Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1976, Page 6
Mikill fjöldi mynda hefur náðst af fljúgandi dtskum. en sjaldgæft er aS náðst hafi mynd af heilum
flugflota eins og sjá má á myndinni til hægri. sem tekin var á Spáni. Á myndinni tii vinstri sést
annarskonar fyrirbæri á himni. Ilkast llöngum slvalningi.
I.
Skýrsla um
fljúgandi diska
I timaritinu „Kosmo kaj homo“
2. ársfj. 1974, sem gefið er út
af Stjörnuathugunarstöðinni í
Zagreb i Júgoslavíu (Astronomia
observatorio) segir frá þvi, að
Claude Poher, yfirmaður eld-
flaugadeildar frönsku mið-
stöðvarinnar fyrir geimrannsókn-
ir í Toulouse, hafi nýlokið við
fjögurra ára rannsóknir á skýrsl-
um, sem fram hafa komið um
„ókennda fljúgandi hluti“ sem
almennt eru kallaðir „fljúgandi
diskar". Poher hefur valið til
meðferðar um þúsund „trúverð-
ugar“ skýrslur, og af þeim eru
yfir tvö hundruð frá Frakklandi.
Poher hefur tekið þessar upplýs-
ingar til meðferðár, ásamt
aðstoðarmönnum, og hafa þeir
gert ályktanir um þessa „fljúg-
andi diska“.
I ályktunum sinum hafa þeir
tekið tillit til aðstæðna hverju
sinni, svo sem veðurskilyrða,
hvort loft var skýjað o.s.frv. er
hlutirnir sáust, og hvort þeir sá-
ust yfir þéttbýlissvæðum eða
óbyggðu landi.
í 70 af hundraði tilvika voru
hinir ókenndu hlutir séðir
samtímis af tveimur eða fleiri
mönnum og í nokkrum tilvikum
jafnvel af íbúum heilla borga.
Sjáendur ,,hlutanna“ voru menn
úr öllum starfsgreinum, en áber-
andi er, hve vísindamenn eru fáir
meðal þeirra. Claude Poher full-
yrðir, að vlsindamenn, jafnvel
þótt þeir hafi orðið sjónarvottar
þessara óvenjulegu fyrirbæra,
hafi yfirleitt óskað eftir nafn-
leynd, þ.e. að nöfn þeirra yrðu
ekki birt.
Átta af hverjum tíu mönnum,
sem sáu „fljúgandi diskana" full-
yrða að þeir hafi verið egglaga
(avalforma), og aðeins tveir af
hverjum tíu sáu flugtæki þessi
með annarri lögun.
I 70% tilvika sist „hlutirnir“
að næturlagi og > ru þá rósrauðir
á lit, en þeir sem sáust i dagsbirtu
voru með málmgljáa, samkvæmt
skýrslum sjónarvotta.
Yfirleitt var um að ræða flug-
tæki sem virtust að þvermáli vera
milli 10 og 30 metrar, að áliti
sjónarvotta, og hreyfðust alger-
lega hljóðlaust. Tíu af hundraði
sjónarvotta álíta að „Fljúgandi
diskarnir“ hafi lítið hreyfst í raun
og veru, heldur hafi þeir liðið
hægt áfram. 25% álita sig hafa
séð ,,diska“ sem fóru hægt yfir og
enn aðrir sáu ,,diska“ sem þeir
telja að farið hafi með óvenjuleg-
um hraða. I 50% tilvika telja
sjónarvottar að flugstefnan hafi
verið „óvenjuleg", ef miðað er við
flug þekktra gerða af flugvélum.
Að lokum fullyrða um 20 af
hundraði sjónarvotta að þeir hafi
verið viðstaddir lendingu „fljúg-
andi diska“.
II.
Fljúgandi diskar
í ljósi kenninga
dr. Helga Pjeturss.
Þetta var endursögn af skýrslu
þeirri um rannsóknir á ókennd-
um fljúgandi hlutum, sem birtist i
nefndu timariti hinnar júgóslavn-
esku stjörnuathugunarstöðvar og
er sitthvað, sem þar kemur fram,
athyglisvert.
