Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1967, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1967, Page 12
Mismunur kynþáttanna Framhald af bls. 2 því að i*.ota slíka kynþátta- skiptingu til þess að meta gildi manna. Svo naumur er skiln- ingur manna á hinni flóknu lífefnafræðilegu þróun og á menningaráhrifum umhverfis- ins án tillits til erfða, að eng- inn getur ótvírætt ákvarðað það greindarhlutfall, sem mað- urinn fæddist með og það hlut- fail, sem hann ávann sér. Séu það erfðir, sem mynda hæfi- leika hans til þess að læra, ákvarðar menningin hvað hann lærir — og í sumum til- fellum hve mikið honum verð- ur leyft að læra. Sú þvingun, sem BandaríkjanegTarnir hafa búið við síðan þeir komu hing- að hlekkjaðir, speglast ömur- lega í menningarástandi þeirra. UMHVERFI OG MENNING. Allt mannkynið er líkamlega mjög margbreytilegt. Allir menn eru fróbrugðnir. En all- ir eru menn einnig eins. Það, sem er iíkt með þeim yfir- gnæfir mismuninn, segir M. Fried, í hlutfallinu 95 á móti 5. Á þeim tíma, þegar menn- irnir reikuðu um jörðina án fastrar búsetu, það er að segja á tímaskeiði, sem náði yfir 2.000.000 ára, hafa þeir óhik- að blandazt sínum líkum og hrist arfeindirnar kyrfilega saman. Einhvern tíma kann að verða mögulegt að hrista sund- ur hina mannlegu arfeinda- blöndu. Þar til svo verður, er nauðsynlegt að greina á milli hópa og ákvarða yfirburði eins kynþáttar yfir öðrum án þess að líffræðilegum aðferðum sé beitt. Án teljandi andmæla hefur mannfræðin tekið þessa stefnu. Fulltriiar á heimsmóíi kynþáttasérfræðmga og mann- fræðinga árið 1964 voru á eitt sáttir um, að „þjóðir heimsins í dag virðast búa yfir sömu líffræðilegu möguleikum til þess að ná hvaða menningar- stigi sem vera skal. Munur- inn á árangri hinna ýmsu þjóða verður eingöngu skrifaður á menningarsögulegan reikning þeirra.“ Líklegt má þykja, að áður en viðkvæm vandamál kyn- þáttafordóma leysist muni efld vísindi, eða jafnvel áframhald- andi þróun manngerðanna þröngva þjóðfélaginu til þess að leysa þau. Þrir fimmtu hlutar af íbúum jarðarinnar eru nú þegar litaðir, þ.e.ais. annað en hvítir. Erfðafræðing- arnir B. Slass og C. C. Li spa því, áður en tíu aldir séu liðn- ar, eða svona hér um bil, og með sama áframhaldi muni erfðafræðilega veiða ómögu- legt að þekkja Bandaríkja- negrann frá hvítum mönnum þar í landi. Á miklu skemmri tíma en það, segir erfðafræð- ingiurinn J. Lederberg við Stanfordháskólann, munu vís- indin hafa komizt að raun um svo margt um starfsemi erfða- eindanna, að hafa megi óhrif á þær og setja inn í mannlega litninga gerviefnahvata, sem ráðið geti öllu frá hörundslit til tónlistargáfu. Þar til heimurinn viðurkenn- ir þá ályktun, að sameigindir BK’nnkynsins séu miklu fleiri en séreigindir^ar vetður hald- ið áfram að bollaleggja mikil- vægi iþismunarins. Líkamleg margbreytni manna er augljós, svo er einnig um hið stóra svið mannlegra viðfangsefna, Það er á rökum reiist, að þau áhrif, sem úrslitum ráða séu áhrif menningar og umhverfis. Ekk- eru af því, sem maðurinn hef- ur uppgötvað um sjálfan sig hingað til, rennir nokkrum skynsamlegum, vísindalegum stoðum undir þá ályktiun, að einn kynþáttur sé frá náttúr- unnar hendi öðrum æðri. Eng- inn veit það. Og menn framtíð- arinnar, sem líta til baka munu ef til vill furða