Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.1974, Blaðsíða 11
hafa öll hin vitnin verið þessu
sammála og er ekki skráð sérstak-
lega, hverju þau hafi svarað hvert
fyrir sig. 72. spurning: „Því er
þeim það torvelt?" Páll svarar:
„Þvi sumir vilja ei leggja sig út
við kaupmanninn. Aðra vantar
forstand og framkvæmd þar til.
Einn partur vill heldur þola nokk-
urn ójöfnuð en að spilla tið og
peningum upp á óvissan ávinning
eður sigur.“ Sams konar svar hafa
öll vitnin gefið.
Gullbringu-
og Kjósarsýsla.
Þingsvitni um verzlun á Bás-
endum, Grindavik, Keflavík,
Hafnarfirði og Hólminum voru
tekin i einu í Kópavogi 3. ágúst.
Úr Básendahéraði var eitt vitni,
úr Grindavikurhéraði tvö vitni, úr
Keflavikurhéraði eitt vitni, úr
Hafnarfjarðarhéraði fjögur vitni
og af kaupsvæði Hólmsins voru
fimm vitni. Spurningar voru sam-
tals 19.
14. spurning hljóðar samkvæmt
þingsvitninu sem hér segir:
„Hvört er ei bændum torvelt
að kl'aga kaupmann, ef hann
gjörir þeim rangt og hvar í
það bestendur?" Annað Grinda
vikurvitnið, Hörtur Magn
ússon Hópi, „segist ei hafa
forstand að svara til þessa
spursmáls" eins og stendur í
þingsvitninu. Hitt Grindavíkur-
vitnið, Vilhjálmur Árnason Járn-
gerðarstöðum, svarar: „Það er
flestum torvelt; fyrst að þeir hafa
ei vit til þess eður framkvæmd;
því næst líði þeir stærri skaða á
sinni atvinnu og erfiði að leita
yfirvaldsins, sem búa langt frá
þeim, og uppihaldist svo aðrir og
mæðist með réttargangi samt
þeim olelegheitum er hann með
sér færi.“ (olelegheit þ.e. óþæg-
indi). Vitnið úr Básendahéraði
var Guðni Sigurðsson sýslumaður
og kvað hann fátækt og kunnáttu-
leysi valda því, að bændum mundi
erfitt að ná rétti sínum gagnvart
kaupmanni. Rafn Jónsson Auðn-
um,Hafnarfjarðarhéraðisagði, „að
(það) sé bágt fyrir fátækan og
fáfróðan alrnúga", eins og svar
hans hefur verið fært í þingbók-
ina. Annað Hafnarfjarðarvitni,
Halldór Teitsson Vatnsleysu,
svaraði, að „þeim (þ.e. bændum)
bagi þar til bæði fáfræði, fátækt
og framkvæmdaleysi, samt
yfirvaldsins fjarvera; menn
nái ei heldur altið vitnum, sem
slíkar sakir upplýsa kunni.“
Þriðja vitnið úr Hafnar
fjarðarhéraði, Tómas Hans
son Sviðholti, svaraði, að „þeim
(þ.e. bændum) bagi þar
til bæði fáfræði, fátækt
og framkvæmdaleysi".
Fjórða vitnið úr Hafnar-
fjarðarhéraði Þórður Þorsteins-
son Sviðholti svaraði eins og Tóm-
as. — Þorbjörn Bjarnason Skild-
inganesi úr kaupsvæði Hólmsins
svaraði: „Það er bændum stórlega
torvelt; sumir svo fátækir, að ei
hafa peninga til þess uppákostn-
aðar; sumir svo hræddir, að þeir
þora ei kaupmanninn að klaga,
því órétturinn skeður við þá oft-
ast, sem fátækir og lítilmagnar
eru.“ Hin vitnin af þessu kaup-
svæði voru Þorkell Þórðarson
Þerney, Ölafur Jónsson Bakka,
Þorvaiður Einarsson Brautar-
holti og Oddur Jónsson Eiði. Þeir
svöruðu allir eins og Þorbjörn í
Skildinganesi að því undanskildu,
að litilsháttar orðamunur er á
svörunum.
Bíldudalur...
Þingsvitni um verzlun i Bíldu-
dalshéraði voru tekin að Bíldudal
11. sept. Vitni voru átta og
spurningar nítján. Svörin voru
færð þannig, að dregið var saman
i eitt svar við hverri spurningu,
það sem kom fram hjá vitnunum.
