Lesbók Morgunblaðsins - 28.07.1968, Síða 15
HLJÓMAR
Mikill úlfaþytur og umtal hef
ur orðið út af þeirri breytingu
sem Hljómar hafa ákveðið
að gera á hljómsveitinni. Gunn
ar Jökull sezt nú í sæti Engil-
berts sem snýr sér nú óskipt-
ur að söngnum auk þess sem
hin frábæra söngkona Shadie
Owens bætist nú í hópinn. Óef-
að er þessi hópur mjög álitleg-
ur og líklegur til mikilla af-
reka á sviði tónlistarinnar en
eins og öllum er kunnugt halda
þau til Bandaríkjanna í Sept-
ember n.k.
En ekki er allt tekið út með
sældinni. Með fráfalli Gunnars
Jökuls úr Flowers og Shadie
úr Óðmönnum hafa báðar þess
ar hljómsveitir ákve'ðið að
hætta störfum og fyrir bragð-
ið missa nú íslenzk ungmenni
sínar 3 beztu pop-hljómsveit-
ir allar í einu. Vissulega er
þetta mikið áfall fyrir íslenzka
pop-músik, en á meðan menn
Hinir nýju Hljómar í heimsókn hjá frægasta íslending í Band
aríkjunum, Leifi Eríkssyni, hin- um heppna.
IBMIDSI-
England: 26. júlí.
1 (1) Baby Come Back Equals
2 (2) 'íhe Son Of Hickory Holler’s i Tramp O.C. Smith
3 (3) I Pretend ... . Des O’Conner
4 (6) Yummy Yummy Yummy Ohio, Express
5 (13) Mony Mony Tommy James and the Shondells
6 (5) Yesterday Ilas Gone ... Cupid’s Inspixation
7 (12) Macarthur Park . Richard Harris
8 (10) My Name Is Jack . .. Manfred Mann
9 (8) Blue Eyes . . Don Partridge
10 (4) Jumpin’ Jack Flash . . . . Rolling Stones
Las Vegas
The Son Of Hickory
Baby Come Back
Downtown Soulville
Soul Groovin ........
Jumpin’ Jack Flash .
The Universal
Hurdy Gurdy Man
My Name Is Jack .
One More Dance . . .
Think ...............
26. júlí 1968.
Hollers Tramp O. C. Smith
.................... Equals
Chuck Edwards
........... Equals
..... Rolling Stones
..... Small Faces
.......... Donovan
.... Manfred Manni
Ester og Abi Ofram
.. Aretha Franklin
Hljómar eins og þeir voru hvað vinsælastir.
eins og Karl Sighvatsson, Magn
ús Kjartansson og Jóhann Jó-
hannsson, svo að einhverjir séu
nefndir, standa enn uppi er
ekki ástæða til að örvænta.
Þessir menn ásamt öðrum með-
limum beggja hljómsveitanna
eru áreiðanlega ekki búnir að
syngja sitt síðasta en fróðlegt
verður að fylgjast með þróun
íslenzkra hljómsveitarmála nú
í næstu framtíð. Hins vegar er
ánægjulegt til þess að vita að
íslenzk hljómsveit skuli vera
talin það góð að hún sé gjald-
geng á erlendum markaði. í
fimm ár hafa Hljómar staðið í
sviðsljósinu og skemmt lands-
mönnum með söng sínum og
leik. Nú uppskera þeir árang-
urinn fyrir erfiðið. Af þessu til
efni höfum við ákveðið að
renna lauslega yfir sögu þeirra
félaga frá því að þeir fyrst
fóru að vekja á sér athygli.
Hljómar voru stofnaðir í
Keflavík um haustið 1963. Þá
söng með hljómsveitinni Einar
Júlíusson sá ágæti söngvari
sem nú syngur með Pónik.
