Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1975, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 15.06.1975, Side 16
Hver þakkar Leino? Framhald af bls. 10 ið forsætisráðherra, hafi hann viljað, að hann læsi yfir ræður sinar og ræddi við sig um efni þeirra. 1 öllum mikilvægum sendinefndum, sem komu fram fyrir hönd Finnlands á þessum árum, var Leino sjálfsagður mað- ur. Hann naut trausts Paasikivis. Það voru ekki margir, sem kynntust Paasikivi náið. Og ekki heldur Leino. Síðasta timann, sem Mannerheim var forseti, var það i reyndinni Paasikivi, sem annaðist embættið. Hann beið eft- ir þvi, að marskálkurinn segði endanlega af sér embættinu, en það dróst og Paasikivi fór að verða óþolinmóður. — Hann ætlar ekki að fara, helvizkur, sagði Paasikivi við Leino. Mannerheim, marskálkur, sagði ekki af sér, fyrr en Savonenkov frá eftirlitsnefndinni veturinn 1946 heimsótti hann á sjúkrabeði og — eftir þvi sem Savonenkov sagði Leino —tjáði honum berum orðum, að þess væri óskað, að hann segði af sér. 1 fyrstu svaraði Mannerheim ekki neinu, heldur fór að tala um allt aðra hluti. Það var ekki fyrr en Savonenkov hafði kvatt og var á leió til dyra, að marskákurinn bað hann að koma til baka og sagði honum þá, að hann myndi segja af sér. Paasikivi var siðan kjörinn for- seti 9. marz 1946. En hver átti þá að mynda stjórn? Paasikivi fól fyrst Eero Vuori, þá Kekkonen og síðan Yrjö Leino að mynda stjórn. Kekkonen var þó sá eini þremenninganna, sem gerði alvarlega tilraun til að mynda stjórn, en hún strandaði á andstöðu alþýðubandalagsins, DFFF, sem studdi Leino. Loks varð samkomulag um alþýðu- bandalagsmanninn Mauno Pekk- ala, sem áður hafði verið í flokki sósialdemókrata. Lengra til vinstri varð ekki komizt. Með bróður sínum Eino og Yrjö Leino setti hann siðan saman stjórnina. Paasikivi hafði verið í allmikl- um vafa, þótt hann léti svo tilleið- ast að fela Pekkala stjórnarmynd- un. Þegar átti að skipa sendiefnd, sem fara skyldi á friðarráðstefn- una í París 1946, sagði Pasikivi hreinskilnislega: — Ég held ekki, að Pekkala sé heppilegur sem formaður friðar- sendinefndar. Ég sting upp á Enckell, utanríkisráðherra. 1 bók sinni segir Leino: „Pekk- ala reis snöggt á fætur og gekk inn í hliðarherbergi. Þegar hann kom aftur eftir smástund — hann hafði greinilega fengið sér hress- ingu úr pelanum, sem hann alltaf hafði i bakvasanum — sagði hann með þunga: l'lKWiimii If.f. Arvakur. Rrvkjadk Kramkt.sij.: Ilauldur Strinssun Rilsljiiritr: Nalibbs Jnhmnnsrn Sl>rmir <»unnarwon RiUlj.fllr.: lilsli SiuurAssun AucKsinuar: Arni Larðar Krisfinssun Rifsijúrn: \9aMrrliK.SImi IftlOft — Nú, af hverju valdi forsetinn ekki Enckell sem forsætisráð- herra, úr þvi að hann er nú einu sinni svo ágætur maður?