Ein undantekning er frá þessu:
Svörin við spurningunni um rétta
vigt á fiski eru færð i heild, hvert
vitni fyrir sig.
12. spurning er hér skráð á
þessa leið: Hvort bændum er ei
torvelt að klaga kaupmann, ef
hann gjörir þeim órétt, eða hvarí
það bestendur.”
Svör vitnanna eru i samantekt
þingbókarinnar á þessa leið:
„Stundum séu sýslumenn oflangt
frá, — stundum hafi þeir ei Sv'o
vitni, þó þeir vildi, en í öngvan
máta hafi sýslumaður Ólafur for-
sómað rétt að gjöra.“ (Ólafur
Árnason ’sýslumaður Barða-
strandarsýslu.)
Patreksf jörður.. .
Þingsvitni um verzlun á Pat-
reksfirði voru tekin að Vatneyri
15. sept. Vitni voru tíu og spurn-
ingar nitján. Svörin eru færð á
sama hátt og i þingsvitninu frá
Bildudal. 12. spurning hefur ver-
ið skráð sem hér segir: „Er bænd-
um torvelt að klaga kaupmann, ef
gjörir rangt og livarí það bestend-
ur.“ Svarið í samantekt þingbók-
arinnar er: „Þeir (þ.e. BÆND-
UR) viti það ekki; það hafi ei
verið til þess reynt.“
Dýrafjörður...
Þingsvitni um verzlun á Dýra-
firði voru tekin að Meðaldal 23.
ág. Vitni voru sextán og spurn-
ingar einnig sextán. Tólfta spurn-
ingin er færð sem hér segir:
„Hvert ei er bændum torvelt
að klaga kaupmann, ef hann gjör-
ir þeim rangt til og hvarf það
bestendur)“
Fyrsta vitni, Sigurður Jónsson
Hóli, svaraði: Kaupmenn að
klaga, þó sér órétt gjört hafi, hafi
hann ei vegna fátæktar og fáfræð-
is getað.“ Annað vitni var Stein-
þór Jónsson í Hjarðárdal, og
kvaðst hann ekkert hafa að segja
viðvíkjandi þessum spurningum,
því að hann hefði ekki komið í
kaupstað í sjö rá. Þriðja vitni var
Bjarni Nikulásson á Hóli og svar-
aði hann 12. spurningu eins og
Sigurður Jónsson hafði gert.
Fjórða vitni var Jón Jónsson, en
hvar hann hefur búið, er ekki
ljóst. Meðal vitnanna eru þrír
Jónar Jónssynir og hefur
láðst að greina þá sundur með
bæjanöfnunum, er svör þeirra
voru færð í þingbókina. Svar
þessa fyrsta Jóns Jónssonar var:
„Segir sér þyki óhægt kaupmenn
að klaga vegna fátæktar og fá-
fræðis, þó allan rétt yfir þeim
kunni fá hjá sýslumanni."
Fimmta vitni var Jón Bjarnar-
son Völlum, og svaraði hann eins
og Jón Jónsson. Sjötta vitni var
Eggert Jónsson, og svar hans er
fært sem hér segir: „Kaupmenn
að klaga þyki torvelt bæði vegna
fátæktar, veikleika og fáfræðis,
en þykist þó vita, að ef klaga
þyrfti, fengi allan rétt og aðstoð
hjá sýslumanni.“
Næstu níu vitni svöruðu eins og
Eggert Jónsson og voru það eftir-
taldir bændur: Skúli Magnússon
Sveinseyri, Ölafur Bjarnason
Haukadal, Jón Þorsteinsson Kjar-
ansstöðum, Jón Jónsson (Botni?)
Jón Jónsson (Efstabóli?), Bjarni
Arnórsson Hvammi, Ölafur Jóns-
son Hvammi, Olafur Sigmunds-
son Gerðhömrum og Niels Jóns-
son Hrauni. Sextánda og síðasta
vitni var Magnús Björnsson á
Núpi, og svar hans er fært þann-
ig: „Kaupmenn segist hann klaga
kynni, ef sér órétt gjörðu svo vel
sem aðra, því hann viss væri, að
sýslumaður mundi sé tilhlýðileg-
an rétt gjöra, ef yfir þeim klag-
aði.“
Þingsvitni um verzlun i ísa-
fjarðarkaupstað voru tekin 20.
águst að Tungu í Skutulsfirði.
