Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1970, Blaðsíða 13
Lausn á síðusfu krossgátu
% <r “z cc 1 HFI ICXuj *-> <r 0/ C»C5Í J* ttr \ mm"m Z. z <c
•2. - i di -2. ■5«X ||i VA X — ©T — J- <r 3 T 3 d. ij í Jo <s •3 * 3 T
v> 3 L < 0L II 'e> u\ < o A 3 ac !.o 3 u I 1 <1 3 CX. Z %
\ ■z W ■Q rr i J - Z. •Z. O- ^ c £ vO T cr 1 3 Z ~3 T (V 3 £
aí — <í 1 1 <s J u u <c ■Z 3 (/ I 0 £ — T cc 1 a L — ct ct
ot v3 tó 3 a: 1 '< vj - <*-» xo 1 V ‘o z. <r T Q«J T.I W- iú LhJ 3 T <r
Ol V 3 <3 <3 __ S\h < •3 (¥ \A .0 -r sji vj 0i 1 1 < -J ’< T v> 6i
dí oc u. J o z UJ h- cr •z. a. cr 5T V 3 5 ~e( cr Z U! ví <X'- u. _) <c 3 L
< vA V- 0c fo V sU; kí 4 j œ V- Þ - z cÍ-4» il c\- t I 'o % • & <r
0' \J.©3 fas o _ .O < u. -O u "ST ct Z P 1 3] Zl 4> ~ -O (X m (X
•tá© % cvt cc i 1 V- - cr I 55 “> hT 31 - (X i U- U) t- z. cr
£5r <-i_ < u- <* •Z ct OL 1 I 10 oe - -J 1 >• <r .j 3 (V
i —> o t- < X. H o P C£) =o K 1 U- 'c> ~J <
VÍ-T. s'S-: <r- a: 5 \Ly- < i ^ a: gí cS ■MÍl hv- E&Sl§| 1 ■ f- i ‘ fF- 't V- Tg ’-áT
Á ALLRA síðustu árum hejur hægt
og bítandi verið unnið að ýmis
konar endurbótum og endurskoðun
á námsefni, ekki hvað sízt barna-
skólanna. Virðist þar harla gott
starf hafa verið innt af hendi, sem
miðar að því að gera efni og
kennslu fjölbreyttari og lífrœnni og
var ekki vanþörf á. Tilraunir hafa
verið gerðar með nýjar kennslu-
aðferðir í ýmsum greinum, tungu-
málakennsla reynd í tveimur efstu
bekkjum barnaskólanna og svo
mœtti væntanlega telja enn um
hríð. Raunar var ekki vonum
seinna, að menn rönkuðu við sér,
þar se?n vitað mál er að börn eiga
mun hœgar með að lœra undir-
stöðuatriði tungumála á unga aldri.
Þá var nú síðla sumars haldið nám-
skeið á vegum Skólarannsókna fyr-
ir þá kennara, sem gœtu hugsað sér
að sinna eðlis- og efnafrœðikennslu
í 5. og 6. bekkjum barnaskólanna
og er ég þá loksins komin að efn-
inu.
Frá sjónarhóli leikmanns ætti það
að vera kennurum í senn metnað-
armál og gleðiefni að fá endur-
gjaldslaust tækifæri til að auka við
þekkingu sína. Þá bregður hins veg
ar svo við, að þátttaka á þessu
námskeiði var í drœmara lagi. Að
vísu góð utan af landi en Reykja-
vík urkennarar fóru með heldur
skarðan hlut frá borði í prósentu-
tölu. Það munu því að öllum lík-
indum verða landsbyggðarbörn sem
fá í vetur meiri kennslu í þessum
greinum en börn á höfuðborgar-
svæðinu. Þegar skólastjórar nokkr-
ir voru að því spurðir, hvernig á
þessari slœlegu þátttöku stæði,
höfðu þeir þá skýringu á hraðbergi,
að vegna fyrirhugaðrar kennslu
sex ára barna myndi þrengjast til
stórra muna í öllum skólunum.
Aftur á móti yrði að taka hvorki
meira né minna en heila stofu und-
ir þessa kennslu og þessu væri
engan veginn hægt að koma heim
og saman. Nú held ég, að ekki hafi
verið œtlunin, að allir 5. og 6.
bekkir væru að lœra eðlis- og
efnafrœði baki brotnu allan dag-
inn, sennilega hefur ekki átt að
byrja með meira en eina eða tvær
kennslustundir á viku. Væri raun-
verulegur vilji fyrir hendi finnst
mér með ólíkindum, að ekki hefði
mátt rýmka til fyrir þessari
kennslu, til dæmis með því að láta
tvær eða þrjár bekkjardeildir vera
saman í eðlisfræðistund. Og þó að
kenrisla sex ára barna — sem er
ágœtlega jákvætt mál — setji að
sjálfsögðu dálítið strik í reikning-
inn, þá mun sá aldursflokkur naum
ast vera lengur í skólanum dag
hvern en eina eða tvær klukku-
stundir. Svo að það ætti ekki að
skipta sköpum.
Aðra skýringu, allfróðlega heyrði
ég líka á því, hvers vegna barna-
kennarar hefðu ekki sótt að marki
þetta námskeið. Sem sé þá, að þeir
gerðust þreyttir á að til þeirra
væru gerðar endalausar kröfur, til
alls væri œtlazt af þeim, án þess
þeir fengju neina þóknun fyrir.
Þessi skýring, sem ég vona, að sé
ekki tiltakanlega útbreidd, finnst
mér því annarlegri, þegar það er
haft í huga, að flestir þeir kennar-
ar, sem þarna eiga hlut að máli
munu vera fastráðnir. Það þýðir
aftur á móti að þeir þiggja laun
allt árið. Langflestir kennarar fá
sér aðra vinnu yfir sumarið og
verður því að vona að þeir hafi all-
góðar tekjur þann tíma. Er samt
til of mikils mælzt að þeir fórni
eins og hálfum mánuði — á aðeins
einföldu kaupi — til að sækja þessi
námskeið? Eru íslenzkir bama-
kennarar ekki metnaðarsamari en
svo og áhuginn ekki meira brenn-
andi á að uppfræða lýðinn, að þeir
geti ekki til þess hugsað að roissa
slík tveggja vikna laun.
Jóhanna Kristjónsdóttir.
4. aktóber 1970
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS J3