Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Qupperneq 6
Í^ÍTTflf. Liststefnur rísa og hniga, listamenn koma og fara og samtiminn hefur oft reynzt ærið glám- skyggn á gildi þeirra. Svo nátengdur er hver listamaður verkum sinum á meðan hann lifir, a3 hann getur haft úrslitaþýSingu um jákvætt eða neikvætt mat samtíma síns. Þeir listamenn hafa alltaf verið til, sem búa yfir slíkum per- sónutöfrum, að þeir hljóta að varpa birtu á verk höfundarins og þau njóta þess á meðan hann lifir. En þegar listamaðurinn er ekki lengur ofar moldu til að bregða „stórum svip yfir dálitið hverfi" eins og Einar Benediktsson sagði, þá standa verkin ein og óstudd. Þá reynir fyrst á, hvort þau standast tímans tönn, eða hvort þau gleymast. Hitt er svo líka til, að listamenn séu innhverfar persónur, sem kjósa að fara með veggjum og vinna í kyrrþey fremur en að skapa umtal og vekja eftirtekt í sviðsljósinu. Einar Jónsson myndhöggvari var einn þeirra listamanna, sem kjósa að hafa hljótt i kringum sig. Ekkert hefði verið fjær honuni en að vekja athygli á list sinni með einhverskonar trúða- brögðum. Hann varð á engan hátt þjóðsagna- persóna eins og Jóhannes Kjarval og síðan hann dó fyrir tveimur áratugum hefur verið hljótt, bæði um manninn og verk hans. Sama má raunar segja um Davíð Stefánsson, sem fyrirfáeinum áratugum kom margri rómantiskri sál til að gráta af hrifningu. En varla er ástæða til að hafa áhyggjur af því; sá timi kemur, að verk svo ágætra listamanna finna aftur hljóm- grunn. Stundum hafa pólitísk öfl hafið minn- ingu einstakra listamanna til skýjanna og mætti benda á Jóhannes úr Kötlum í því sambandi. En jafnvel slíkur stuðningur er ekki einhlítur uppá seinni tímann. Við minnumst þess nú, að hundrað ár eru liðin frá fæðingu Einars Jónssonar. Flestir vita, að verk hans eru geymd í Hnitbjörgum á Skólavörðuholti, en tiltölulega fáir leggja leið sína þangað. Það er eitthvað fráhrindandi við þetta hús; það er grafhýsi likást að innan og verkin gjalda þess fremur en njóta að vera þar. Vonandi verður einhverntima hægt að draga þau fram i dagsfjósið í bókstaflegum skilningi og kynni þá mörgum að verða Ijóst, hver fjár- sjóður er fólginn í lifsstarfi Einars. Þótt ég sé á engan hátt sáttur við allt það, sem Einar Jónsson lét eftir sig, finnst mér beztu verk hans rísa firna hátt yfir þá meðal- mennsku, sem mest er lofsungin á vorum dögum. En litil stoð er í þvi hvað mér eða öðrum finnst á þessari stundu. Aðeins tuttugu ár eru liðin síðan Einar dó, og sá tími er langt of skammur til þess að verk hans verði skoðuð af sjónarhóli sögunnar. Hitt er svo annað mál, að vel er við hæfi á þessu þjóðhátiðarári að gera veg Einars meiri en hann hefur verið með þjóðinni til þessa. Varla er hægt að verjast þeirri hugsun, að samtími Einars hafi ekki verið honum hall- kvæmur. Vegna staðfestu sinnar, ákveðinna viðhorfa og andúðar á tízkustefnum, komst Einar að einhverju leyti i andstöðu við starfs- bræður sína í myndlistinni. Þeir misskildu hann og hann hefur kannski líka misskilið þá. Ég man vel, að þegar ég var að fá hvolpavit í listrænum