Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.1968, Síða 14
A
erlendum
bókamarkaði
The Tower of Babel. Morris West. Heine-
mann 1968. 30.—
Morris West hefur skrifað nokkrar met-
sölubækur. Æfing hans eykst með hverri
bók, heimildaöflun og heimildakönnun hans
er ekki á lakara stigi en sæmilegra blaða-
manna nú á dögum og úrvinnsla hans held-
ur skárri. í þessum babelsturni rekurhann
átök Gyðinga og Araba með því að setja
á svið ævihlaup allmargra persóna og bar-
áttu þeirra fyrir því, sem þær telja gott
og rétt. Persónurnar eu flestar hetjur á
sinn hátt, geðslegt fólk, sem örlögin hafa
tengt vissri atburðarás, sem hrífur það með
sér og sem það verður að hlíta. Höf-
undur hefur aflað sér viðamikilla heim-
ilda um utburðarásina fyrir botni Miðjarð-
arhafsins undanfarin ár og setur persónur
sínar þar á svið. Slíkar bækur sem þessi
eru vel fallnar til sölu á torgum vegna
tengsla við líðandi stuind og æsifrétta nú-
tímans. Höfundur kann í fyllsta máta að
segja sögu, persónurnar eru lifandi og þótt
maður minnist þeirra ekki mjög lengi má
vel lesa sögu þeirra sér til afþreyingar.
Þessi bók er ídeal metsölubók, en ekki
heldur meira.
Yemen: The Unknown War. Dama Adams
Schmidt. The Bodley Head 1968. 45 —
Jemen er á suðvestur horni Arabíuskag-
ans. Þar hefur geisað borgarastyrjöld und-
anfarin ár millum konungssinna og þeirra,
sem „hyggja á nýja hluti“. Baráttuaðferðir
í þessari styrjöld eru blanda hefðbundinna
baráttuaðferða eyðimerkurhernaðar, einsog
fyrrum tíðkaðist og nútíma barattutækni.
Þarna ægir saman gömlu og nýju og skoð-
anamunur baráttuaðila er gífurlegur og
auk þess koma þar mjög við sögu erlend
áhrif. Jemen á sér gamla sögu, sem höf-
undur rekur að nokkru. Höfundur er blaða-
maður og þessi bók hans er reist á kynn-
um hans af baráttuaðilum. Höfundurinn
hefur einnig sett saman bók um baráttu
Kúrda.
In Pious Memory. Margery Sharp. Heine-
mann 1968. 21 —
Margery Sharp hefur sett saman fjölda
bóka, talið er að bækur hennar hafi komið
út í samtals sex milljónum eintaka. Hún
skrifar bæði fyrir börn og fullorðna og
kann kvenna bezt að segja sögu, þannig að
spennan helzt til bókarloka. Þessi bók er
því marki brennd, þægilegasta tegund af-
þreyingarlesningar.
The Baron of Piccadilly. The Travels and
Entertainments of Albert Smith 1816-1860.
Raymund Fitzsimons. Geoffrey Bles 1968. 30.
Albert Smith las læknisfræði við Sor-
bonne, en sneri sér fljótlega að annarri
grein, sem var skemmtanaiðnaðurinn. Hann
er meðal frægustu skemmtikraftamiðlara
19. aldar og var einnig sjálfur hlutgengur
sem slíkur. Auk þess setti hann saman vin-
sælar skáldsögur og leikrit. Hann rak leik-
hús í Lundúnum og sýndi pródúkt sín þar
um fjölda ára fyrir fullu húsi. Sýningar
hans á ýmiskonar raunum og ferðalögum,
fjallgöngum og aflraunum urðu mjög fræg-
ar á sinni tíð og þá einkum fjallgangan á
Mont Blane, sem var sýnd tvö þúsund sinn-
um. Smith ferðaðist víða til þess að afla
sér efniviðar í sýningar og leikrit og var
einn af víðförlustu mönnum aldarinnar.
Allt sem þessi maður hefur sett saman er
nú löngu gleymt, en lífshlaup hans sjálfs
lifir enn þá í sögum og því er þessi bók
útgefin. Hann er ágætt dæmi um skemmti-
kraftamiðlara, lélegt leikritaskáld og enn
lelegri skáldsagnahöfund, en lipran gróða-
mann, sem vissi nákvæmlega hvað lýðnum
kom á sinni tíð. Bók þessi er lipurlega
skrifuð og fylgja samtíma myndir.
Doctor Faustus. Thomas Mann. Translated
by H.T. Lowe-Parker Penguin Books 1968.
8,6.
Faustus er eitt af snilldarverkum Manns
og kom fyrst út á ensku 1949 og nú í
Penguin. Lífsferill Adrians Leverkúhn er
rakinnaf vini hans Zeitblom við bakgrunn
síðari styrjaldarinnar. Inntakið er listamað
urinn og fórn hans. Bókin er gefin út í
bókaflokknum „Penguin Modern Classics".