Vitni voru sextán og spurningar
fimmtán. Tólfta spurningin er
færð sem hér segir: „Hvert ei er
bændum torvellt að klaga kaup-.
mann, ef hann gjörir þeim rangt
og hvari það bestendur.“
Fyrsta vitnið var Jón Jónsson
lögréttumaður og er svar hans
fært sem hér segir: „Þó kaup-
menn hafi sér órétt tilgjört, hafi
hann samt um hásumardaginn og
gangsemdartimann þá þar fyrir
eigi getað klagað og rétt yfir þeim
heimt, þar bæði, þeir kaupmenn-
irnir svo stuttan tíma verið hafi
við höfnina, sér og þar með hindr-
un orsakast kynni um svo stuttan
gagnsemdartíma, en vonar þó
samt állan rétt fengið mundi
hafa, ef um kvartað hefði.“
Næsta vitni, Þorlákur Jónsson,
svaraði: „Vegna fátæktar og fá-
fræðis segist hann ei kaupmenn
klagað hafa þó orsök þar til hafa
kunni.“ Þriðja vitnið var Bjarni
Jónsson og svar hans er fært sem
hér segir: „Að klaga kaupmenn,
þá sér af þeim óréttur kunni
gjörður vera, þykist hann ei til
fær vegna fátæktar og kunnáttu-
leysis; þykist þó víst vita sér rétt-
ur yfir þeim gjörður kynni verða
af sýslumanni, ef nauðsyn þar til
verið hefði, sem þó engin ske hef-
ur að undanteknu þvi, sem i nr. 8
áður er sagt. En af fyrrum kaup-
mönnum hingað komnum segist
hann ei í öllu í haldinu vera um
kaup og sölu, hverju hann þó hafi
orðið að sleppa vegna sinna at-
burðaleysis þar um að kvarta.“ 8.
spurning- (nr. 8), sem Bjarni
nefnir, fjallaði um innveginn fisk
og hér taldi hann sig órétti beitt-
an.
Næsta vitni var Jón Sigmúnds-
son og svar hans er fært sem hér
segir: „Vegna fátæktar og fáfræð-
is þykir honum sér öhætt að klaga
kaupmenn, þó órétt gjöra kunni,
jafnvel þó vita megi allan sinn
rétt yfir þeim fá megi.“ Næsta
vitni varlsleikurGuðmundsson og
svar hans er fært sem hér segir:
„Vegna fátæktar og fáfræðis
meinar hann fyrir sig og aðra
mjög torvelt vera að færa process
móti kaupmönnum, jafnvel þó all-
an rétt viti sig fá mega yfir þefin
af sýslum anni.“
Næsta vitni var Jón Ölafsson og
er svar hans fært sem hér segir:
„kaupmenn þykist hann ei fær
vera að klaga, þó sér órétt gjöra
vildu, sem hann þó ei segist reynt
hafa bæði vegna fátæktar og fá-
fræðis; annars teldi sér allan rétt
af sýslumanni að fá yfir þeim.“
Næsta vitni var Jón Sigurðsson
og svar hans er fært sem hér
segir: „Kaupmenn að anklaga sé
óhægt og torvelt sér einungis
vegna fátæktar og vitsmunaleysis
þar til, þótt orsök til hafa kynni,
sem þó engin verið hafi“. Næsta
vitni var Jón Jónsson og hann
spurður: „Að anklaga kaupmenn
fyrir verdsligum rétti sýndist hon
um hin mestu óhægindi bæði
vegna fáfræðis og fátæktar. þó
allan rétt yfir þeim fá kynni, ef
fyrir sýslumanni væru angefnir."
Næstu vitni voru Þórður Pálma-
son, Jón Örnólfsson, Sigurður
Jónsson, Þorleifur Jónsson, Jón
Þorkelsson, Þorkell Jónsson og
Gfsli Eyjólfsson. Samkvæmt því,
sem skráð hefur verið um fram-
burð þeirra, hafa þ’eir svarað
spurningunni eins og undanfar-
andi vitni, og er þá ekki skilgreint
nánar, hvaða undanfarandi vitni
það hafi verið.
Skagaströnd.
Þingsvitni um verzlun á Skaga-
strönd voru tekin 30. ágúst að
Sveinsstöðum. Vitni voru tuttugu
og eitt og spurningar nitján.
Tólfta spurningin er færð sem
hér segir: „Hvort ei sé bændutn
torvelt að klaga, ef kaupmaður
gjörir þeint órétt og hvarí það
bestendur?" •
Framhald á bls. 14.