Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1974, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1974, Page 8
Á ári hverju útskrifast dá- laglagur hópur af auglýsinga- teiknurum, teiknikennurum og nemendum úr frjálsri myndlist frá Myndlista- og handíðaskólanum. Sumirfara strax til framhaldsnáms er- lendis; aðrir hefja störf við kennslu eða auglýsingagerð. Oft er um það talað, að þetta unga og litt þekkta fólk fái ekki þau tækifæri sem skyldi. Þegar talað er um tækifæri i þessu sambandi, ervenjulega átt við skreytingar á opin- berum byggingum, en einnig og ekki síður hverskyns bóka- skreytingar, bæði á vegum ríkisins og einstakra útgef- enda. Þetta vandamál er raunar ofur eðlilegt. Eldri listamenn njóta þess að vera þekktir; menn vita nokkuð nákvæm- lega, hvers má af þeim vænta Það er að vonum, að útgef- andi leiti fremur til slikra manna i von um góðan árangur en þeirra, sem ný- sloppnir eru úr skóla og hálf blautir á bak við eyrun sakir æsku. Þetta hafa allar kyn- slóðir orðið að stríða við. En unga fólkið á vorum dögum virðist naumast hafa þolin- mæði til þess; það krefst þess, að verkefnin komi á silfurfati, þótt eldskírn reynslunnar sé eftir. Sumir telja það eitt af verk- efnum rikisins að koma á ein- hverjum jöfnuði í þessum efnum milli hinnar yngri og hinnar eldri kynslóðar mynd- listarmanna. En það hefur ekki orðið ennþá, sem betur fer liggur mér við að segja, því öll afskipti ríkisins af list- um eru með eindæmum. Svo langt er gengið, að ekki er Forsíður þjóðsagnaheftanna, sem út komu hjá Helgafelli og frá er sagt i greininni. einu sinni hægt að endur- greiða rithöfundum söluskatt af bókum án þess að úr verði hneyksli. En sú saga skal ekki rakin hér. Ef einhver hefur reynzt vel ungum listamönnum fyrr og síðar, þá er það Ragnar i Smára. Sem útgefandi hefur hann að ýmsu leyti gegnt því hlutverki, sem eðlilegt hefði verið að ríkisforlag eins og Bókaútgáfa menningarsjóðs hefði haft með höndum. Mikil happaverk hafa verið unnin á vegum Helga- fells gegnum tíðina og er mér þá efst i huga myndskreyttar útgáfur Brennunjálssögu og Laxdælu. Svo vel stóðu þeir Gunnlaugur Scheving, Þor- valdur Skúlason og Snorri Arinbjarnar að þessu verk- efni, að ég tel það hiklaust beztu verk i islenzkri bóka- skreytingu. Og mér er engin launung á því heldur, að ég tel teikningar Þorvalds Skúla- sonar í Brennunjálssögu með því merkara, sem gerzt hefur i islenzkri myndlist. En tilefni þessara hugleið- inga er raunar það, að Helga- fell hefur enn farið á kreik og gefið út fimm myndskreytt hefti úr þjóðsögum. Hér er á ferðinni kjörið verkefni fyrir myndlistarmenn, enda hafa Ásgrímur Jónsson, Muggur, Ásmundur Sveinsson og fleiri gert eftirminnilegar myndir úr þessum sagnasjóði. En i samræmi við tíðarandann hefur nú verið talið að ekki væri fært að ganga fram hjá þeim nýbökuðu. Þeir Hringur Jóhannesson og Þorsteinn frá Hamri hafa séð um útgáfu þessara hefta, en fimm ungir teiknarar völdu sjálfir sög- „Djúpir eru íslands álar". Tröllkonumyndin eftir Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur. Súrt og sœtt um nýja þjóö- sagna- útgáfu „Beiskur ertu nú drottinn minn". Hin sígilda kerling þjóðsagnanna. Teikning eftir Gylfa Gíslason. «►

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.