Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Page 15

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Page 15
Ingimar Erlendur Sigurðsson HVÍTA- DAGUR i Af lifi' ertu kominn, að lifi' aftur skaltu verða, ijósið það sefur i myrkri' og eftir þér biður; dauðinn hann fær ekki drauminn um þig að skerða, og dagurinn nálgast eftir sem nóttina liður; Þvi dag einn aftur þú kemur og Ijósinu klæðist. það kviknar i myrkrinu' á öllum sofandi vitum: þú birtist á ný sem barnið er jörðinni fæðist, sem blómið er eyðimold vekur og skreytir i litum, og ofan i dýpstu gröfunum byltir sér gróður, grænar kistur úr myrkrinu' i dagsljósið rísa, himnarnir blasa við hverjum þlötuðum bróður og hjörtun á nýjaleik slá og nafnið þitt prisa. II Á öðrum hnetti' i alheimsgeimi, þar aðrir vaka' um næturskeið og beina sjón að björtum heimi, er blikar þeim sem von i neyð; og einmitt þeirra óskastjarna er okkar litla og græna jörð; hún glæðir vonir geimsins barna að guð sé til og haldi vörð; og játa verður: jörðin hefur jesúbarnið fætt — en deytt; hvert lifsins djásn sem drottinn gefur dauðinn heimtar vaxtagreitt; en vonargeislar veröld hugga og vaka yfir lifsins hag, þvi drottinn geims frá dauðans glugga dregur tjöld — á hvitadag. III Þér elfur lifsins frjálsar skulu falla. Það frelsisboðorð hijómar mönnum ungum. En siðar lifsins kuldar afturkalla þau kærleiksljóð sem opnum hjörtum sungum. Svo undir lögum isa flestir lifa og undirdjúpsins fiskar einir heyra: að brestur djúpt i brjósti' er hjörtun tifa, sem berji' á klakaveggi' — æ, ekki meira. En loksins þegar þrýtur lindir allar, af þorsta' og kvölum hjartað klakann brýtur. Og hjartað — jafnvel klakinn sjálfur — kallar: æ, Kristur, hvar er lind sem aldrei þrýtur? Sjá, lifsins vatn mun veitast þeim sem trúa. Það vatn — þær orðsins lindir eilift streyma. Við helga brunna himindjúpsins búa þau hjörtu' er þyrstir ekki' og guð sinn dreyma. ræða. Nú aðhyllist ég þessi trúar- brögð fyrst og fremst vegna siða- boðskaparins og hinna raunsæju viðhorfa til lífsins sem þau bjóða upp á, enda styrkist ég i trúnni með hverjum deginum. Eg leyfi mér að fullyrða, að vor siður á erindi til allra manna af hvaða þjóðerni og litarhætti sem þeir eru. En trúið þið ásatrúarmenn á til- vist guðanna? — Ég get aðeins talað fyrir sjálfan mig og persónulega trúi ég því ekki að goðin séu í Asgarði. Fyrir mér er þetta fyrst og fremst siðferðilegt eins og ég sagði áðan. Hins vegar lít ég svo á að goðin séu tákn mannlegra eiginleika, og menn aðhyllast þá eftir áhuga- málum og hugðarefnum eða jafn- vel atvinnu. Iþróttamaður sem leggur áherzlu á hreysti likamans mundi í vorum sið aðhyllast Þór. Þeir sem hafa yndi af kveðskap og öðrum andlegum hugðarefnum halla sér að Óðni. Náttúrudýrk- endur og þeir sem vinna að land- búnaðarstörfum aðhyllast Frey og sjómaðurinn Njörð. Ekki svo að skilja að einhverjir flokka- drættir séu þarna á milli heldur blandast þetta saman nákvæm- lega eins og mannlegir eigin- leikar. Ég hallast helzt að Óðni enda ber ég nafn hans. Nú breyttir þú um nafn er þú gerðist ásatrúarmaður, — hver er ástæðan fyrir nafnbreytingunni? — Hún er augljós. I kristnum sið hét ég Jóhannes, sem þýðir vinur Jahve. Af skiljanlegum ástæðum gat það ekki gengið í vorum sið svo að ég tók mér nafnið Auðunn Arnoddur en Auð- unn er eitt af dulnefnum Óðins. Þér hefur orðið tfðrætt um siða- boðskap ásatrúar. Geturðu skýrt það nánar? — Já, eins og ég sagði áðan aðhyllist ég ekki vorn sið á sama hátt og fornmenn gerðu. Við fær- um okkur ekki aftur á 10. öld heldur færum siðinn fram á hina tuttugustu. I vorum sið er það ekki innifalið lengur að falla fyrir vopnum og vera i Valhöll um eilífð. Aðalatriðið er siðaboð- skapurinn og lífsspekin sem grundvallast á ritum okkar s.s. Hávamálum og öðrum goð- kvæðum og goðsögum. Geturðu nefnt dæmi? (Við þessa spurningu birtir yfir svip Auðuns Arnoddar og áður en varir er hann farinn að kveða á gullaldarmálinu.) Ungr var ek forðum, fór ek einn saman, þá varð ek villr vega; auðigr þóttumk, er ek annan fann, maðr er manns gaman. — Hér er lögð áherzla á sam- vinnu manna og að enginn geti staðið einn, m.ö.o. að maðurinn er félagsvera. (Og Auðunn hallar undir flatt og rær fram í gráðið) Haltr ríðr hrossi, hjörð rekr handar vanr, daufr vegr ok dugir; blindr er betri en brendr séi, nýtr manngi nás. — I þessari vísu kemur vel fram að allir menn eru til ein- hvers nýtir. Manngi nýtur nás þýðir að enginn hefur gagn af dauðum manni. Þessi visa og margar aðrar afsanna það sem sumir hafa viljað halda fram, að vor siður sé siðaboðskapur stór- bokka og höfðingja, en smælingj- ar megi sín einskis. 'Nú hefur þvl verið haldið frani að Hávamál séu ort undir kristnum áhrifum, — hvert er þitt álit á þvf? — Ég mótmæli því eindregið. Það er rétt, að margir halda því fram að kristnin hafi haft áhrif á vorn sið. T.d. er því haldið fram að Baldur hinn hviti sé liking Krists og að frásögnin af því þegar Óðinn hékk níu nætur f tré sé runnin frá krossfestingunni. En nokkrir fræðimenn, þ.á m. Einar Pálsson hafa fært sönnur á að þessu sé öfugt farið, þ.e. að Framhald á næstu síðu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.