Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1975, Síða 14
SPEGIL-
BROT
Eftir
Helga
Sæmnndsson
DAIIIA-
BÓMIIR
Fljótt bar á því að ég var
ekki eins og önnur börn.
Ég fékk ákafan hjartslátt
við minnstu áreynslu og
geðshræríngu og hafði oft
vondan sting fyrir brjósti.
Gerðist ég hæglátur, var-
færinn og draumlyndur. Ég
þoldi ekki störf og leiki
eins og jafnaldrar mínir og
dró mig þessvegna í hlé.
Á fermíngaraldri versn-
aði mér einkum árið sem
ég fékk kíghóstann. Varð
þá að ráði að leita læknis.
Mamma fór með mig til
læknisins ut á Eyrarbakka.
Var það fríður maður og
geðþekkur og mjög vinsæll
læknir. Hann skoðaði mig
vandlega, hlustaði og
bánkaði og spurði spjörun-
um úr. Mamma svaraði
spurníngum hans skil-
merkilega, en ég sat
þegjandi og horfði undir-
leitur á þennan spreing-
lærða vísindamann. Mér
var mjög i mun að láta
hann ekki flækja mig F
orðum. Ég fylgdi ósjálfrátt
reglunni gullvægu að fæst
orð hafi minnsta ábyrgð.
Sigtryggur læknir gekk
með mömmu inn í annað
herbergi eftir að hafa rann-
sakað mig leingi. Ég sat á
háum stól einn i læknínga-
stofunni og virti fyrir mér
dularfull tæki og einkenni-
lega hluti. Fannst mér óra-
timi liða uns hurðin opn-
aðist og mamma og
læknirinn birtust i dyrun-
um. Þau kvöddust.
Læknirinn lagði höndina á
kollinn á mér og sagði að
ég væri myndarpiltur. Ég
trúði þeirri hughreystíngu
mátulega.
Mamma ansaði mér
eingu um niðurstöðu
læknisins þó ég innti hana
eftir áliti hans öðruhvoru á
heimleiðinni. Þá vissi ég
að alvara væri á ferðum.
Hún hafði áreiðanlega ein-
hverja ástæðu til þess að
leyna mig því hvernig
komið væri hag mínum.
Heima settist fjölskyldan
að kvöldverði eins og
venjulega og einginn
minntist á ferð okkar eða
erindislok. Svo fór ég að
hátta ásamt bræðrum
mínum. Þeir sofnuðu strax
og þeir lögðust útaf á
koddann. Ég vakti hins-
vegar staðráðinn að verða
einhvers vísari um skoðun
læknisins á heilsufari
mínu.
Mamma og pabbi
háttuðu líka eftir góða
stund. Þau voru sannfærð
um að við bræðurnir stein-
svæfum allir, en ég lá vak-
andi i næsta rúmi og beið
þess að njósna.
Hvað sagði læknirinn?
spurði pabbi.
Hann býst við að Helgi
verði ekki lánglífur.
Er þetta mjög alvarlegt?
Það má vist þakka fyrir
ef hann verður tvítugur.
Er þá eingin von?
Það væri kraftaverk ef
honum batnaði.
IMú hætti ég að hlusta
eftir samtali þeirra. Ég
hafði komist að raun um
það sem mig grunaði. Auð-
vitað var ég veikur og það
hlaut að vera hættulegt.
En ég leit alls ekki á úr-
skurð læknisins eins og þá
dauðadóma er frá greinir í
sögubókum þegar sak-
borníngar eru leiddir út
snemma næsta morgun og
líflátnir. Örlögin virtust
eiga meira en lítið sökótt
við mig, en úrskurður
læknisins var dómur sem
ekki yrði fullnægt í bráð.
Ég varð ekki beinlínis
hræddur en að mér setti
kvíða sem ég hafði laungu
kennt og laukst allt i einu
um mig eins og heljar-
greip. Tilhugsunin um
dauðann var harla ugg-
væn. Lífið hafði upp á allt
það að bjóða sem ég þráði.
Onglíngur á fermíngaraldri
hugsar naumast um annað
en hina jarðnesku tilveru.
Ég vissi raunar að ég átti
að trúa því að annað líf biði
handan við gröf og dauða
en mér var sú kenníng
fjarri skapi. Var þá annars
kostur en gefast upp? Það
kom ekki til mála. Ég
bældi mig undir sænginni
og einbeitti mér að vísa
kvíðanum á bug. Og allt i
einu rann upp fyrir mér
Ijós. Lækninum gæti
skjátlast þó snjall þætti.
Mei, slíkt var heimskuleg
sjálfsblekkíng sem ég
hafnaði þegar. En krafta-
verkið sem mamma hatöi
minnst á? Það var vonar-
stjarna sem ég festi augu á
og afréð að fylgja. Sjúk-
dómar voru einganveginn
eins ægilegir og fyrrum.