sig á því hvers vegna fólk fékkst yfirleitt við slíkan samanburð. Þýtt úr Xime Magazine. BYSSAN Framhald af bls. 9 á eftir tækniþróuninni og oft með hryllilegum afleiðingum og flestir hinna svonefndu sigursælu hershöfðingja hafa verið menn sem þverbrutu hin- ar viðteknu reglur og kennisetningar herskólanna og rugluðu þannig hina lærðu herforingja í ríminu. í mörg hundruð ár eftir a'ð handbyss- ur og fallbyssur voru komnar til sög- unnar fylktu hershöfðingjar liðssveitum sínum upp til orrustu eins og taflmönn- um á skákborði, samkvæmt viðtekn- um venjum og aðferðum löngu úr- eltra kennslubóka í herstjómarlist. Þessar þéttu fylkingar voru hin klass- iska aðferð frá tímum höggvopnanna. Síðan létu þeir fylkingar hermannavesl- inganna marséra hverjar móti annarri unz komið var í skotfæri. Þá var hafin skothríð, þar sem naumast var hægt að missa marks, unz önnur fylkingin missti kjarkinn og lagði á flótta eða reyndi í örvæntingu að knýja fram úrslit með áhlaupi og höggorrustu. Bandariska borgarastyrjöldin var einhver hin bló'ðugasta í sögunni vegna þess að hershöfðingjar hennar höfðu lítt átta’ð sig á því hve drepandi kúlna- hríð hinna nýju skotvopna var orðin. Krimstríðið sem var háð rétt á undan er þó líklega síðasta stríðið þar sem þéttar fylkingar hermanna voru send- ar beint á móti fallbyssukjöftunum. Hefur Tennyson gert þá „herstjórnar- list“ ódauðlega i kvæði sínu The Charge of the Light Brigade. Þó tók fyrst í hnjúkana í fyrri heims- styrjöldinni þegar Bandamenn og reynd ar Þjóðverjar líka öttu hundruðum þús- unda æskumanna móti látlausri vél- byssuskothríð og fallbyssusprengjum. Hershöfðingjarnir höfðu að vísu lært að láta hermennina sækja fram í dreifð- um hópum en hinar nýju vélbyssur sem gátu skotið fast að 20000 skotum á min- útu og voru varðar í sprengjuheldum byrgjum áttu auðvelt með að brytja hina ungu hermenn niður hversu marg- ir sem þeir voru og hversu mikinn hetjuskap sem þeir sýndu. Hinir grunnreifu hershöfðingjar voru þegar hér var komið sögu hættir að fylgja hersveitunum fram á vígvellina og gáfu fyrirskipanir sínar símleiðis í öruggri fjaríægð. Það var ekki fyrr en eftir fjögurra ára þrátefli skotgrafanna, þar sem blómi evrópskra æskumanna hafði verið stráfelldui niður til einsk- is, að í heila þeirra fæddist sú hugsun að sóknaraðferð liðinna alda væri orð- in úrelt fyrirbigði á 20. öldinni. Tuttugu milljónir fallinna eða særðra ungmenna kostuðu þau heilaköst. Fullyrða má að í dag hafi byssan lok- ið hlutverki sínu sem hernaðartæki í stórstyrjöld. Hermaður me’ð jafnvel hinn fullkomnasta riffil milli handanna er orðinn jafn úrelt fyrirbrigði á atóm- öld, eins og skinnklæddur steinaldar- búi með tinnuöxi sína enda þótt byss- ur verði kannski enn um nokkurt skeið notaðar í staðbundnum styrj- öldum og lögregluaðgerðum éða smá- byltingum. Sem dæmi þess hve venju- legur herriffill er úreltur má geta þess að ef skotið er af honum aftur úr hraðfleygustu herþotu, fer kúlan að visu út úr hlaupinu, en ferð hennar verður gagnstætt skotáttinni vegna þess að flugvélin fer me'ð meiri hraða en byssukúla. Sé skotið af öflugri vélbyssu fram úr sömu flugvél fara kúlurnar í upphafi með hraða byssukúlunnar að viðbættum hraða flugvélarinnar, en þar sem hraði þotunnar er stöðugur og kúlumar missa hins vegar