Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1968, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1968, Page 1
ÍSLENSK NÚTÍMALJÓÐUST 8. HLUTI EFTIR JÓHANN HJÁLMARSSON FYRSTA CREIN UM STEIN STEINARR AIM TAKMARKS OG TILGANGS Steinn Steinarr Árið 1934 kveður eitt sérkennileg- asta ljóðskáld þessarar aldar sér hljóðs: Steinn Steinarr, skáldið sem viljandi og óviljandi varð tákn nýjunga í bók- menntum Þótt Steinn sé fyxir ýmissa hluta sakir hefðbundinn í viðhorfum sinum, er flestum tamt að líta á hann sem upphafsmann nútímaljóðagerðar á fslandi. Þetta er þó ekki að öllu ieyti rétt afstaða. En Steinn er að minnsta kositi uppreisnarmaðurinn. Hann geng- ur lengra í leit sinni að nýjum veru- leik en nokkur annar. Skáldævi hans er sambæri'leg við listferil málara eins og Þorvalds Skúlasonar, sem gerist braut- ryðjandi nútímamálaralistar hérlendis, en þar skilur á milli þeirra, að Steinn leggur rækt við fleiri form en eitt í skáldskap sínum, en myndheimur Þor- valds verður æ einhliðari eftir að hann snýr baki við hinnd ytri eftirlíkingu. Ef til vill 'saninar þessi samanburður ekki annað en það, að bókmenntirmair eru jafnan íhaldssamari en myndlistin. Fyrsta bók Steins, Rauðuæ loginn brann, er skilgetið afkVæmi kreppuár- araia. Eins og Jóhannes úr Kötlum dreym ir skáldið um „nýjan heim, nýja menn- ingu“, og eru þar komin sósíalistísk lífsviðhorf. En trú Steins á mannllegt vald er ekki jafn sterk oig hjá Jóhann- esi. Hanin leynir ekki vonbrigðum sín- um með hinn „hungraða verkalýð", sem „skilur ekki sína eigin afstöðu til óvina sinna“. Þess vegna lætur hanm sér nægja vitundina um líf eftir dauðann: Ef til vill betra líj, ef til vill bjartara og miskunnsamara gagnvart fátækum mönnum. (Úr Mold). En um leið er það ekki sagt, að ljóð Steins hafi ekki verið ski'lin „réttum" skilningi samkvæmt formúlu stjórnmála- baráttunnar á sinni tíð; um afstöðu hans er raunar ekki að villast. Rauður log- inn brann hefst á hvatningarljóði til öreigaæskunnar, sem á eftir því sem Steinn segir „allan heiminn að vinna“. Og það er til marks um skáldskap Steins, að hann er einna lakastur þegar hann bregður sér í gervi vandlætarans og umbótamannsins. Hin einfalda lífs- mynd, sem okkur er kunn úr ljóðum Jóhannesar úr Kötlum, á ekki við Stein. Aftur á móti áfcti háðið eftir að verða hans bitrasta vopn, því ádeiluskáld var Steinn, þannig að fáir léku eftir.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.