Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.1974, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 13.01.1974, Side 12
Heyrðu Thorbjörn frændi Framhald af bls. 3 um þá hefur komið út í 102.500 eintökum hér í Noregi, en auk þess hefur hún komið út á öllum Norðurlöndunum, Englandi, Þýskalandi, ítaliu, Ungverja- landi, Japan og Bandaríkjunum. — Ég sendi þá félaga, segir Thorbjörn og bendir á brúðurnar Karíus og Baktus fyrst út í heim inn árið 1941. Þeir eru því rúm- lega þrítugir. Hver skyldi trúa þvi? Ég hef haft mikla ánægju af þeim og ég hef það eftir skóla- stjóra Tannlæknaháskólans hér, að tannskemmdir hafi minnkað eftir að sagan var flutt í leikrits- formi í útvarpinu. Vildi hann að leikritið yrði flutt einu sinni í mánuði. Þegar ég sendi söguna fyrst frá mér hurfu Karíus’ og Baktus niður um skólprörið í sögulok og enginn vissi hvað um það varð. Þessi endirþótti börnum of sorg- legur, því þeim þótti vænt um þá félaga. Ég bjó því til ný sögulok þar stm þair na sér i fleka úti á hafi. Sitja þeir þar og bíða eftir nýrri holu i tönn. 16 lesbækur Undanfarin 10 ár hefur Thor- björn Egner notað mikið af Vinnu- tíma sínum til þess að safna saman efni i lesbækur fyrir grunnskólann og myndskreyta það. Eru lesbækurnar nú orðnar 16 talsins og verkinu lokið. — Ég byrjaði á þessu verki með það fyrir augum að auka lestrar- áhuga skólabarna, segir Thor- björn. í lesbókunum er efni eftir fjölda marga höfunda, marga unga. Eru höfundarnir bæði inn- lendir og erlendir. Meðal þeirra siðarnefndu má til dæmis nefna Halldór Laxness og Stefán Jóns- son. Tek ég þátt úr Sölk.u Völku eftir Laxnessogsöguna Pésa eftir Stefán. Ég lauk við 16. og síðasta bindið f fyrra. Mér þótti gaman að leysa þetta verkefni, en þau árin, sem ég vann við það fékk ég lítinn tíma til að sinna öðrum verkefn- um. Hugmyndir hafa því safnast upp hjá mér og nú er ég að byrja að vinna úr þeim. Núna er ég að vinna sjónvarpsþátt um „Glöðu fjölskylduna", er það vísna- prógram innan ákveðins ramma. Vinur minn Klemens Jónsson heimsótti mig um daginn og 'tók heim með sér þetta prógram og hver veit því nema fslensk börn fái að sjá eitthvað til „Glöðu fjöl- skyldunnar" seinna. Glaða fjölskyldan Að svo mæltu stendur Thor- björn upp og nær í lítið senu- líkan, sem hann hefur sjálfur búið til. — Þetta er heimili glöðu fjöl- skyldunnar, segir hann. Það skemmtilega við þessa litlu senu, sem Thorbjörn hélt á, var hversu lik hún var hans eigin heimili. Ef til vill er það tilviljun ein, en í mínum augum var ekki svo. Glaða fjölskyldan er nefnilega einmitt rétt orðið yfir Egnerfjölskylduna. Og það sem meira var, þá var ég líka glaðari þegar ég kvaddi og gekk út úr bláa ævintýrahúsinu hans Thorbjörns Egner. ‘ BÍLAR mmm ASSO Njr bíll, sem vakíi sérstaka athygli á bila- sjningunni í Frankfnrt Á stóru bilasýning- unni í Frankfurt í Þýzkalandi, þar se/n sýndar voru árgerðir 1974 af hinum gamalgrónu bílategundum svo og einstaka „prótótýp- ur": Bilar, sem aðeins eitt eintak hefur verið gert af í tilraunaskyni, vakti þessi mesta athygli. Hér er um að ræða eins konar framtíðarspá bila- teiknara, en nýjungarnar eru þó einkum á ytra borðinu. Þýzka fyrirtækið Karmann er vel þekkt fyrir boddýhönnun og smíði. Draumabíllinn er til orðinn á þann hátt, að hjá Karmann tóku menn Audi 80, sem kjörinn var bill ársins úti í Evrópu í fyrra vegna tæknilegra kosta, en hjá Kar- mann var einungis notazt við vél, stýri, fjöðrunarbúnað, girkassa, drif og hjól úr Audi 80. Öll yfirbyggingin og inn- réttingin er teiknuð sérstak- lega og smíðuð fyrir þennan sýningarbíl, sem ber heitið Karmann Asso. í stórum dráttum er útlitið ítalskt fremur en þýzkt, en naumast þykir það ókostur. Línurnar eru ákaflega hreinar, næstum beittar, og útlitsins vegna hallast hliðar- rúðurnar geysilega mikið. Gluggapóstar eru yfirleitt grannir og útsýni mun betra en gengur og gerist úr bílum af þessu tagi. Tæknilega séð er hér nálega um sama bíl að ræða og Volkswagen Passat, þar sem Passat er byggður á Audi 80. Hinn ítalski svipur er engin tilviljun, því að aðal- teiknarinn er hinn ítalski Giugiaro. Þrátt fyrir góðar viðtökur er ekki búizt við, að þessi bíl I verði fjöldafram- leiddur í bili. En hann gefur samt hugmynd um þá stefnu, sem bílateiknarar eru i vaxandi mæli að taka upp og mun koma fram smám sam- an. Karmann Asso þykirfallega teiknaður innra. Allir mælar og stjórnhnappar eru í sívöl- um, ílöngum hólki. Innan á hurðina er smellt tösku, sem hægt er að losa og nota sjálf- stætt. Á myndinni af fram- endanum sést, hvað hliðar- rúðurnar hallast mikið. Vélin er að framan og framhjóla- drif.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.