Læknavísindin unnu
sifellda og frækilega sigra i
baráttunni um mannslífin.
Kannski var þetta ekki
neinn dauðadómur? Ég
hlaut að trúa á vonina.
Hún ein gat lýst. mér á
dimmum vegi.
Lémagna sofnaði ég
síðastur allra þarna i bað-
stofunni. Þreytan og kvíð-
inn létu mig lausan úr sár-
um fjötri. Vær svefninn
lokaði augum mínum og
veitti mér hvíld sína og
huggun.
Og ég vaknaði aftur
hress og kátur á nýjum og
fögrum degi til þess að
halda áfram að lifa i von-
inni um kraftaverkið.
Jön Þ. Þör
Þœttir úr
íslenzkri
skðksögu
í þessum þætti skulum
við bregða okkur aftur í
aldir og ræða nokkuð um
skákiðkun Grimseyinga.
Hvenær Grímseyingar
hófu skákiðkun er óljóst,
en snemma spunnust
miklar sögur um skák-
kunnáttu þeirra. Lítill vafi
er þó á, að i þjóðsögunni
hefur meira verið gert úr
skáksnilli eyjarskeggja en
efni stóðu til. Frægasta
sagan um skákkunnáttu
Grímseyinga er vafalitið
sú, sem greinir frá því, að á
öndverðri 17. öld hafi ung-
ur drengur úr Grímsey
komið með föður sínum til
Hóla. Þeir hittu að máli
Guðbrand biskup Þorláks-
son og bar strákur sig
mannalega og lét i Ijós þá
skoðun að ekki myndi
biskup mikill taflmaður.
Eitthvað mun Guðbrandi
hafa mislíkað þetta því
hann skoraði á strák i
skák, en vissi ekki fyrr en
hann var mát.
Litlar öruggar heimildir
eru til um skákiðkanir
Grímseyinga fyrr en kemur
fram um miðja 19. öld. í 4.
tbl. „í uppnámi" 1901
birtist bréf frá sr. Matthíasi
Eggertssyni i Grimsey, þar
sem hann fjallar um skák-
iðkanir í eynni . Hann segir
þar, að vafalítið muni of
mikið gert úr skákkunn-
áttu Grímseyinga, þótt
þeir muni yfirleitt standa
landmönnum á sporði i
íþróttinni. Sr. Matthías
segir Grímseyinga afar
fljóta að leika og skákiðk-
un telur hann útbreidda i
eynni. Sterkasta skák-
mann i Grimsey um þær
mundir sagði sr. Matthías
vera Ingvar Guðmundsson
bónda í Sveinagörðum.
Matthías hafði sent rit-
stjórum „í uppnámi"
manntal úr Grímsey og
merkt þar við þá, sem
tefldu skák. Komust rit-
stjórarnir að þeirri niður-
stöðu að um það bil 25%
Grimseyinga stunduðu
skák og þótti það há
hundraðstala.
í 1. — 2. tbl. „í upp-
námi" 1902 birtist svo
grein eftir Ingvar
Guðmundsson í Sveina-
görðum. Hann segir þar frá
þvi, að skáklistin verði að
teljast fremur ung í Grims-
ey. Þegar sr. Jón Norð-
mann kom þangað sem
sóknarprestur árið 1864
hafi enginn maður þar
kunnað að tefla og afi
Ingvars, sem þá var um
sjötugt þekkti ekkert til
skákar. Sr. Jón kenndi
Grímseyingum að tefla að
nýju og þá fékk þjóðsagan
aftur byr undir báða
vængi. Og nú skulum við
skoða eina skák úr Gríms-
ey. Hún var tefld um síð-
ustu aldamót og er að þvi
leyti sérstök að þetta er
VALDSKÁK, þ.e. ekki má
drepa þá menn, sem
standa valdaðir.
Hvitt: Ingvar
Guðmundsson
Svart: Albert Ingvarsson
1. e4 — e5, 2. Rf3 —
Df6, 3. Rc3 — Df4, 4. d3
— Rc6, 5. d4 — d6, 6.
Be3 — Bg4, 7. Rd5 —
Hc8, 8. Dd3 — f5, 9. Db5
— Hb8, 10. Rxc7 — Kd7,
11. Rd5 — Dxe4, 12. Bd3
— Rf6, 13. 0-0-0 — Be7,
14. Hhg1 — Hhe8, 15.
Rd2 — Bf3, 16. Rb3 —
Ke6, 17. Rc7 — Kf7, 18.
Dd5 — Kf8 19. Bc4 og
mátar i næsta leik.
Valdskák er annars
gömul islenzk skákkredda
og mun hvergi hafa verið
stunduð nema hér á landi.