Lesbók Morgunblaðsins - 12.09.1971, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 12.09.1971, Síða 3
ÍSLENZK SKALDSAGNARITUN EFTIR 1940 - GREINAFLOKKI ÞESSUM LÝKUR HÉR Hvað ungur nemur SUNDURLAUSAR HUG- LEIÐINGAR UM BARNA- OG UN GLINGABÆKUR EFTIR ERLENI) JÓNSSON skemmtigildinu. En í þeim efn- um er ekki helduir s'legið af kröfunum. Gagnrýnisleysið varðandi ís- iemzkar bamabókmenntir hef- ur verið þeirra höfuiðverkur. í>að er ekki fyrr en nú á alilra siðustu áffum, að tekið hefur vea-ið að skrifa krítík um barna baekur i blöðin hér, og skipu- lega mun aðeims eitt dagblað- anna halda uppi slíkri gagn- rýtni. 1 stuttu máli má því segja, að bamabókahöfunda okkar hafi sikort jöfn.um höndum að- hald og hvatning. Hvort reynzt hiefur meira niðurdrep- andi, skal ósagt látið, en hygg, að látt hafi þar á hallazt. Bn hvert er þá hlutverk barn'abókmennta? Hver er til- ganguir þeirra? Hveirt hafa þær stefnt? Fyrst og fremst að skemimta, það er sá óhjákvœmi legi hlutur, sem lesandinn 'kretflst, en þar að auiki að ala upp og fræða (ég nefni ekki þann hvata, sem sameiginlega liggur að baki allri listrænnd sköpun, hveirju nafni sem hún nefnist). Lökustu barnabók- menntir okkar eru ekki lélegri en hið lakasta af öðru tagi rit- aðs máls. Og beztu barnabófta- höfundar okkar hafa sikapað si.gild verk, sem standa jafn- fætis úrvalsverkum i öðrum gæeinum. Samt er tjáningarfrelsi barnabókahöfundarins mun takmarkaðra en annarra höf- unda. FuI'Ioa'ðinsbóka höfund- ur g'etuir nú orðið sagt nánast hvað, sem honum dettur í hu.g, og þyki hann ganga fulllangt, er honum hægur vandinn að verja sig með þeirri röksemd, að verkið hafi krafizt þess, þvi listim er jú heilög. Hann getur leikið sér að hneyksla lesand- ann, ganga fram af honum. Það getur barnabókahöfundur- inn ekki. 1 siðferðilegum efn- um verður hann að fylgja ströngustu reglum á hverjum tíma. Af þeim sökum verður barnabökahöfundur að segja á rósamádi eða hlaupa með öítu yfir sumt, sem öðrum höfund- um þætti sjálffsagt að segja tæpitungu'lauist. Barnabók- mienntirnar mega ekki vera ,,hættu'legar“ að dómi þeirra, sem fjármagna bókakauipin, það er að segja fioreildranna, að öðrum kosti kæmust þær aldrei til lesendanna — barnanna. Þvi hafa ávalit verið óskráð iög bamabókahöfunda að kafa ekki dýpra en svo í leynd- ardóma llifsins, að siðprúðu&tu íbreldrar gœtu sætt sig við, og igegnir þá sama máli um bók- Sýnishorn af bókum fjögurra ágætra ar hókakápur eru einuig betur gerffar barnabókum barnabókahöfunda. Þess- en gengur og gerist á hér. ■miecnintir þær, sem eru ætiaðar stálpuðum unglingum. Verðd átök í sögu, skuiu góðu öfllin sigra, en hin verri hljóta mak- leg málagjöld eða — og það mun oftar gerast — taka sinna skiptum og ganga að lokum í lið með góðu öfjliunum. Sé sagt írá „s!kotum“ unglinga, er far- ið vægt í sakirnar og söguihietj- unum ekki leyft að ganga iengra en hæfa þykir fyrir opnum tjöldum á skóliaballi í sæmiiega ströngum skóia. Kossar eru tæpast leyfðir, svo daami sé tekið, hvað þá aivar- iegra flangs, aðeins dans og þétt handtök, en þeim mun meiri áherzla lögð á hlýtt hug- anþel og draumkennda aðdá- un, sem sagt „ást“, eða hvað? Varfærni höfundanna er skiljanleg. En kröfur hinna fuilonðnu eru í þessium efnum sem mörgum öðrum