hraða sinn mjög fljótt getur farið svo að þotan lendi í sinni eigin skothríð. Þess verður stundum vart í dagbók- um hinna fornu vísindamanna að þeir þögðu yfir ýmiss konar möguleikum á smíði drápstækja sem snilligáfa þeirra hai’ði uppgötvað á þeim forsendum, að stjórnmálamenn þeirra tíma hefðu ekki þann þroska til að bera að óhætt væri að fá þeim slík tæki í hendur. Þessir menn horfðu langt fram í tímann og báru umhyggju fyrir mannkyninu sem heild en ekki fyrir stundarhagsmunum einhvers kotríkis, sem þeir vissu að væri forgengilegt eins og öll ríki ver- aldar hafi verið og munu verða. Því miður virðist ekki hægt að segja hið sama um vísindamenn vorra tíma. Þeir eru ólatir við að finna upp ný og ný gjöreyðingartæki, enda þótt þau sem fyrir eru séu sögð nægilega öflug til þess a’ð tortíma hverri lifandi veru á jarðríki a. m. k. þrisvar sinnum! Þoð virðist þverstæðukennt, þó að það sé líklega satt, að hinn mikli eyði- leggirgar og tortímingarmáttur vigbún- aðar nútímans beri í skauti sér einu friðarvonina því að stjórnmálamenn og stríðsbraskarar nútímans eru ekki það skyni skroppnir að þeir vita vel að hver sem byrjar heimsstyrjöld hefur kveð- íð upp dauðadóm mannkynsins — og sinn eigin um leið. Enda þótt þeir geti frestað sínum eigin endalokum, með því að lifa eins og holdsveikar roítur í mílu djúpum neðanjarðarbyrgj- um, mun það enn vesælla hlutskipti en þeirra sem í Surtarlogunum brynnu til csku. Að grípa til slíkra örþrifaráða mun þurfa sálarástand það sem almennt kall- ast vitfirring, en í því sambandi hlýtur hugur hvers heilbrigðs manns að minn- ast þess með hrolli hversu á öllum öld- um vitskertum mönnum hefur haldizt upp me'5 að hafa örlagaþræði heilla þjóða í hendi sér og tignaðir sem guð- ir eða ofurmenni í þokkabót. Verði hins vegar mannkynið sett á munu byssurnar gegna sínu hlutverki svipað og önnur vopn liðins tíma, svo sem steinaxir og sverð, notaðar eflaust eitthvað til manndrápa, en mest til dægrastyttingar, t.d. veiða og þess, sem þær eru mest notaðar í dag, þrátt fyrir allt, -— að gera göt á markskífur frið- ■amra íþróttamanna. BÓKMENNTIR Framhald af bls. 3 tilfinningabælingar, sem sprottin var a? kynnum hans við Engilsaxa. Eftir þetta gaf hann út skáldsöguna „Ni Ange, ni Béte“ (Hvorki engill né illfygli), og þótt það verk næði ekki sömu vinsæld- um og hin fyrri, markaði það þau tíma- mót, að bókmenntir voru honum ekki lengur aðeins ánægjuleg tómstunda- iðja. Hörmulegur missir rauf svo endan- lega öll tengsl hans við gamla umhverf ið. Vorið 1924 lézt hin unga eiginkona hans af völdum blóðeitrunar. Til að v.nna bug á harmi sínum, tók hann upp harðan sjálfsaga þeirra, sem hafa kosið starf rithöfundar. Hann þjálfaði sveigjanlega hæfileika sina við iðkun ýmissa greina bók- mennta. Hverja á fætur annarri gaf hann út bækurnar „Ariel ou la Vie de Shelley” (Ariel eða ævi Shelley.