Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.1974, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.1974, Blaðsíða 2
Hér er greinartiöfundurinn, HallfrfS- ur GuSbrandsdóttir (Magnússonar fyrrum forstjóra Áfengisuerzlunar- innar) ung a8 árum. Myndin er raun- ar eftir heimilisvininn Kjarval, sem á þeim árum nefndi þessa ungu konu vinkonu sfna Bússfrollu. get ég trakterað Bússírollu" eða Öddu-Dfsu? Hann fann þó oft ekkert nema harðfiskbita, sem hann vildi endilega gefa mér. Eitt vorið minntist ég á, að nú væri kominn grammófónn og nokkrar plötur að Fagurhól, en þar var ég á sumrin í f jöida ára. Næsta dag kom hann með tvær plötur, sem hann vildi senda með mér í sveitina. önnur var tvísöngsplata Arna frá Múla og Péturs Jónssonar, hin var ftölsk með „Sole Mio“ og „Funiculi, Funicula". Þannig notaði hann hvert gefið tækifæri til að gleðja okkuröll. Þegar fallega Tove, sem mér fannst lík Kjarval, kom með Aase og Svein í heimsókn frá Danmörku, kom Kjarval alltaf með þau vestureftir. Þá lá vel á honum, hamingja hans skein úr andliti og fasi. Hann var öðruvísi en endranær. — Kjarval hringdi aldrei okkar dyrabjöllu: Hann gekk rakleitt inn I ytri forstofu. Þar staldraði hann við, leit inn um háan glugga á hurð innri forstofunnar og at- hugaði hvernig á stóð á heimilinu. Ef hann sá ókunna gesti, gekk hann oftast út aftur. Veturinn 1940 veiktist pabbi af lungnabólgu og lá nær dauða en lífi. í marga daga kom Kjarval mjög dapur í bragði kvölds og morgna og spurði: „Hvernig er líðan?'1 Þegar hann hafði fengið svar, var hann horfinn. Ég minnist ekki, að hann hafi notað mikið simann. Hver einustu jól kom jóla- kveðja frá Kjarvai, teikning eða lftið málverk, oftast af englum eða huldufólki. Einhvern dag jólanna birtist hann í dyrunum: „Gleðileg jól.“ BSR-bíllinn beið; hann vildi þá aldrei stanza. Pabbi gaf honum stundum konfaksglas. Aðeins einu sinni sá ég hannkenndanog þá fannst mér Hallfríður G. Schneider KJARVAL EINS OG EG ÞEKKTI HANN Árið 1926 dvaldi Kjarval hluta úr sumri hjá foreldrum mínum i Hallgeirseyjarhjáleigu, Austur- Landeyjum. Eg var á fimmta ári og á enn þrjár ljóslifandi minningar af honum frá þessum tíma. Við Oktavía Guðjónsdóttir, eina leiksystir mfn, vorum á góð- viðrisdegi að baka drullukökur í tröðunum. Kjarval gekk til okkar, settist á hækjur og fór að sýna okkur, hvernig við gætum skreytt kökurnar á margvislegan hátt, en við höfðum aðeins notað fífla og sóleyjar. Hann kallaði hundasúrufræin hnetur. Hann beygði strá og blöð og felldi þau eins og harmoniku og jafnvel reif myndir úr þeim, m.a. skútu. Loks bjó hann til stóra flatköku, þrýsti á hana burkna, sem hann hafði leitað uppi og sagði: „Þetta á ekki að borða, þetta er platti." Hann stóð oft við trönur uppi á túni og málaði sjóndeildarhring- inn og heimilisfólk. Eitt sinn þegar við krakkarnir komum til hans.tók hann mig á háhest og ég varð óttalega lofthrædd. Hann hélt fast um ökklana á mér og sagði mér að taka utan um háls- inn á sér, en það vildi ég ekki. Ég reyndi að snerta ekki þunna hárið, sat stifog hélt