Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.1974, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.1974, Blaðsíða 12
UVM.T Eftir Ean O’Faolain ALLT frá því um miðja síðustu öld hefur verið stöðugur straum- ur flóttamanna frá írlandi. Ég held ég fari ekki orðavillt. Hinn mikli útflutningur írskra manna uin og eftir 1850 var ekkert annað en skipulagslaus flótti undan hungurdauðanum. Á þessum hundrað árum fækkaði Írum úr 6—7 milljónum i tæparþrjár. Við írar héldum því alltaf fram, að þessi blóðtaka væri eingöngu að kenna erlendri óstjórn. Við hétum því að fengjum við heima- stjórn, skyldi þessu. fljótlega linna. Árið 1946, þegar heimastjórn hafði verið við lýði i aldarfjórð- ung, athuguðum við stöðuna aftur og brá heldur betur í brún. Tölur sýndu, að enn hallaði undan fæti. Einhverju öðru var um að kenna en erlendri óstjórn. Og ekki birti yfir okkur þegar kom á daginn, að jafnframt því, sem írar fluttust í stórhópum til Englands, flykktust Englendingar til Írlands og keyptu þar hús og jarðir í stórum stíl. Til þess að sporna við þessu skatt- lögðum við alla erlenda kaupend- ur fasteigna i irlandi. En síðan eru liðin sjö ár og enn höfum við ekki gert okkurljósar ástæðurnar fyrir hingnun þjóðar okkar. Það er fátækleg huggun, að við munum trúlega aldrei verða aldauða. Það þýðir aðeins, að okk- ur hnigni hægt en glæsilega. Það er heldur engin huggun, að með stöðugri fæðingartölu undanfar- inna ára, munum við varla fara niður fyrir tvær milljónir fyrr en eftir fimm mannsaldra eða svo. Þegar svo væri komið gætum við hvorki fætt okkur né klætt eða varið. Ein ástæðan fyrir hung- ursneyðinni um miðja siðustu öld var mannfjöldi. Verður e.t.v. hungursnevð vegna mannfæðar um míðja næstu öld? En hverjar eru algengustu skýr- ingar okkar á stöðugri fækkun þjöðarinnar? Sú vinsælasta er landflótti. Flestir útflytjendur fara til Bret- lands. Það kemur sér ágætlega í atvinnuleysinu hér heima. En færi svo, að atvinnuleysi yrði i Bretlandi, mundu þeir streyma hingað aftur og krefja okkur um atvinnuleysisstyrk. Slíkt gæti valdið hreinni upplausn í þjóð- félags- og efnahagsmálum. Önnur skýringin eröllu grófari. En hún er sú, að Írar deyi aldrei, heldur eldist þeir aðeins þar til þeir gufa upp. Um það bil séú börn þeirra komin á þann aldur, að lífið sé gengið þeim úr greipum Álgengt dæmi um þetta er gamall bóndi, sem neitar alger- lega að fá sonum sínumjörðina til eignar og ábúðar. Þegar þessir kallartala um ,,strákinn“ sinn, má treysta því, að strákurinn sé kom- inn undir fimmtugt. Ekki alls fyr- ir löngu 'voru tveir bræður. annari sexlugur, en hinn hálfsjötugur leiddir fyrir rétt og sakaðir um óspektir á almannafæri. Það korr) á daginn, að þetta voru „strák- ar“, sem bragðað höfðu vín í fyrsta sinni hið umrædda kvöld, af því pabbi þeirra var dáinn, langt fyrir aldur fram, níutíu og tveggja ára, og þeir höfðu loksins ætlað að njóta fengins frelsis. Afleiðingar þessarar togstreitu ungra og gamalla eru m.a. síðbúin hjónabönd, lág fæðingartala og almenn mannfækkun, að maður nefni ekki lítil afköst aldraðra. En þetta er jafnframt undarleg- asta skýringin. Því það er stað- reynd, að það unga fólk, sem heita má fjárhagslega óháð, giftist held- ur ekki fyrr en á miðjum aldri. Ríkið grátbiður það að ganga í hjónaband. Kirkjan sömuleiðis. En það hristir bara höfuðið. Og hér er komið að kjarna málsins. Gagnvart þessari tregðu standa allir ráðalausir, stjórnmálamenn, kirkjunnar menn og tölfræðingar. „Hví í ósköpunum gerið þið okkur ekki til geðs óg giftið ykkur, árans gemlingarnir ykkar?“ spyrjum við. Hér á eftir fara nokkur svör unga fólksins. Eg reit grein um hjónabönd á irlandi ekki alls fyr- ir löngu og pósturinn hafði nóg að gera næstu dagana. Lítum fyrst á það, sem ungu mennirnir hafa að segja um stúlkurnar. Þeir ætlast ekki til ástar, rómantíkur, ástríðu, fegurðar, félagsskapar, persónu- töfra, andríkis eða gáfna. Þeir vilja kvenmann, sem getur eldað handa þeim mat, stoppað í sokk- ana þeirra og gengið þeim i móð- urstað. Og þeir virðast mjög efins um það, að írskar stúlkur nú á dögum uppfylli þessi skilyrði al- mennt. Hér talar einn þeirra: ,,Eg er þrjátíu og átta ára pipar- sveinn. Mér liggur ekkert á að kvænast. í september næst kom- andi fer ég í sumarfri til Lisdoonvarna. Þar sting ég því að prestum, sem ég hitti, að ég sé ókvæntur, eigi svolitið