“ Eftir miklár umræður varð svo Pekkala formaður sendinefndar- innar, en Enckell varaformaður. I ágúst fór nefndin til Parísar. Leino segir frá samtali Pekkala og Vysjinskijs i matarveizlu, þar sem Pekkala fór einfeldnislega inn á hinar miklu hreinsanir Stalíns á fjórða áratugnum, en þá var Vysjinskij hinn opinberi ákærandi. — Merkilegt er það, sagði Pekk- ala með undrunarsvip, að slíkum þorpurum skyldi takast að komast alla leið í æðstu stöður. Leino leit spenntur á Vysjinskij, sem sat beint á móti honum við borðið. Hann varð vandræðalegur á svipinn sem snöggvast, andvarpaði og sagði með fjarrænu augnaráði: — Já, mér fannst það merkilegt líka... En þegar maður rannsak- aði málið til hlitar, þá reyndust þeir sekir þrátt fyrir allt. Á ieiðinni til Parisar var komið við í Stokkhólmi, og þar vildi Pekkaia einhverra hluta vegna endilega horfa á sirkus, og sendi- ráðinu var falið að útvega miða. Það er eins og tekið úr pólitiskri revýu, en staðreyndin er sú, að á leið sinni til Parisar til að stað- festa friðarsamninga Finnlands og bandamanna komu forsætis- ráðherra og innanríkisráðherra Finnlands við í cirkus í Stokk- hólmi og furðuðu sig á fakírum, sem stungu nálum í gegnum kinn arnar. 10. apríl 1947 varð enn stjórnar- kreppa, er bændaflokkurinn dró ráðherra sína úr stjórn Pekkala. Fyrst fól Paasikivi Tuomioja og siðan Leino að gera tilraun til stjórnarmyndunar. Leino ræddi i fjóra daga við sósialdemókrata og bændaflokkinn, en svar þeirra var — að hans sögn: — Við höfum ekkert á móti yður persónulega, en við munum ekki taka þátt í ríkisstjórn undir forustu kommúnista. Auk þess hefðu Rússar aldrei samþykkt mig þá, sagði Leino. Eftir 42ja daga þóf varð endirinn sá, að stjórn Pekkala var áfram við völd. Það kom sumar, og Finnland afþakkaði Marshall-aðstoðina. Fyrst eftir að svo hafði verið gert, þóknaðist Sovétríkjunum að stað- festa friðarsamningana. Það var ekki fyrr en 15. september 1947. 11 dögum síðar fór eftirlitsnefnd- in úr landi og þjóðinni létti, þótt hún hefði aldrei vitað, hve gjör- samlega hún hefði stjórnað Finn- landi í reynd. Leiörétting f GREIN mtna „Hringurinn" t Lesbók Morgunbtaðsins 11. — 12. tbl. Þ.á. hafa því miSur slæðzt nokkrar prent villur og eru þessar helztar: I upphafi greinarinnar segir að vi8 höfum veriS þrjú saman en vorum fjögur eins og Ijóst er af samhenginu. f 4. dálki neSst á bls. 6 f 11. tbl. hefur falliS úr llna. Setningin á a8 vera þannig: „Vi8 feSgarnir vorum einn dag um kyrrt t Þverárdal og fórum þá fram I Svartárdal. alla Iei8 til hinnar vt8- kunnu Stafnsréttar", o.s.frv. f 12. tbl. er meinleg villa f 2. dálki á bls. 6, þar sem stendur a8 OddsskarS só 1666 m. á hæ8. á auBvitaS a8 vera um 660 m. e8a eftir nýjustu mæling- um rúml. 700 m. sbr. Artoók FerSafá- tagsins um AustfjarSafjöll. Nokkrar aSrar prentvillur eru f greininni en flestar smávægilegar. Jón Bjömsson. Mildur? * Já,en niatarleirar. Palmolive-uppþvottalögurinn er mjög áhrifamikill og gerir uppþvottinn Ijómandi hreinan og skínandi - jafnvel þóttþérþurrkið ekki af ílátunum. Jafnframt er efnasamsetningin í Palmolive þannig, að hann BmM"1 oppvask-*®*™ ....... - - -• ■w miídr,4iK'^TÍ er mjög mildur fyrir hendurnar. mot hendonr, t Prófið Sjálf... & • mw jQne KWm Palmolive í nppþvottinn ■ M ’ V ■ t mm Igp i^TTlTIÍWfflMlllH.... iiFl OPPVASK m II ÍP ® I I M b £.*, f *sí. . sík *■ ■ '■ ; í9 4 r «, t; i mSm , *'■ ISfifepaSW

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.