Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1975, Side 7
VIND-
ORKA
SOLAR-
ORKA
VÉLRÆN-
ORKA
RAFORKA
ORKU GEYMIR
ORKA & LJOS
HITATAP
|kæling/hitun
/UNDIR-1
bOningui
LfÆÐU >
ELDUN
HREINSUN
IÖFNÚN"
FILTERING
VATNS
ROTNUN
Algengt að
sjá feðurna
klæða börnin.
geró, sem einnig tekur vió grasi
og leifum plantna. Þaöan er unn-
ið gas, sem notað er til cldunar.
A milli innigarðsins og íbúðar-
innar eru opnanlegir einangrandi
veggir, sem loka má í frostum.
Sömuleiðis er unnt að loka af að
utanverðu öllum gluggaflötum
hússins með einangrandi lokum.
Húsið sjálft er reist úr stálbit-
um, sem klæddir eru að mestu
með gleri til suðurs, vesturs og
austurs. Norðurhliðin er hins veg-
ar úr 60 cm þykkum múrvegg,
bæði til að stlfa bygginguna af og
eins til að safna í hann hita yfir
daginn og bæta andrúmsloft, raka
innirýmisins. Grunnflötur húss-
ins er 100 fermetrar og rúmmál
600 rúmmetrar. Ibúðin sjálf er
lítil um það bil 80 fermetrar og
garðurinn er 50 fermetrar með 6
metra lofthæð.
Garðurinn er liður í þeirri áætl-
un aö gera íbúa hússins óháða, en
þar geta þeir ræktað eigið græn-
meti lengri tfma á ári en ella.
Hann er talinn einn af meginkost-
um hússins út frá notkunarsjón-
armiði.
Án efa getum við Islendingar
notfært okkur ýmislegt af þeim
hugmyndum, sem fram koma í
orkuhúsinu. Það sem beinast iigg-
ur við að nota hór eru vindrafal-
arnir, en öll þekkjum við raf-
magnsleysið á miðjum vetri sem
er að verða óþægilegur árlegur
viðburður vlða um land. Nútima
vindrafall er stórt stökk frá þeim
vindrellum, sem áður fyrr voru
notaðar hér viða um land. Á
myndinni af Kkaninu er sýndur
nýr rafall, sem NASA, Geim-
ferðastofnun Bandaríkjanna hef-
ur þróað. Aðalkostir hans eru
vindgildra (hvíti kassinn á miðj-
um ásnum), sem er eins konar
jafnvægihjól fyrir snúningsás-
inn og lætur hann snúast f
minnstu golu. Blöðin þrjú, sem
snúa svo ásnum eru þannig útbú-
in, að þau breyta um skurð eftir
vindhraða. Rafallin snýst því
Að ofan: Skemamynd af kerfum orkuhússins. þar sem tiltæk orka er nýtt til
hins ýtrasta. Til vinstri: Þverskurður af orkuhúsinu. Á þessari teikningu er þó
sýnd eldri gerð vindrafstöðvar á þakinu. Sú sem sést á myndinni á bls 6 er
nýrri og fullkomnari. Að neðan: Neðri hæð hússins, þar sem sólarhitanum er
stjórnað með einangruðum renniveggjum.
ávallt með sama hraða og yfir
keyrir sig ekki.
Annað, sem liggur beint við að
nota hér á landi, er innigarður-
inn, sem tengist Ibúðinni. Að
skaðlausu mættum við lengja uralDesign).
okkar skamma sumar og garð;
prýði með hituðum glcrhúsum
beinum tengslum við aðrar vistai
verur.
(Þýtt og endursagt úr Architee
Framhald af bls. 4
ara. Úrsula skrifaði barnabækur,
sem margar urðu vinsælar, m.a.
Litli tréhesturinn, en sú bók var
þýdd á íslensku. Hún var í smíð-
um á meðan Áslaug dvaldi á
heimili höfundar. Hefur það ef til
vill átt þátt i að beina huga ungr-
ar stúlku að viðfangs- og hugðar-
efnum barna.
Síðan lá leiðin til Bandarikj-
anna til náms í barnauppeldi, eins
og fyrr var getið. En um svipað
leyti fór systir hennar, Valborg
Sigurðardóttir, einnig þangað
til náms i uppeldisfræðum. En
hún hefur sem kunnugt er verið
skólastjóri Eóstursskólans frá
stofnun hans.
Mikið áræði og áhuga hefur
þurft til að leggja upp í sjóferð
alla leið til Bandarikjanna á ófrið-
arárum, til að leita sér menntun-
ar.
— Um annað var ekki að ræða,
segir Áslaug. Á þeim tima voru
Norðurlönd lokuð og ekki i annað
hús að venda.
— Hafðir þú enga löngun til að
dvelja lengur í Bandarikjunum
þegar námstímanum var lokið?
— Eg hefði kosið að vera leng-
ur. En hvorttveggja var að ég
vissi að þörf var fyrir starf mitt
heima og einnig hafði móðir mín
áhyggjur af, að mér mundi dvelj-
ast lengur en ég ákvað i upphafi.
Ein ástæóa enn var til þess að
heimferð var ekki frestað lengur
en nauðsynlegt var. Svo undar-
lega vildi til, þegar Áslaug var á
leið til Bandarikjanna, að einn
skipverja, sem hafði kynnt sér
lófalestur, spáði þvi að einhvern
tima mundi hún lenda í sjóslysi
en bjargast þó naumlega. Ekki
lagði hún mikinn trúnað á þessa
spá, en gleymdi henni þó ekki.
Með það i huga að spáin ætti sér
nokkurn aldur, taldi hún öruggast
að komast sem fyrst heim. Hún
tók þvi fyrstu ferð, sem bauðst og
hélt heimleiðis með Goðafossi.
Þegar tveggja tima sigling var
til Reykjavíkur, eftir nær rnánað-
ar ferð í skipalest, varð skipið
fyrir tundurskeyti frá þýskum
kafbáti og sökk á mjög skömmum
tima.
1 blaðafregnum frá þeim tíma
segir: Af komust 17 skipverjar og
tveir farþegar. Annar þeirra var
Áslaug Sigurðardóttir.
— Ég hafði gert tilraun til að
flýja örlög min, segir hún, en í
stað þess komst ég að því, að þau
verða ekki umflúin.
Þurfður J. Árnadóttir.
SOLAR
GEISLUN
HAR HITI
VARMAD/ELA
ÖNNUR
ORKA
RYMISHITUN
T:.H......
I I í 1 I I 1 ! I. liiJ ! 11.1,1 1 h m i I jUL^ORGANGSHITlt^^^^^n! j. j 1; 1 1 j Jsf | j J I 1 j 1.1 j| I Hí | INNÖNDUN
---V---0TÖNDUN
í FÆÐU- \ ■ 1 HITATAP
•••••••
^M B STARFSEMI
FÆÐU-
FRAMLEIÐSLA
FÆÐA
ABURÐUR
VATN
LJRGANGUR
VATNSHITUN
• ENDUR-
VINNSLA
HITA
URGANGS
DREIFING
^Í
__ _
FÖST EFNI j
LAGERING
ROTÞRO
AÐSKILNAÐUR
h 111 f I i i n H ii 11 iii i ii 111 k 11 í *ii n 111 n rn i í m i u
■H Hl
SKEMAMYND AF ÖLLUM KERFUM ORKUHÚSSINS rninr
HITI '7'y FÆÐI Hi LfFRÆN ENDURVINNSLA
LOFT VATN [Tff | GAS
VELRÆNT
RAFMAGNS
] VATNSTANKUR