mér i axlar- bönd og skyrtu. Hann fór af stað, fyrst fetið, svo skeið og tölt, en síðast brokkaði hann og stökk með ósköpum. Ég æpti af ánægju og hræðslu og uppgötvaði þegar hann stoppaði, að ég var búin að taka utan um hálsinn á honum. Kjarval glettist mikið við okkur krakkana. En á þessum tíma var mér miðlungi vel við hann, því að hann strfddi mér. „Hver er uppáhaldskakan þín, Bússírolla?", það var gælunafn hans á mér, þar sem ég var stutt og þybbin. „Hlandkaka," svaraði ég mikið smámælt. „Hlandkaka?" endurtók hann. „Nei, hland- kaka,“ ég reyndi af allri getu að násinu en tókst ekki. Þá klappaði hann vinalega ákollinn ámér. A fimmta afmælisdegi mfnum var mér færður pakki frá Reykja- vík í rúmið. Þvílík dýrð. Kjarval sendi mér sandköku með glassúr, stráðum marglitum sykurhorn- um. Enn í dag man ég bragðið, sem ég fann fyrir 46 árum, og mér finnst ég aldrei hafa fundið það eða betra bragð síðan. í pakkan- um var líka hvít handtaska með rauðum rósum. Aldrei hafði ég séð neitt eins fallegt — hér læt ég fylgja, þó að það komi ekki Kjar- val við, að ég klæddi mig í flýti og hljóp eins og fætur toguðu bekkjastíf luna austur að Hallgeirsey. Eg hljóp inn í bað- stofuna á austur-bænum. Þar lá Oktavía í rúminu, kafrjóð í fram- an með blautan þvottapoka á enn- inu. ,Bjáðu fínu töskuna, sem Kjarval sendi mér,“ sagði ég hróðug. En Oktavia opnaði aldrei augun, þó að ég héldi áfram að halda töskunni á loft. Ég fór fýld heim. Þegar hún dó úr heilabólgu fáum dögum seinna og öll sveitin grét, kom mér ekki tár í auga. Ég hugsaði: „Hún vildi ekki líta á fínu Kjarvalstöskuna mína.“ Þegar við vorum flutt til Reykjavikur — „með börn og málverk" eins og mamma sagði — var Kjarval tíður gestur. Stundum kom hann með hákarl handa pabba, með í soðið til mömmu og með „Kongen af Danmark" eða „Brenndan Bismark" handa okk- ur krökkunum! Mömmu, pabba og Kjarval þótti svo innilega vænt hvert um annað. Mamma sagði oft, þegar maturinn var góður, t.d. kæst skata: „Núætti Kjarval að vera kominn í mat.“ Og pabbi sagði: Ég hef ekki séð Kjarval um tíma. Vonandi er hann ekki lasinn." Þeir birtust ósjaldan fyrir Bræðraborgar- stfgshornið risavaxni Kjarval, teinréttur, örugg- ur í göngulagi, með hendur í vösum og hattinn aftur á hnakka eða ofan í augun, trúlega eftir því, hvernig á honum lá, pabbi, lágur og léttur, dansandi i kringum hann með hatt á hendi og handleggina í sveiflum. Og all- ir voru ánægðir að sjá hann. Eftir matinn kveikti hann sér í síga- rettu eða vindli, opnaði munninn upp á gátt og blés út stórum hringjum, sem við krakkarnir stungum fingri i. Stundum fékk ég að fara með pabba upp á efstu hæð í Austur- strætishúsinu, þar sem Kjarval bjó undir súð. Þar stóðu málverk- in í þyrpingum uppi við veggi; bökin sneru fram. Alltaf byrjaði hann með bví að segja: „Hvernig Hallfrlður G. Schneider er umfrarn allt íslendingur, þótt hún hafi um þriggja áratuga skeið búiS erlendis. Hér er hún á peysufötum, sem hún lét sauma á sig um það leyti er hún fluttist utan.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.