Þessi furðulegu fyrirbæri,
fljúgandi diskar, svokallaðir, hafa
verið mjög algeng mörg undan-
farin ár. Varla líður sú vika að
ekki berist fregnir um þessa
furðuhluti einhversstaðar að úr
heiminum. Og opinberar stofnan-
ir, eins og t.d. sú, sem af er sagt
hér að framan, taka til æ alvar-
legri rannsókna skýrslur sjónar-
votta af þessum fyrirbærum.
Eitt hið athyglisverðasta, sem
frá er skýrt í nefndri skýrslu,
finnst mér vera það, sem sagt er
um visindamenn, sem orðið hafa
sjónarvottar að fyrirbærunum:
Þeir óska eftir að nöfn þeirra
verði ekki birt.
Hjá þessum mönnum kemur
fram hræðsla þeirra við álit
annarra visindamanna. Þess
vegna má ekki birta nöfn þeirra.
Þessi afstaða þeirra er í rauninni
skiljanieg og afsakanleg, á meðan
ekki er vitað eða skilið á hvaða
lögmálum slik fyrirbæri byggjast.
Hér er það sem kenning dr.
Helga Pjeturss varpar ljósi á
þessa torráðnu gátu, eins og svo
margt annað. Hér er um að ræða
fjargeislun, sem leiðir af sér ham-
farir flugtækis og áhafnar þess,
frá fjarlægum hnetti til okkar
jarðar.
A tækniöld þeirri sem nú stend-
ur yfir hafa skapast sambönd við
tækniþróuð mannfélög á öðrum
hnöttum. Gera má ráð fyrir að
farartæki þeirra séu að ýmsu leyti
frábrugðin farartækjum okkar og
einnig að því er snertir flugtæki
þeirra. Vegna hins almenna
áhuga jarðarbúa á tækni almennt,
myndast hér einskonar lífafl-
svæði, sem gerir það mögulegt, að
fyrirbæri af þessu tagi geta mynd-
ast í lofthvolfi jarðar okkar. Þessi
farartæki og áhafnir þeirra koma
hingað hamförum, þau efnast, og
haldast hér við um stutta stund.
Með þessum hætti gerist slíkur
flutningur milli fjarlægra hnatta
á andartaki. Enda væru raunveru-
leg ferðalög milli sólhverfa
óhugsanleg með þeirri tækni sem
við þekkjum. Til þess eru fjar-
lægðir alltof miklar, jafnvel ljós-
geislinn er áratugi og árþúsundir
að komast á milli.
En lífgeislinn leysir þennan
vanda, því hann kemst um óra-
víddir geimsins á örskotsstund.
Og á þennan hátt munu fara fram
öll geimferðalög hinna lengra
komnu íbúa annarra hnatta. Þeir
fara hamförum í heimsóknir sól-
hverfa milli. Fljúgandi diskarnir,
sem hér sjást stundum, hljóta því
að myndast með hliðstæðum
hætti, vegna fjargeislunar, eða
hamfara. Það kemur einnig fram
af frásögnum sjónarvotta, að
„diskarnir" efnast misjafnlega.
Þessvegna verða útlínur þeirra
öskýrar stundum, og lögún þeirra
allbreytileg. Stundum verða þeir
lítið annað en einskonar þoku-
hnoðrar, en stundum er efnunin
mun fullkomnari, jafnvel svo að
jafnast getur á við fasta hluti á
jörðu hér.
Þessir hlutir hafa oft sést i
radar, og er það órækur vottur
þess, að um raunverulega hluti er
að ræða.
En svo er sá möguleiki einnig
fyrir hendi, að ekki sé um að ræða
efnun „fljúgandi diska“ hér, þótt,
menn telji sig sjá þá í umhverfi
sinu. Er þá um að ræða fjarskynj-
un til annars hnattar. Hinn
skyggni maður sér þá hlutinn í
hinu rétta umhverfi hans, þ.e. á
annarri stjörnu. Þessi tegund
flugdiskasýna mun vera talsvert
algeng. Vil ég nefna dæmi, sem
skýrir slíka sýn: Tveir menn
standa úti og horfa til himins.
Annar þeirra sér „fljúgandi disk“
fara um loftið, hann sér lögun
hans og lit og útlit allt. En hinn,
sem stendur hjá honum, getur
ekkert séð. I slíkum tilvikum eru
allar Ifkur á, að um sé að ræða
fjarsýn til annars hnattar. Sá sem
sér er skyggn eða ófreskur á
þeirri stundu. Margar frásagnir
eru um dæmi þessu Iík.
