Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1975, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1975, Blaðsíða 7
Texti myndir og teikningar: Gísli Sigurðsson í sumar, nánar tiltekið 25. júlí, voru 100 ár liðin frá því er þjóðskáldið Hjálmar Jónsson, löngum kenndur við Bólu, lézt saddur Iífdaga í beitarhús- unum frá Brekku. Þótt Hjálmar væri barn síns tíma að flestu eða öllu leyti, væri mikið öfugmæli að segja hann gleymdan. Á þeirri öld, sem liðin er frá dauða skáldsins, hefur býsna mikið verið um hann skrifað og minningin um átök hans við andsnúna samtfð, fátæktarbasl hans, konumissi, þjófnaðar- ákæru, heilsuleysi og sam- skipti við yfirvöld, lifir enn furðu vel. En framar öðru lifir þó kveðskapur Hjálmars, kynngimagnað orðfærði og líkingaauðgi. Hjálmar Jónsson gerði ekki víðreist fremur en meiripartur samtíðar- manna hans. Slóð hans hefst á Svalbarðsströnd- inni, austan Eyjafjarðar. Þar og á ýmsum stöðum vestan fjarðarins eyðir hann unglingsárunum unz hann. flytur í blóma lífsins vestur f Skagafjörð. Þar er hann manndómsárin bóndi í Nýjabæ og Bólu og lengst átti hann heima á Minni- Ökrum. Við rekjum spor ellinnar þar, en einnig í Grundargerði skammt frá Minni-Ökrum, á Starra- stöðum í Lýtingsstaða- hreppi og loks í sfðasta áfangastað: Beitarhús- unum frá Brekku. Á efri árum sínum komst Hjálmar vestur í Langadal til þess að heimsækja vini ’sína — meira sá hann ekki af veröldinni en þcnnan spöl á Norðurlandi miðju. Við göngum í slóð skálds- ins, lftum í kringum okkur á áfangastöðum hans og byrjum að sjálfsögðu á Svalbarðsströndinni. MiÖvík í Laufássókn Bólu-Iijálmar fæddist á Hall- andi gegnt Akureyri; hann mun hafa stigið fyrstu sporin á Dálk- stöðum, en uppruna hans má þó rekja að Miðvík I Laufássókn. Halland á Svalbarðsströnd Leiðin þangað liggur út eftir búsældarlegri Svalbarðsströnd- inni unz brekkurnar verða hærri og undirlcndi að sama skapi minna. Kannski er hvergi fegurra þar um slóðir en f Miðvík á fögr- um og lognkyrrum sumardegi eins og þeir gerast beztir við Eyjafjörðinn. Þá speglast Hlfðar- fjall og Súlur f firðinum eins og stöðuvatni; það er eins og náttúr- an haldi niðri í sér andanuin. t Miðvík er mjög aðkrcppt og rækt- unarskilyrói virðast næsta. tak- mörkuð. Vegurinn liggur ofan við bæinn; maður horfir niður á hann, þegar farið er framhjá. Ibúðarhúsið er úr steini og snýr gaflinum fram til fjarðarins — fjaran bara steinsnar neðan við bæinn. Hvar bærinn hefur staöið á því herrans ári 1796, þegar sveinninn Hjálmar fæddist, veit ég ekki, en Ifklegt er þó, að hann hafi verið á sama stað. Og þá er að líta um öxl. Árið 1795 voru í Miðvík tvö vistráðin vinnuhjú, Marsibil Semingsdóttir og Jón Benediktsson, bæði komin þangað úr Suður-Þingeyjarsýslu. Þau voru á bezta aldri og bæði höfðu þau eignast barn í lausa- leik. Hvort þau felldu hugi saman í alvöru, eða með hjúskap fyrir augum, er óvfst. En hitt er víst að vinnukonan í Miðvík hefur gerzt vinnumanninum eftirlát; hann var talinn „skýr og gáfaður" en ekki nema í meðallagi siðsamur, segir i kirkjubók. Þar kom, að öllum mátti Ijóst _vera að vinnu- konan Marsibil fór eigi einsömul — og það í annað sinn. Ekki þótti það fagnaðarefni, að blásnauð vinnuhjú legðu heiminum til börn. Slíkra barna beið venjulega hlutskipti niður- setningsins. Og hreppstjórar höfðu þungar áhyggjur af hverri vinnukonu, sem tók að gildna undir belti. Ung kona kemur gestkomandi að Hallandi við Eyjafjörð og beið- ist gistingar. Sumir ætla að hún hafi verið á leið út á Akureyri að leita athvarfs hjá systur sinni; aðrir hafa gizkað á, að hþn hafi þekkt bóndann á Hallandi, því þau voru bæði úr Reykjadal. En svo mikið er víst, að um nóttina ól hún sveinbarn. Þannig hefst saga Bólu-Hjálmars. Það er þjóðsagna- rökkur yfir þessari frásögn og mönnum ber ekki saman um, hvort þetta hafi átt sér stað í febrúarmánuði 1796, ellegar í september haustið eftir. Kannski skiptir það ekki máli. Hitt er ljóst, að þessi unga stúlka hefur lítið átt annað en þunga sinn og fata- leppana sem hún stóð f. Sonur Marsibilar Semingsdóttur hefur WM MiSvfk I Laufássókn. Þar urSu foreldrar Hjálmars samvista: Marsibil Semingsdóttir og Jón Benediktsson. að sjálfsögðu verið óvelkominn í þennan heim og enginn aufúsu- gestur hjá Jóni bónda á Hallandi. Þetta barn hefur verið sem hver annar óskilafénaður og slíkum fénaði bar hreppstjóranum að ráðstafa. Móðir drengsins hefur næsta lítil áhrif getað haft á fram- vindu þess máls. Bærinn á Ilallandi stcndur á hjalla, beint á móti Oddeyrinni. Akureyri blasir öll við þaðan; Ifk- lega sést hvert einasta hús f bænum að kalla, en til suðurs er dýrlegt útsýni inn eftir Eyjafirði og sólin glampar á ána langar Iciðir innúr. Túnin á llallandi eru f snarhalla og neðan við túnið renna flugvélar sér inn til lend- ingar á Akureyrarflugvelli. tbúðarhúsið á Ilallandi er með þremur burstum, sem snúa undan brekkunni; það er byggt að mestu leyti 1930. Þar eru ræktaðar kartöflur eins og vfða á Svalbarðs- strönd og búið með kýr. Bærinn, sem Hjálmar Jónsson Halland vi8 EyjafjörS beint á móti Akureyri. Þar fæddist Hjálmar Jónsson ári8 1796 slSla vetrar, e8a um haust. — en óvfst er hvort það var

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.