Lesbók Morgunblaðsins - 16.10.1966, Blaðsíða 2
SVIP-
MVND
EALTHAZZAR JOHANNES
VORSTER
Arið 1944 kom ungur Búi til
Pretóríu, annarar aí tveimur
höfuðborgum Suður-Afríku. Ríkis-
stjórnin situr í Pretóríu, en þingið
í Höfðaborg (Cape Town), og ýmsar
ríkisstofnanir flytjast á milli borg-
anna á nokkurra ára fresti með ærn-
um tilkostnaði og gífurlegum óþæg
indum fyrir alla aðila. Maðurinn
hafði nýlega verið látinn laus úr
gæzlubúðum í Koffiefontein, nálægt
Pretóríu, þar sem hann hafði setið
á styrjaldarárunum, vegna þess að
hann þótti of Þjóðverjasinnaður.
Númer þessa þýzklundaða gæzlu-
fanga var 2229/42, skála 48, búðum
nr. 1. Hann hélt til stjóm.arráðsins
og bað um viðtal við dómsmálaráð-
herrann í ríkisstjóm Smuts hers-
hö/íingja. Um leið og ráðherrann
kom auga á gæzlufangann fyrrver-
andi, sagði hann: „Komið yður út
úr þessu húsi innan fimm minútna,
— annars læt ég handtaka yður
aftur þegar í stað“. Maðurinn lét
sig hvergi og krafðist áheyrnar. Síð-
ar um daginn var hann settur í stofu
fangelsi.
Nafn mannsins var og er Balthaz
zar Johannes Vorster. Hann varð
síðar dómsmálaráðherra Suður-Af-
ríku og er nú forsætisráðherra rík-
isins.
Hinn nýi forsætisráðherra Suður-
Afríku er Búi (Boer) eða „Afrikaner“
í húð og hár, en því nafni eru afkom-
endur Hollendinga og Húgenotta, sem
námu hið óbyggða land í Suður-Afríku
fyrir nærfellt þremur öldum, oftast
kallaðir.
Hann er fremur svipþungur og með
hækkandi hofmannavik. í Evrópu mundi
hann sennilega vera talinn iðnjöfur í
öruggu þingsæti eða harðvítugur stéttar
félagsformaður, eftir útlitinu að dæma.
Annars er fátt sérkennilegt við hann,
nema skjaldbökugöngulag hans og það,
hve hnakkahárin rísa furðulega snöggt,
þegar hann brosir, svo að stríkkar á
andlitsvöðvunum.
Annars brosir hann ekki mikið á
almannafæri, þó að hann þyki bæði
skemmtilegur og hrífandi við persónu-
lega viðkynningu. Vorster er maður
kvæntur og á þrjár dætur. Heimilislíf
ið er sagt rólegt og mjög hamingju-
samt.
S amt segir Sir de Villiers Graaff,
helzti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í
Suður-Afríku, að þessi venjulegi og ró-
lyndi borgari hafi beitt sér fyrir lög-
gjöf, er muni hafa í för með sér afnám
borgaralegra réttinda í landinu, verði
þeim framfylgt til hins ýtrasta. Abyrgt
fólk, eins og Alan Paton, leiðtogi Frjáls
lynda flokksins í Suður-Afríku, og frú
Helen Suzman, þingmaður Framfara-
flokksins í Suður-Afríku, hafa opinber
lega kallað hann nazista. Frúin notar
ekki orðið sem venjulegt skammaryrði
í stjórnmáladeilum, þegar hún kallar
Vorster nazista, (hinir „framfarasinn-
uðu“ kalla alla forystumenn Þjóðflokks
ins í S-Afríku „nazista", þegar svo ber
undir), heldur hefur hún þá fortíð
Vorsters í huga.
V orster er ættaður frá „platte-
land“-inu, þ. e. utan úr sveit, þar sem
höfuðvígi hinnar gömlu Búamenningar
standa. Hann er rúmlega fimmtugur
(fæddur 1915). Faðir hans var fátækur
bóndi í héraði, sem að mestu er byggt
Búum, en héraðið telst til Cape Prov-
ince, þar sem langflestir íbúanna eru
ánnars af enskum uppruna. Vorster var
hinn þrettándi í röðinni í fjölmennum
systkinahópi, en frjósemi virðist hafa
fylgt Hollendingum til Afríku, eins og
trúarhitinn og dugnaðurinn. Hann var
settur til mennta og tók próf í listasögu
og lögum við Stellenbosch-háskólann,
sem er hin andlega miðstöð Búanna.
Þar sitja prófessorarnir, dósentarnir og
lektorarnir, er semja bækurnar, sem
hafa að geyma hina siðfræðilegu, sagn-
fræðilegu, heimspekilegu og lögfræði-
legu réttlætingu „apartheid“-stefnu
st j órnvaldanna.
