Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1970, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1970, Page 2
Nútíma myndlist er ekki einber söngnr um fegurðina. Hryilingur þykir líka full- boðlegt myndefni eins og hér má sjá í verki eftir Yehuda Ben-Yehuda. Einn hinna áhrifamestu úr samtíðinni: Bretinn Francis Bacon. Hann hefur haft mikil áhrif á heila kynsloð málara, en telst þó engan veginn til pop-Iistamanna. Meðfylgjandi mynd er eftir hann og heitir ..Stúdía fyrir mynd af Van Gogh II.“ Poplist - stofulist - hversdagslist gamlar fullyrðingar til endur- mats. Hún efast um kennisetn- ingar gamla skóians og akadem iskar reglur. Ástríðuþrungin leit að nýjum gildum einkennir gróandann í myndlist samtím- ans. Þegar blaðað er í erlend- um tímaritum um myndlist og komið á sýningar vestanhais og austan, þá ber öneitanlega mík- ið á hvers kyns tilraunum. Mönnum er svo mjög í mun að vera frumlegir, að hvers kyns uppátæki virðast réttlætanleg, ef fáir eða engir hafa leikið þau áður. Þess vegna gæti grand- vörum myndskoðara virzt, að kapphlaupið standi um, að finna eitthvað nýtt undir sól- inni. Tilraunir og leit að því óþekkta, hlýtur að teljast nauð syn í myndlist. Án þess væri kyrrstaða og kyrrstaða væri sama og afturför. En stundum virðist svo sem leitin haíi nálg- azt örvæntingu. Fær hrúga af ösku nýja merkingu við það eitt, aS hún er látin á gólf í sýningarsal? Eða nokkrir kaðalspottær, sem lagðir eru þversum yfir göitáð ? Sátan, sem sett var upp i sýn- ingarsal SÚM, sællar TTrirming- ar, var smjörþefur af þessu sama. „Meiripartur verkamna er með þeim hætti, að ekki hefur verið tekið tillit til hinna venju bundnu hugmynda um form og fegurð.“ Þannig kemst kunnur gagnrýnandi, Joseph P. Love, að orði um alþjóðlega listsýn- ingu í Japan. Listunnendur eru ruglaðir í riminu; þeir eru van- ir að hafa einhverja viðmiðun, svo sem myndbyggingu, litgæði eða ef til vill stemningu, þegar allt annað þrýtur. Áhorfand- inn verður líkt og í eyðimörk, þegar hann íinnur ekkert af þessu: öllum viðteknum hug- myndum um myndlist er hafnað á einu bretti, enda litlnamm stundum skilgreind sem „jmœi- art“, og mætti kannski kalla það ólist á íslenzku. Eðli poplistarinnar er með þeim hætti, að þar er erfitt að ákveða takmörkin og draga í dilka. Útskýringum ber oft ekki saman, en sumir segja, að poplistin sé útskýring á hvers- dagsleikanum, eða gagnrýni á hversdagsleikann eða jafnvel eins konar lofsöngur um hann. Eitt er vist: Poplistin er sprott- in af einhverri nauðsyn úr sam tíðinni og samtíðin er með ein- hverjum hætti nátengd poplist- umL En innan ramma þess, sem í viðustu merkingu er hægt að heimfæra sem poplist, rúmast margt. Það getur verið bíll, sikreyttur rósaflúri eða hippa- stelipa á baðströnd með fjólu- biáan maga. Það getur verið ýktur natúralismi, ein tönn stækkuð fimmtíu sinnum, kóka- kólaflaska stækkuð hundrað sinnum, þúsund fermetrar af klettum, innpakkað í brúnan pappír, eða átján hundruð te- skeiðar í gaddavírsgirðingu. Sumir kalla þetta einu nafni uppátæki, en partur af þessu öllu saman eru „happenings", sem Laxness nefnir uppákom- ur. Sem sagt; þeir góðu, gömlu dagar eru gengnir, þegar mynd listin var bundin við högg- mynd, eða málverk í ramma. Poplistamönnum er heldur ekki svo mjög umhugað um ódauð- leikann. Þeir hugsa sér oft verk in fyrir augnablikið; látlaus sköpun í hvaða efni sem er og á hvað sem er. Á morgun mál- um við yfir það, sem gert var í gær, því þá verður veröldin ný og ekki sú sama og í gær. En kannski er poplistin umburðar- lyndari en ýmsar ldststefnur; menn virðast tæpast ánetjast Dansandi kona eftir A. Frohner. Figuran er óendanlegt viðfangsefni og frjálsræðið í túlkuninni er eftir því. Fyrirsæta í hikini og peysu eftir Peter Powditch. Acryl-litir á plötu. Hér er pop- stílUnn augljós og áhrif frá skiltamál- urum. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. olktótier 1970

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.