III
Önnur hliðstæð fyrir-
bæri. Fjarskyggni.
Fjarsýnir.
Algengt er að fólk sjái sýnir og
lýsi þeim jafnóðum, þótt aðrir
viðstaddir sjái ekkert. Svo hefur
oft verið, að því er snertir huldu-
fólk og ýmsar aðrar sýnir.
Mig langar til að segja frá einu
dæmi þessu til skýringar: Vorið
1973 komu hingað til lands frú
Greta Aglberg og Anthony
Brooks. Þau eru mjög áhugasöm
um flugdiskamál og hafa árum
saman starfað á vegum erlendra
flugdiskafélaga að rannsóknum
slfkra fyrirbæra og að kynningu á
þeim víða um lönd. — Þau dvöld-
ust hér á landi frá 22. mai til 30.
maí 1973. Á vegum Félags Nýals-
sinna var haldin opinber sam-
koma með þeim ásamt fyrir-
lestrum í Norræna húsinu i
Reykjavík þann 27. maí 1973.
Einn daginn ókum við með þeim
upp að Kaldárseli, ofan við
Hafnarfjörð, og staðnæmdumst
þar um stund. Veður var gott en
himinn alskýjaður. Við okkur
blasti Helgafell, sem er þarna
skammt frá. Það má heita alveg
gróðurlaust, og svæðið milli þess
og Káldársels er gróðurlausir
vikursandar og hraun.
Er við höfðum staðnæmst þarna
við Kaldársel, sá frú Grete
Ahlberg sýn nokkra og lýsti henni
fyrir okkur jafnóðum á þessa leið:
„Ég sé fjallið þarna. Það er
heilagt fjall. (Aths.: „Holy
mountain" kallaði hún það á
enskunni, en ekki höfðum við
sagt henni, að það héti Helgafell,
enda kom brátt í ljós að það sem
hún lýsti var ekki þetta Helgafell
okkar eða umhverfi þess heldur
eitthvert annað fjall, sem við
höfðum ekki fyrir augum.) Þetta
eru í rauninni tvö samliggjandi
fjöll og er skarð eða lægð á milli
þeirra. (Aths.: Helgafell er eitt
einstakt fjall og ekkert skarð í
þvi.) Ég sé heiðan himin milli
þessara tveggja hnjúka og yfir
þeim. Fjallið í heild er vaxið
gróðri. Þetta er ákaflega fagurt
fjall, og frá þvi stafa góð áhrif. Og
nú sé ég fagurt hús. Það stendur
undir fjallinu, og ekki mjög langt
frá okkur. Það er mikill gróður
kringum þetta hús. Ég sé fólk
nálægt húsinu. Það er eins og það
sé að vinna eitthvað við jarðrækt
eða við gróðurinn, sem þarna er
allsstaðar. Þetta er dásamleg
fegurð, sem við mér blasir og eins
og mikil helgi hvíli yfir þessum
stað. — En nú er eins og þetta
dofni allt. — Nú sé ég þetta ekki
lengur. — Ég sé bara gróðurlaust
fjall og sandauðnir hérna í ná-
grenninu."
Þetta er lýsing á sýn, sem þessi
kona sá, og lýsti fyrir okkur. Telja
má alveg vfst, að þarna h.afi verið
um fjarsýn að ræða. A meða’n á
þessu stóð var hún með opin
augu. Vió báðum hana að loka
þeim, til að komast að því, hvort
það breytti nokkru. Hún gerði
það, og kvaðst sjá allt jafn skýrt
fyrir því og hélt áfram lýsingu
sinni á hinu framandi umhverfi,
eins og ég hef haft eftir henni hér
að framan.
Undarlegt finnst okkur að slík-
ar sýnir sem þessar skuli geta átt
sér stað. Vakandi fólk með opin
augu sér Iandslag og atburði, sem
eru að gerast einhversstaðar i
fjarlægð, annað hvort á okkar
jörð eða á einhverjum ■ öðrum
hnetti. Vegna þess að sýnin á sér
stað í vökuástandi er algengt að
hið ófreska fólk setji sýnina í
samband við það landslag, sem
við augum blasir. Þannig er það
oftast með huldufólkið svokall-
aða, að það er sett í samband við
kletta og hóla vegna þess að það
hefur þetta landslag fyrir augum