Balthazzar Johannes Vorster var af-
burða námsmaður, þótt hann verði mikl-
um tíma þegar á háskólaárum sínum
til stjórnmálastarfsemi. Evrópskar stjórn
málahreyfingar bárust til Suður-Afríku
á fjórða tugi aldarinnar, og hinir ungu
Búar í Stellenbosch hneigðust margir að
öfgastefnum, eins og kommúnisma, fas-
Isma og nazisma. Trúin á lýðræðið var
á undanhaldi þarna, eins og víða annars
staðar í heiminum, enda var lýðræði
stjórnarform Englendinga, sem flestum
í Stellenbosch var í nöp við, en aðrir
hötuðu. Kynþáttakenningar áttu greiðan
aðgang að hugum þeirra. Hvítir menn
voru aðeins 20% landsmanna, og þótt
frjósemi Búa sé viðbrugðið, var dugleysi
hinna enskættuðu í barneignum slíkt, að
hlutfallið hlaut að versna hinum hviiu
í óhag. Það hafði mikil áhrif á marga
menntamenn í Suður-Afríku, þegar dr.
Hendrik F. Verwoerd, hinn gáfaði og
virðulegi sálfræðiprófessor, sem fæddur
var í Hollandi og hlotið hafði menntun
sína við mörg elztu og beztu fræðasetur
í Evrópu, gekk í lið með þeim, sem vildu
með einhverjum hætti koma á víðtækri
kynþáttaaðgreiningu og síðar uppskipt-
ingu landsins milli hvítra, svartra,
biandaðra og Asíumanna (Japanir munu
þó taldir til hvítra).
V orster fluttist til Port Elizabeth,
austarlega á suðurströnd landsins, og
stofnaði þar málaflutningsskrifstofu.
Lögfræðingurinn ungi hóf þegar þátt-
töku í stjórnmálum og skipaði sér við
hlið þeirra, sem sóttu hugmyndir sínar
til fasistahreyfinganna í Evrópu og
börðust jafnhatrammlega gegn íhalas-
mönnum, frjálslyndum, framfarasinnuð-
um, sósíalistum og kommúnistum.
Árið 1942 hófust vandræðin fyrir
Vorster, sem hann er stöðugt minntur á
í opinberu lífi, — á þingi, í dagblöðum
og með framíköllum á stjórnmálafund-
um. Endurminningin um stríðsárin getur
aldrei yfirgefið hann, enda er hann sí-
fellt minntur á hana, og telja sumir, að
stefna hans hafi orðið harðari, ósáttfús-
ari og óbilgjarnari fyrir vikið. í raun
og veru má heita furðulegt, hve langt
hann hefur komizt á stjórnmálaferli sín-
um, þegar haft er í huga, hve oft og
miskunnarlaust fortíð hans er dregin
fram í dagsljósið. Margur hefði gugnað
fyrir slíku.
Hann var tekinn fastur í skrifstofu
sinni og leiddur fyrir rétt, ákærður fyrir
starfsemi í ólöglegum og hálfhernaðar-
legum félagsskap, sem hét Ossewa-
Brandwag. Nafnið merkir nánast „Varð-
menn uxavagnalestarinnar" og er sótt
i hina rómantísku landnámssögu Búanna
gömlu. Vorster var þá 27 ára garr.all,
hafði kvænzt fyrir níu mánuðum og
hafði fyrirliðatitil í Ossewa-Brandwag.
S kömmu fyrir handtökuna hafði
hann gert grein fyrir skoðunum sínum
í opinberri yfirlýsingu. Þar sagði: „Vér
fylgjum kristilegum sósíalisma, sem er
skyldur national-sósíalisma. Þér megið
kalla stefnu vora andlýðræðislega, ef
þér viljið. Á Ítalíu heitir stefnan fas-
ismi, í Þýzkalandi national-sósíalismi og
í Suður-Afríku kristilegur sósíalismi“.
Aðrir fylgismenn þessarar stefnu í S-
Afríku höfðu á árunum fyrir heims-
styrjöldina síðari lýst yfir samúð sinni
með svo að segja öllum fasistískum og
hálffasistískum hreyfingum, sem spruttu
upp eins og gorkúlur í fjölmörgum lönd-
um Evrópu og Suður-Ameríku á þessum
tíma. Þeim fannst þeir eiga samleið með
„hinum ungu og sterku, sem vilja ryðja
Framhaíd á bls. 10
Framkv.st].: Siglns Jónsson.
Bltstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vleur
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýslngar: Arnl Garðar Krlstlnsson.
Ritstjórn’: Aðalstrætl 6. Sím: 22480.
Utgelandl: H.f. Arvakur. Reykjavnt
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
október lööö