-O, „Dialogues sur le Commandment" (Rök- læður um valdbeitingu), (þar sem hann neyiir reynslu sinnar sem for- stjóra stórs fyrirtækis og kannar sem talsmaður réttlætis, beitingu valds), „Bernard Quesnay" (skáldsögu, sem sækir efnlvið í þrengingaskeið hjá ullar- iðnaðinum) og „Disraeli". Eftir missi konu sinnar, bjó André Maurois í Neuilly ásamt börnum sínum. Hann lifði einangruðu lifi, þar til Grasset bókaútgefandi bauð honum dag nokkurn til Périgord að heimsækja móður Simone de Caillavet og hitta þar Paul Valéry. Rithöfundurinn varð sam- stundis hugfanginn af landslaginu í Férigord og þeirri mannveru, sem sýndi honum það. Stðara hjónanbandið. Simone de Caillavet var sonardóttir frú Armand de Caillavet. Hún hafði alltaf dáðst mjög að skáldsögu ömmu sinnar og Anatoles France. Þegar hún varð frú Simone Maurois, árið 1936, vildi hún verða hinum nýja manni sín- um eins ómetanlegur samstarfsmaður og frekast væri unnt (fyrra hjónaband hsnnar hafði farið út um þúfur). Ár- sngurinn varð einstakt dæmi um full- kominn skilning tveggja einstaklinga, sem lífið hafði leikið grimmilega, og sem þóttu þau hæfa hvort öðru ger- samlega, meira að segja við vinnu. Firomta skáldsaga Andrés Maurois, „Climats" tók fram vinsældum „Bramble", og þrem árum síðar varð ,Le Cercle de Famille" (Svið fjölskyld- ur.nar) til að tryggja frægð þessa djúp- skyggna könnuðar leyndardóma manns- hjartans. í bókunum „Le Peseur d’Ames“ (Vigtarmaðurinn í Ames) og „Machine á Lire les Pensées“ (Hugsanalesturs- vélin) spreytti hann sig einnig í hugar- flugi. Hugmyndina að „Peseur d’Ames“ fékk hann af þvi að lesa klausu, sem birtist í amerisku blaði, þar sem skýrt var frá því, að hálfgeggjaður læknir hefði rannsakað breytingu á þyngd líkamans rétt eftir dauða. Þyngdin minnkaði hægt, en eftir einn og hálfan klukkutíma féll vísirinn skyndilega, -17 hundruðustu hiuta úr milligrammi. Af þessu var sú ályktun dregin, að þarna hefði sálin yfirgefið líkamann.... Mannkynssagan freistaði hans líka. Árið 1937 gaf hann út „Sögu Englands" og tíu árum síðar „Sögu Bandaríkj- anna“, þar sem hann staðfestir hlýhug sinn til engilsaxneskrar menningar. En það er í ævisögum frægra manna, sem fjölbreyttir hæfileikar Andrés Maurois hafa kannski notið sín bezt. Eftir „Ariel ou la Vie de Shelley" kom löng röð af ævisögum: „Byron“, „Dickens", „Lyaut- ey“, „Turgenjev", „Volltjaire", „Edvard VII et son Temps“, „Chateaubriand*1, „Proust” og „Le Trois Dumas“. Að síðustu kom svo þríþætt snilldar- verk, „Balzac, George Sand og Hugo“, sem vegna litauðgi og ferskra heimilda, að viðbættum skýrum stíl, mun tryggja stóran lesendahóp. Þar sem hann getur með þakklæti þeirra, sem gert hefðu honum kleift að rannsaka svo frábærlega ævi Balzacs, gleymdi André Maurois ekki kennara sínum „Alain“, sem hafði, á sama tima og hann opinberaði honum heiminn og alla hluti, steypt honum á höfuðið ofan í „Le Comédie Humaine". „Ég hef aldrei komizt alveg upp úr henni síðan“, skrifaði hann. „Aldur minn varnar mér þass að færast í fang slíkt stórvirki framar. Þessi ævisaga verður hin síðasta, sem ég skrifa. Ég er hamingjusamur, að Balzac skuli vera sóguhetja hennar". Að kvöldi lífs síns gat André Maurois reyndar gert reikningsskil fyrir langa tiiveru stöðugrar vinnu, sem hann sagði, að hefðá veitt sér m.klu meira en hann hafðd vænzt. Vegsemd og virðing. Hann var kjörinn í Académie Fran- caise árið 1938 í stað René Doumic. Hann var meðlimur i Société des Gens de Lettres og Comité de Lecture við Comédie Francaise, forseti Fransk-amer- íska félagsins og af æðstu gráðu Heið- unsfylkingarinnar. Stanfsemi hans sem 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. desember 1967

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.