Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Síða 9
að búa í einingu við hinn skap- andi öfl alheimsins, hvort sem þau öfl eru innra eða ytra með manni. Allir menn eru meistarar. Þeir gera sér bara ekki allir grein fyrir því.“ Og Arnór nefndi dæmi. „Þann- ig lítur Rosicrucian-reglan svo á, að allir menn búi yfir miðilshæfi- leikum, allir geta orðið fyrir fjar- hrifum, fengið hugskeyti, skynjað það sem í vændum er. Þetta eru raunar hlutir sem allir menn verða varir við endrum og eins. Til dæmis kemur það fyrir flesta öðru hvoru að þeim líður illa í návist einhverrar mannsekju án þess að til þess liggi nokkrar aug- ljósar orsakir, eða að eitthvert hús eða ákveðið herbergi verki illa á menn, eðajafnvel að menn fái hugboð um yfirvofandi hættu. Þetta fyrirbæri, sem á ensku er kallað „intuition" og við getum nefnt „hugskynjun", er hlutur sem allir eru fæddir með og flest- ir verða varir við. Og það er mikil- vægt að menn geri sér grein fyrir því, að hér er ekki neitt dularfullt eða furðulegt á ferð. Þessi hvers- dagslegu atvik kunna að virðast tilviljanir, en við vitum að maður getur þróað hæfileika sinn til hugskynjunar, og þroskað hann, og þannig náð valdi á tilviljun- um.“ AF ARUNNI OG ÖÐRUM AUG- LJÖSUM HLUTUM Þóra sagði okkur í þessu sam- bandi frá þvi að sá atburður sem mörgu ungu fólki stendur vafalít- Þessi mynd, sem hangir i stofunni hjá Arnóri og Þóru. er túlkun islenzkrar konu og félaga i reglunni á einu af höfuðstefum Rosicrucianismans: „Augliti til auglitis við hin máttugu öfl náttúrunnar hugleiðir hinn hugsandi maður óttalaust stóðu sina i uppbyggingu alheimsins." Að neðan: Við þetta borð vinna þau Þóra og Arnór að lestri Rosicrucian-fræða, — auk þess sem Þóra leiðréttir þar stila. Myndirnar tvær yfir borðinu sýna tvo af helztu meisturunum, og á borðinu sjálfu er brjóstmynd af Nefertite. eiginkonu Ikhnatons fara- ós, hins hefðbundna stofnanda regl unnar. ið i fersku minni, þ.e. bruni Glaumbæjar sáluga, hefði á engan hátt komið flatt upp á sig, því að í hvert skipti sem hún kom þar inn fyrir dyr hafði hún verið gripin ótta um að þetta hús myndi brenna. „En ég veit ekki hvort ég á að vera að segja frá þessu. Fólk kann að segja: Það er alltaf auð- velt að segja svona eftir á,“ sagði Þóra. Og Arnór nefndi aðra reynslu sina af hugskynjun eftir að hann hóf að nema fræði Rosicrueian- reglunnar. „Eitt atriði í þessum fræðum, er það, að maður getur náð svo valdi á líkamanum, að segja má að hann lúti lögmálinu: Þú ert þar sem vitund þín er. Hvorki tími nér rúm verða í raun og veru til. Og þetta hef ég sann- reynt, þótt kannski sé hæpið fyrir mig að skýra frá því. Ég hafði nokkrum sinnum ferðast svona i huganum, farið til ákveðinna per- sóna og fylgzt með gerðum þeirra. Og til þess nú að fá úr því skorið hvort þetta væri ekki tómt rugl i mér, þá gerði ég og ákveðin per- sóna samkomulag. Ég fór nokkr- um sinnum til hennar og reyndi að gera vart við mig, en hún tók aidrei eftir mér. Ég var auðvitað að verða alveg desperat, og hélt ég væri að verða vitlaus. Við ákváðum svo að hætta þessu. En Hvorki þér né Ajax þurfið sjálfvirka þvottavél til að fá gegnhreinan, hvrtan þvott því Ájax er sjálft sjálfvirkt Ajax er blandað efnakljúfum og því óháð orku þvottavéla Með Ajax - efnakljúfum verður Þvotturinn gegnhreinn og blsefaliegur. Ajax er gætt sjálfvirkri Þvottaorku og hreinsimætti, sem óhreinindin fá ekki staðizt. Ajax er kjörefnið í stórÞvottinn - gerir hverja flik leiftrandi hvíta. Ajax er lika tilvalið í fínni Þvotta, t. d. orlon og nælon, sem gulna Þá.ekki. Ajax er rétta efnið, ef leggja Þarf í bleyti, og við forÞvott. Notið Þá Ajax og horfið á óhreinindin hverfa.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.