsiglingu á vorum tímum, en önnur fyrri einræðisbyigja gekk yfir ýms lönd rétt eftir fyrri stórstyrjöld. Margir mæltu einræðinu bót á þeim árum, einnig lýðræðissinnar. Þá töldu menn Stalín það til gildis að hann iðnvæddi Rússiá, en Hitler hlaut heiður fyrir útrýmingu atvinnuleysis, og Mússolíni kom því til vegar að ítalskar lestir komust á milli staða á við- unan'legum tíma. Þannig gátu menn varið einræðisherra með efnahagslegum umbótum, sem þeim tókst að koma áfram með meiri hraða en stjórnarvöldum á undan þeim. Nú er ekki unnt að verja einræðisherrana á þess'konar forsendum. Undir þeirra stjórn er hvarvetna meiri ólestur en í lýðræðisríkjum, enda þótt vér metum verðgildi aðeins í samræmi við allan þorra samtiðarmanna, það er að segja í framleiðni og peningum, þægindum og nægtum. Einræðisherrar nútímans krefjast persönudýrkunar af öll- um iandslýð. Einn heimtar að allir venjulegir menn víki skil- yrðislaust úr vegi fyrir bifreið hans. Annar lætur selja myndir af sjálfum sér með öðrum helgimyndum. Sá þriðji þykist sjálf- ur vera yfirnáttúrleg andleg vera, óháð efninu. Og mætti svo lengi telja. En þeim tekst að koma til vegar meiri fátækt meðal álmennings en þeirri, sem var á nýlendutímum, skapa öng- þveiti í fjármálum, stórfjölga sköttum og opinberum gjöldum, embættismönnum, bönkum, skrifstofum og hótelum, sem njóta ríkisstyrks. Fjársvik virðast spretta líkt og arfi í garði undir þeirra handarjaðri. Sumar vörur, sem löndin áður fluttu út, verða þau nú að flytja inn. Velviljuð vestræn riki reka eins konar „ölmusuverzlun“ með afgangsvörur við þessi ungu ein- ræðisríki, og samt fer fjárhagur versnandi. Einræðisherrar leggja fé inn í svissneska banka til vara, ef bylting kynni að verða, enda eru mannaskipti á æðstu stöðum varla hugsan- leg án blóðugra byltinga. Ein klíkan berst við aðra og ver miklu fé til að kaupa sér fylgi. Hér eru aðeins raktir fáeinir drættir í einræði því, sem hratt vinnur á með nýfrjálsum þjóðum. Það þurrkar jafnvel út þann vísi lýðræðis, sem sumar gamlar nýlenduþjóðir höfðu stofnað til. Hvers vegna fer á þessa leið? Mjög frum- stæð mannfélög virðast hvorki þola lýðræði né skilja. Einkum virðist þungskilin þrískipting valdsins í löggjafar-, dóms- og framkvæmdavald, og erfitt að fá menn til að virða „mild“ lög, því að klíkurnar hafa þau að engu. Handhafi fram- kvæmdavalds leggur undir sig hin „völdin“ tvö. Almenningur styður ofstækismenn, gasprara og garpa, lætur lýðskrumara ginna sig og magnar þá til valda. Almenning skortir dómgreind og þroska, en yfirmenn siðrænan vilja, sem beinist að heillum almennings til langs tíma. Einræðisherrar og klíkur þeirra hafa lag á að raka saman talsverðu fé um leið og þjóðarþrif- um fer hrakandi og fátækt magnast. Og klíkurnar hafa lag á á að losna við ýmsa beztu menn sinnar eigin þjóðar og gera þá áhrifalausa, með útlegð, fangelsun, eignaupptöku eða öðr- um þvingunum. I voru eigin mannfélagi er einnig til hráefni það, sem til þarf að koma slíku ástandi af stað. Þessar frumstæðu hneigð- ir koma einkum fram í sambandi við prestskosningar, sem menn halda að séu lýðræðislegar, þótt þær minni mjög á kosningar einræðisherranna. Menn hafa engar áhyggjur af því að kjósa sér prest fyrir komandi kynslóðir, allt fram að næstu aldamótum, og kalla þetta lýðræði! Þá þarf að stofna klíku utan um hvern umsækjanda, í tvöföldum tilgangi, ann- ars vegar til persónudýrkunar, hins vegar til að úthúða öðr- um mönnum. Sagði mér einn leikmaður fyrir nokkrum árum: „Það voru bornar á hann allar vammir og skammir og allir glæpir, nema morð“. Með þess konar lýðræði tókst að fá hinn prestinn kosinn. Þá tekur almenningur ekkert tillit til reynslu, prófs eða verðleika manna sem unnið hafa í kirkju og þjóð- félagi, tekur óreynda menn oft fram yfir reynda og metur einskis ágætt starf. Hér er önnur hliðstæða við sálarástand sumra nýfrjálsra manna, sem hafa grundvallarreglur lýðræðis að engu. — Þegar einræðisherra er kominn til valda, þá getur hann einnig hagað sér að eigin vild og látið alla þjónustu við mannfélagið reka á reiðanum. Þetta geta prestar að talsverðu leyti, þótt fáir noti alla möguleika. Áhrifameiri skóla í and- lýðræði og afsiðun er ekki auðvelt að finna. 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 39. tbl. 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.