Lesbók Morgunblaðsins - 09.09.1973, Síða 2
mmÆM
Kanselliið eða Rauða byggingin á Slotshólma var byggð árin 1716-1721. Húsið er í barokstíl, gert af rauðum múrsteini á granitsökkli. Samanlögð lengd hússins er 144 metrar i
þremur álmum norður-austur-Suður. Listaverkið á framhlið þess er eftir J. Sturmberg, brjóstmynd úr marmara af Friðriki VI, fallbyssum hans, orrustufánum og skjaldarmerki. Húsið
er hið ytra nær alveg í upprunalegri mynd. í þessu húsi var stjórn allra mála íslands í tvær aldir. Til hliðar sér á Kristjánsborgarhöll, aðsetúr þings og stjórnar Danmerkur
. og þá afyður umbeðnu suspensation
áhrœrandi...."
Þœttir um Rentukammer
og Kansellí
Eftir Braga
Kristjónsson
i
Absalon biskup reisti virki sitt
á Slotshólma í Kaupmannahöfn,
þar sem áður hét Strandhólmur.
Á þessum sögufræga stað voru
lengi síðan konungshallir
Danaveldis.
Á Slotshólma í Kaupmanna-
höfn standa nú á litlu svæði
margar helztu byggingar i veldi
Dana. Þar er Kristjánsborgar-
höll, aðsetur þings og stjórnar,
firna mikil og þumbaraleg byg-
ging, búin fáum nútimalegum
kröfukostum.
Þar eru Hallarkirkjan," Kon-
ungsbókhlaða, Ríkisskjalasafn
og Kauphöllin. Safn höggmynda
Thorvaldsens. Handrita- og
skjaiasafn Arna Magnússonar. Á
Siotshólma eru mörg ráðuneytis-
hús og hallir, sum þeirra alda-
gömul. Safn Thorvaldsens og
Kauphöllin eru fagrar byggin-
gar, þö ólíkar.
Skáhallt gegnt gafli Kaup-
hallarinnar er rautt múrsteins-
hús, sem i fáu sker sig Ur þessum
misgömlu og þunglamalegu
byggingum. Þetta er „Rauða
byggingin", stofnun, sem fyrrum
var á íslandi fremur ræmd sem
Kansellíið og Rentukammerið.
II
Á þessum hluta hólmans var
um miðja 17. öld byggt veitinga-
og knattleikahús Henriks rentu-
meistara Míillers. Fór slík
starfsemi þar fram til ársins
1714, þegar kóngur keypti það
ásamt fleiri eignum á Slotshólma
til að reisa þar hús yfir sín ráðu-
neyti. Síðan voru vertshús brotin
niður og 1716 til 1721 var Kansel-
líið byggt. Höfundur bygging-
arinnar var húsameistarinn J. C.
Ernst.
Hún er í barokstíl, gerð af
rauðum múrsteini á granítsökkli.
Kostnaður varð um 70 þúsund
rikisdalir.
Byggingin er stór, þriggja lofta
og ris og kjallari. Hún er í
þremur álmum: norður, austur,
suður. Hvelfdur kjallarinn undir
byggingunni er talinn eldri, lik-
lega frá tíma knattieikastarfsemi
Miillers rentumeistara.
Aðalálman, sem liggur með
Slotshólmagötu er 60x18 metrar.
Norðurálman er 33x18 m og
suðurvængurinn 51x11 metrar.
í byggingunni voru upphaflega
mörg vönduð listaverk á loftum
og veggjum, máluð og ofin. Flest
hafa þau orðið mannlegri
skammsýni að bráð, annaðhvort
málað yfir þau eða rifin niður.
Nú eru í byggingunum
ráðuneyti innanríkis- fjár- og
viðskiptamála.
III
Or þessari gömrii byggingu var
öllum málum íslands stjórnað á
átjándu og nítjándu öld. Húsið er
rautt og mikið og æði þunglama-
legt. Yfir framhlið þess er lista-
verk J. Sturmbergs; mikil
brjóstmynd úr marmara af
Friðriki konungi sjetta, fall-
byssum hans, orrustufánum og
skjaldarmerki konungs. Gengið
um innri dyr frá Kristjáns-
borgarhöli eru á vegg tvö mikil
nægtarhorn og flæða úr þeim
gullpeningarnir. Fyrir innan
liorn þessi situr nú vörður hús-
©