Af einhverjum ástæðum hélzt
Einar ekki lengi í hópnum en
við söngnum tók Karl Her-
mannsson. Karl var söngvari
hljómsveitarinnar þennan vet-
ur og var þá hljómsveitin skip-
uð auk hans þeim Eggert Þórð-
arsyni, sem var fyrirliði
þeirra og upphafsmaður að
stofnun hljómsveitarinnar,
Gunnari Þórðarsyni, Erlingi
Björnssyni og Rúnari Júlíus-
syni. Þetta sama vor vöktu þeir
félagar fyrst á sér verulega at-
hygli hér í Reykjavík en það
var á hljómleikum sem haldnir
voru í Háskólabíói. Eftir þessa
hljómleika má segja að sigur-
ganga þeirra hefjist fyrir al-
vöru. Karl hætti um sumarið
en Hljómar héldu áfram sem
kvartett og hafa meðlimir
hljómsveitarinnar verið fjórir
síðan. Um sumarið fóru þeir í
sína fyrstu hringferð um land-
ið og eftir þá ferð voru þeir
orðnir landskunnir. Haustið
1964 brugðu þeir félagarnir sér
yfir pollinn til Englands en þar
komu þeir fram í hinum heims-
kunna CAVERN-klúbbi í Liv-
erpool, klúbbnum sem varð
Bítlunum stökkpallur tilfrægð
ar og frama. Eggert varð eftir
í Englandi en Gunnar, Erling-
ur og Rúnar komu heim og
tóku strax til óspilltra málanna
með nýjum trommara, manni
sem að seinna átti eftir að verða
landsfrægur fyrir söng sinn —
Engilbert Jensen. Snemma á ár
inu 1965 léku Hljómar inn á
sína fyrstu hljómplötu og um
sama leyti gerðist Pétur Öst-
lund trommuleikari hljómsveit-
arinnar. Á þeim tæpu tveim ár-
um sem að Pétur lék með Hljóm
um gáfu þeir út fjórar hljóm-
plötur sem allar náðu mikl-
um vinsældum. Þrjár af þess-
um plötum voru gefnar út af
hinu heimsþekkta hljómplötu-
fyrirtæki PARLOPHONE, en
það að óþekkt hljómsveit hér
uppi á íslandi skuli hafa náð
samningi við slíkt fyrirtæki er
afrek sem vert er að minn-
ast á og ætti það eitt að segja
nokkuð til um gæði hljómsveit-
arinnar á þessum tíma. Þess má
geta að um þessar mundir var
kvikmyndin Umbarumbamba
tekin og sýnd víða um land.
Haustið 1966 slitnaði upp úr
samstarfi þeirra Péturs og
hinna meðlima hljómsveitarinn
ar en Engilbert Jensen settist
nú aftur í sitt gamla sæti við
trommurnar. Upp frá þessu
fóru vinsældir Hljóma að auk-
ast jafnt og þétt og hljómsveit-
in varð betri og betri með hverj
um deginum sem leið. Saga síð-
ustu mánaða er öllum kunn.
L.P. platan kom út og vakti
verðskuldaða athygli og hrifn-
ingu. Lagið „Show Me You
Like Me“ sem þeir gáfu út í
Bandaríkjunum náði 6. sæti
vinsældarlistans í Mitchigan-
fylki þar í landi. Hljómar hafa
tvívegis hlotið kosningu sem
„Hljómsveit unga fólksins" en
keppni þessi hefur verið hald-
in jafn oft. S.l. vetur brugðu
Pétur Östlund
Hljómar sér til Svíþjóðar þar
sem að þeir „rassskelltu" þar-
lendar hljómsveitir, ef dæma
skal eftir ummælum sænskra
dagblaða. Og enn eru það ný-
ir sigrar. Með endurskipulagt
lið halda þeir nú til Banda-
ríkjanna, fyrsta sporið til enn
meiri frama. Glugginn vill nota
tækifærið og óska þeim gæfu
og gengis í því starfi sem þeir
nú eiga framundan.
í umsjá BALDVINS JÓNS-
SONAR og SVEINS GUÐ-
JÓNSSONAR.
Illjómar eins og þeir voru sumarið 1964.
28. júM 1MB
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15