The Prussian Officer — St. Mawr and the
Virgin and the GypsyLove among the
Iiaystacks and other stories — Aaron's
Rod — Selected Lctters — Sea and Sard-
inia. D.H. Lawrence. Penguin Books 1968.
Ný prentun af ritum Lawrence hjá Peng
uin. Bækurnar kosta frá 3/6 til 5.— og auk
þess að vera mjög ódýrar er alltaf vandað
mjöf. til texta Penguin útgáfa. Útgefendur
rita inngang að hverju bindi. Flestallar
bækur Lawrence hafa verið gefnar út hjá
Penguin og endurprentaðar oft.
The Pastons and thelr England. Studies
in an Age of Transition. H.S. Bennett. Cam
bridge University Press 1968. 10.6
Til eru um eitt þúsund bréf og skjöl,
sem varða Pastons ættina á einn eða annan
hátt: Inntak þessarar bókar eru þessi plögg
færð til nútímamáls og au'kin skýringum og
útlistunum. Pastonarnir voru aðalsætt á
Englandi á 15. öld, sæmilega stöndug og
ágætt dæmi um lágaðalsætt og baráttu henn
ar að halda eignum og áhrifum á róstur-
samri öld. í brefum þessara ættmenna er
rakin þessi baráttusaga og margt það ann-
að, sem gefur glögga hugmynd um daglegt
líf, siðvenjur, hugsunarhátt og aldarfar.
Ríkisvaldið var ekki fært um að halda uppi
lögum og reglu á þessu tímaskeiði, rustar
óðu uppi og réttaröryggi var aðeins hug-
tak. Þessi bréf eru ein verðmætasta heim-
ild frá þessum tíma um ástandið, auk þess
er bókin einkar læsileg.
Moderne Dichtung verstehen. Hannah Marks
Kösel-Verlag 1966. DM 11.80
Þessari bók er ætlað að skýra þær hug-
myndir, sem einkenna nútíma ljóðlist. Höf-
undur rannsakar forsendur ljóðlistarinnar
og rekur síðan þau einkenni, sem gera
hana að nútímaljóðlist. Síðasti hluti bók-
arinnar fjallr um tækni og rithátt nútíma
skálda í kveðskap. Valin eru dæmi úr ljóð-
um flestra meiriháttar skálda í Evrópu.
Þessi bók er rituð af góðum vilja og ætti
að geta lokið upp fyrir mörgum þessum
harðlæstu dyrum, sem nútímaljóðið er svo
mörgum.
The Civilzation of Spain. J. B. Trend. 2nd
edition. Oxford University Press 1967. 7.6
Trend prófessor ritar hér sögu Spánar í
nokkrum ágætum greinum. Hann rekur
menningarafrek þjóðanna, sem byggðu og
byggja þetta land allt frá dögum Karþagó
manna og fram á okkar daga. Bókin er
ágætur inngangur að sögu Spánar og f bók
arlok fylgir ágætur bókalisti yfir rit varð-
andi sögu Spánar. Trend vinnur við háskól-
ann í Cambridge.
Louis XIV. David Ogg. 2nd edition. Ox-
ford University Press 1967. 7.6.
Lúðvik XIV átti svo mikinn þátt í þvf
að móta franska sögu og menningarsögu,
að saga hans og hans tíma verður rakin
af hverri kynslóð. Þessi bók kom í fyrstu
út fyrir þrjátíu árum, en heldur þrátt fyrir
það gildi sínu. Sólarkonungurinn var ekki
su glansmynd af hálfgerðum kvennabósa
sem oft er dregin upp í lélegum kennslu-
bókum hérlendis. Fáir hafa átt meiri þátt
í lista og menntalífi sinnar aldar heldur
en hann og hann gerði Frakkland að menn
ingarlegum miðdepli Evrópu. Höfundur
rekur franska menningarsögu í úrdrætti
jafnframt því sem hann segir pólitíska
sögu Frakklands á ríkisstjórnarárum Lúð-
viks XIV.
The Faber Book of Twentieth Century Verse
Revised Edition edited by John Heath —
Stubbs and David Wright. Faber and Faber
1967. 10.6
Þetta er ein með betri sýnisbókum ljóða
gerðar á enskri tungu. Höfundar leitast vlð
að sýna dæmi nútíma Ijóðlistar frá upphafi
þessarar aldar. Höfundar binda sig ekki
við aldur skáldanna heldur nútímaleg ein-
kenni ljóða þeirra, enda annað fjarstæða.
Útgefendur velja ljóð eftir sínum smekk
og þeirri höfuðstefnu að tjá nútíma ljóð-
list. Inngangur fylgir ritaður af Heath-
Stubbs, sem er sjálfur ágætt skáld.
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
28. júaí 1068