í handrað- anum, og sé á höttunum eftir stúlku, en hún verði líka að eiga eitthvað í handraðanum. Prest- arnir fara á stúfana og láta fregn- ina berast. Að nokkrum tíma liðn- um hefst uppi á stúlku, sem er reiðubúin og þar með er málinu borgið. Um jólin heimsækir fjöl- skylda mín ættingja hennar og þeir ganga úr skugga um það, að ég sésæmilegurmaður. Á páskun- um hitti ég svo stúlkuna aftur. Svo giftumst við að hæfilegum tima liðnum. Setjum svo, að ég verði þá fertugur. Ég er handviss um það, að eftir tuttugu ár verð- um við hjónin hamingjusamari en nokkur jafnaldra hjón, sem gift- ust unt tvítugt af því, sem þeir í Hollywood kalla ást, en er bara lostafullt æði. . í þessu bréfi eru tvö mann- fræðileg merkisatriði, eftir- tektarverð þeim, er rannsaka vilja írskt ástalíf. Maðurinn krefst þess, að brúður hans eigi eitthvað í handraðanum. Þá telur hann hæfilegan giftingaraldur sinn fjörutíu ár, en nefnir ekki æskilegan aldur brúðarinnar. Hann þyrfti varla að óttast barna- fjöldann ef hún hugsaði eins! En írskir piparsveinar sækjast eftir ungum stúlkum — og virðast fá þær. Við skulum minnast þess, að í írlandi eru karlar fleiri’en konur. Auk þess reiða margir sig á það, að konur verði að giftast ungar — áður en fegurð þeirra fölni. Karl- menn hafa aftur á móti timann fyrir sér.. Þó eru sumir á annarri skoðun. Ungur maður skrifar: „Ungar, frskar stúlkur nú á dögum eru málaðar, púðraðar og uppstoppaðar gæsir með rándýrs- klær, en ekki neglur. Aðdáun þeirra á kvikmyndahetjum jaðrar við FÁVITAHÁTT. Sagt er, að latir hestar og ferðmiklar konur geti komið hverjum, sem er, á vonarvöl. Við skulum sleppa hest- unum, konurnar eru einfærar um þetta. Hverjum manni með fullu viti er hjónáband sama og fjöl- skylda og ábyrgð. Menn þurfa áreiðanlega að vera bilaðir til að kvænast þessum skjátum. Hjóna- band er háalvarlegt fyrirtæki, en ekkert grín. írskar stúlkur virðast alls ekki gera sér grein fyrir þessu.Ég ætla svo sannarlega ekki að stíga í snörur þeirra. Ég ætla að hugsa mig rækilega um en flana ekki að neinu. Hjónabandið er ævilangt. Það ætti að vekja hvern mann til umhugsunar. . .“ Ogfleiri eru sama sinnis: „Ég er piparsveinn og fæ ekki séð, að breyting verði á því næstu árin, nema guð líti til mín f náð sinni. Það er ekki hægt að ætlast til þess af stúlkum nú á dögum, að þær þvoi af manni föt- in, eldi og ,ali upp börn. Þær hugsa ekki ‘úm annað en prjál og skemmtanir. Og um peninga hugsa þær líkt og Rockefeller. Fyrir skömmu síðan leit ég stúlku eina fremur hýru auga. Kvöld eitt bauð ég henni út ásamt vinstúlku hennar. Eg vissi ekki fyrri til en við vorum setzt inn á bar. Mér fannst ég verða að bjóða dömunum upp á drykk. Mér datt ekki i hug, að þær mundu biðja um annáð en gosdrykk. En nei takk. Önnur heimtaði gin, en hin kampavín. Ég er vélvirki. Þau dygðu skammt launin mfn með þessu áframhaldi, er ég hræddur um. Og þetta er ekki sérlega væn- legur undirbúningur undirhjóna- band.Stúlkurnar geta sjálfum sér um kennt, ef þær ganga.seint út. Óhemjuskapurinn fælir menn frá..“ Skemintilegust þykja mér elli- mörkin á þessum bréfum: Síðasti bréfritari er raunar alls ekki nútímamaður, nema í þeim skiln- ingi, að allir írar nú á dögum séu evrópskir miðaldamenn. Allar þessar árásir á kvenkynið eru nýj- asta innleggið í gamla og vel- kunna herferð. Til hægðarauka getum við flett upp í Rabelais eða Jean de Meung. En umkvartanir stúlknanna eru furðu svipaðar hínum. Þær segja karlmennina framtakslausa, sjálfselska og spillta af eftirlæti mæðra sinna. „Ég var að lesa álit karlmann- anna á konunum. Að mínu viti eru írskir karlmenn samsafn af átvöglum, bjórvömbum og dans- fíflum. Iíér í landi er algert karlmanna- veldi, allt er sniðið við þeirra hæfi — spilamennska, verðhlaup og stangaveiði, það eru skemmtan- irnar. Þvf er hreint ekki til að dreifa, að ungir írar hafi ekki efni á þvi að kvænast. En kvænist þeir verða þeir máski að selja bílana sina og gefa veðmálin, pókerinn, golfið og sumarfríin upp á bátinn. Þeir vega þetta og meta — og ákveða að kvænast ekki. . .“ Þetta um irska mömmudrengi: „írskir karlmenn nú á dögum eru mömmudrengir upp til hópa. Heima hafa þeir allt til alls, og sjá því ekki ástæðu til þess að fara þaðan. Mæður þeirra þræla fyrir þá og þeir ætlast til þess, að Framhald á bls. 16. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.