efnum, þótti haldbært að afgreiða Einar með því, að hann apaði eftir Thorvaldsen. Ekki hefur nú verið skyggnzt djúpt undir yfir- borðið þar. Á ytra borðinu minnir tæknileg útfærsla einstakra atriða i myndum Einars á Thorvaldsen. En það, sem að minni hyggju staðfestir mikið djúp milli þeirra, er einkum og sér í lagi, að Einar bjó yfir rikulegu, skáldlegu ímyndunarafli. Þegar ég skoðaði Thorvaldsen- safnið í Höfn sá ég aðdáunarvert handverk, en ekkert, sem hreif mig. Aftur á móti lít ég jafnt á verk Einars sem hrífandi skáldskap og mynd- listarverk. Þau hafa mjög ómaklega goldið þess, að á siðustu áratugum hefur skapazt tízka í höggmyndalist, sem leggur áherzlu á formið eitt, sen skeytir lítið um innihald. Hér á landi er of oft þráttað um aukaatriði. Menn eru dæmdir og afgreiddir eftir þvi einu, hvort þeir hafi fylgt einhverjum tilteknum stefnum. Formalisminn er á undanhaldi í svip- inn, og popplistinni hefur fylgt einskonar hláka; menn eru ekki lengur múlbundnir á klafa einhverra kreddumeistara. í annan stað hefur stundum verið veitzt að verkum Einars Jóns- sonarfyrir „symbólikina", táknmálið, sem hon- um er gjarnt að nota. Þar kemur skáldið til sögunnar; hann vill koma hugmyndum sinum, lífskoðun og trú á framfæri og notar táknmálið til þess. En þótt myndir Einars búi einatt yfir miklum þokka og hrynjandi, gat hann átt til að grípa til þess, sem almennt er ekki sett í sam band við fegurð. Ég nefni til dæmis myndir eins og Samvizkubit, þar sem þjáningin afskræmir andlitið, Mold, sem er full af óhugnaði grafar og dauða og Öreiga, þessa átakanlegu fjöl- skyldumynd, sem er hreinn og umbúðalaus realismi. Sú mynd sýnir vel, hve frábærum árangri Einar náði innan ramma þessarar stefnu, sem komizt hefur í tízku aftur nú uppá síðkastið. Hér er hinn stolti öreigi allra landa; ætli margir hafi dregið hann upp á áhrifameiri hátt? Ingólfur Arnarson, Þorfinnur karlsefni, Jónas Hallgrímsson og Útilegumaðurinn; þetta eru þau verk Einars, sem sjá má úti við í Reykjavik. Því miður verður naumast eitt einasta þeirra talið til hinna merkari verka Einars. Leitt er til þess að vita og hefði verið verðugt þjóðhátíðar- verkefni að stækka verulega höggmynd eins og Öldu aldanna og koma henni fyrir á fallegum stað. Gisli Sigurðsson. Lesbókar Morgunblaðsins Lausn á síðustu krossgátu n il •" j - KfíuP- TÚH ,t*<' SPIL IH rT $fte- Prtft 1 i ; 0| ÆUfl m (k ~L A P l R ¥ Á 1 T A r R m, 1 R Æ x 1 Ð x S <: A N 5|r;. u & óf' ) L Ll R A L vnna 2 r 1 x MKN- A o M S- “X . I «í N A R r aJ R m N ó x i N A J> rtmt) Aí A L T H N ‘í'u’ N T r> IvJ F Wi A x x R guKT'j A F 5K-- od. • r. ft i V A t± T A - A Ufi| Aj Ý R S <,* - L v ■ C A N ii mi II A HÓi LíT- uft T X F ÆÐl 4 E K R A IÖL- R A rv U A o*Í> J Á S lTt/ Vi o T V K R Ý 0 tih ’* •1 P R o M i£>- 5 V>tr- ufl- b S X 6 £> U A u R X TíeiK. eim Kv- ‘Æ R A K • af* L A KVÍ"' R U T iífn M A X H- N ú. r u ts 1 fríf A £> R A R SPlLiD t*D- /«4> M r A N A M A 1 Lil- l/ítl N Ý R L N Ó 1 X x L líotít O R x íuf'C- 1 'R N. Ý R þffA A f Ín’ A, ilFUU tnus y o X 1 N N ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.