frumstæðs eðlis fremur en skynsamlegs. Þv>i hverndg mega bókmenntir, sem lýsa lífimu, eins og það er, rétt og undanbragðalaust eins og það kemur athugulum höf- undi fyrir sjónir, hvernig mega þær vera hættulegar? Hættu- legar eru þær bókmenntir ein- ar, sem afskræma veruleikann, lýta lifið úr hófd eða -— fegra! Lýsingar á hrottalegri mann- vonzku, sem á ekki eðlilega stoð í ií.fii venjuiegs fólks, eiga ekki erindi til barna og ungl- inga, enda mun þeim sjaldan boðið uipp á sllikt. En dísætar ástarsögur, þar sem veröldin er sett fyrir sjónir auð og köld, nema „sá réttd" eða „sú rétta“ íinnist, svo hvíla megi þaðan í fi'á á rósrauðuim beði við hlið hins alfullkomna draumaprins eða hjartadrottningar, eru ekki heldur liklegar tii að auka farsæld þeirra, sem lesa og trúa. Unglingsstúlkum stendur jafnan til boða gnótt slikrar lesningar. Lilfið er hvorki fábrotið né auðskilið, og ungu fóiiki er holit að átta sig á því í tíma. I verunni eru fáir annaðhvort algóðir eða al- lEir. Hið góða sigrar ekki aiQit- af fremur en hið iila. Og iiátt íól'k er í raunverulieikanum jafn hamingjusamt og elisketnd ur í eldhúsreyfara. Eða hver hefði tima og nennu tii að þreyja endalaust i þvi- líku draumalandi? Þvert á móti held ég, að skynsamlegt raumsæi henti börnum og ungiingum bezt, hvort sem það birtist í bein- uim realisma eða ævintýrum, sem feQa í sér dæmi. Margir fremstu höíundar heimsbókmenntanna hafa skróf að fyrix börn. Til að mynda mun ekkert nafn í dönskum bókmenntum þekktara í ver- öldinnd en H. C. Andersens, en hann var svo sannarlega dæmi- gerður barnabókahöfundur. T. S. Eliot, sá miklu modexn- isti, sem hef-ur haft meiri áhrif á nútímaljóðlist en nokkurt skáld annað, orti líka fyrir börn — Old Possum’s Book of Practical Oats. Jón Sveins- son (Nonni) skrifaði fyrir börn, en þó svo, að fullorðnir mega njóta. Fyrstur íslenzkra seinni tima höfunda mun hanm hafa orðið þekktur úti um heim. Hérlendis hafa allmargir höfundar fengizt við samning bamabókmiennta, og skulu þeir ekki taldir upp, enda íit- iilsverður nafnalisti, þó birtur væii; get þó ekki stildt mig um að nefna fáein nöfn. Stefán Jónsson lét eftir sig safn barnaskáldisagma, sem eiru mikiis virði, en hafa tæpast hlotið viðurkenning sem skyldi. Greindur og gegm mað- ur staðhæfði eimhverju simmi vlð mig, að hanm skrifaði ekki fyrir börn, heldur aðeins iim börm, en fyrir fuMorðna. Sú skoðun er hæpin. Að vísu kaf- ar Steflán djúpt ofan í sálliarláf söguihetja sinna og segir margt, sem börn mumu tæpast skilja á sama hátt og fuillörðn- ir. Bn samt er svo niangt i sög- um hams, sem skírskotar beimt til barna, að þau hl'jóta að Jónas Friðrik Á meðan sandurinn sáldrast uni byrðing og þóftu ég sit í lyftingu og bíð, en kófið að ofam rermur um þiljur, rýkur um seglið og fúnir HAUG- raftamir stynja. Senn mun lýsa um haug. En loks þegar festin fellur á gólfið og hetjan BUI íimliega klifrar niður, ég stend á fætur og strýk með höndunum stirðnaða, gamla limi, styrkist á ný. Því enn skal gengið í leik. En álög fylgja, því allir er síga í hauginn og ásæiast gullið, skulu haugbúann fella, en deyja annars og dauðir setjaist á þóftu. Draugur vill sigla. Brátt er ráðið á skip. 12. september 1971 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.