Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1967, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1967, Qupperneq 15
Nýlega var frumsýnd í London fevikmynd sú, sem John Lennon lék í í Þýzkalandi: How I Won The War. Meðfylgj andi myndir voru teknar við £rium.sýningun'a og má þar líta herra og frú Manfred Mann, George og Patty Harrison, herra og frú John Lennon og Paul McCartney ásamt beztu vinkonu sinni Jane Aster. BEMDIX Hér á myndinni sjáum við hljómsveitina Bendix, en hún var ein af hljómsveitunum sem kom fram á hljómleikunum í Háskóla- bíói fyrir skömmu. Meðlimir hljómsveitarinnar eru aliir mjög ungir og eru að okkar dómi all efnilegir og þá sérstaklega söngv- ari þeirra sem bar af öðrum meðlimum hennar. THE BOX TOPS hafa verið mikið í sviðsljósinu undanfarið og þá að sjálfsögðu með lagið sitt THE LETTER, en það lag hefur nú hlotið miklar vinsældir vi'ða um heim. Box Tops koma frá borginni Memphis, Tennesse,, en það er einimitt fæðingarborg konun'gsins, Elvis Presley. Það eru aðeiris tvö ár síðan þeir hófú að leika saman, en The Letter er fyrsta lag þeirra sem vakið hefur yerulega athygli. Platan, hefur nú selzt í yfir 2 milljónum eintaka sem verður að teljast mjög gött þegar tekið er tillit til þess að: hér ,er um nær óþekkta hljóm- sveit að ræða og einnig það að piltarnir eru allir undir tvítugu. Tveir þeirra eru aðeins 18 ára gamli rythmagítarieikarinn Biilly Cunningham og söngvarínn Alex Chilton. Aðrir meðlimir hljóm- sveitarinnar eru 19, en það 'eru: Carry Talley sóló-gítar, trommarinn Danny Smythe og John Evans sem' leikur á bassa. The Box Tops hafa nú undanfarið unnið að L.P. plö<u sem væntanleg er á markaðinn innan skamms og er ekki að efa að margir munu bíða þejrrar plötu með mikilli eftirvæntingu. llÖIUii JÁM í IXIM M H Þrátt fyrir gengisfellingar og verðhækkanir halda Bítlarnir alltaf sínu striki og virðist sem þeir hafi aldrei verið jafn svívirðilega athafnasamir og 'einmitt nú. Eins og flestum er kuninugt hafa þeir ný nýlega gefið út tveggjalaga plötu. Bæði lögin eru eftir þá félaga Lennin og Mc- Cartney en þau heita HALLO GOODBYE og I AM THE WALRUS, en það lag er úr sjónvarps- þættinum Magical Mystery Tour. Áætlað er að þættinum verði sjónvarpað í Englandi um jólin og um sama leyti munu koma út tvær plötur með lögum út þættinum. Þá hafa þeiir nnl nýlioík- ið við tvo stutta sjónvarpsþætti sem gerðir voru í þeim tilgangi að kynna hina nýútkomnu plötu. En ekki er öll sagan sögð enn, því áð um þessar mundir eru Bítlarnir að leika í nýrri, langri kvikmynd er ber nafn sem allir ættu að þekkja, nefnilega Yellow Submarine. í þessari mynd verða 3 ný lög eftir Lennin og McCartney ásamt8 lögum af Sgt. Peppers plötunni og ef allt fer eins og ætlað er verður myndm væntanlega frumsýnd í maxz eða apríl n.k. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15 3. desember 1967 í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.