Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1976, Side 8
Meðfylgjandi
grein og myndir er
framlag Lesbókar
til að minnast
listakonunnar Bar-
böru Árnason, sem
lézt fyrir aldur
fram rétt fyrir síð-
ustu áramót. Bar-
bara var í hópi
þeirra listamanna,
sem lagt hafa Les-
bókinni lið og fyrir
þremur árum
teiknaði hún til
dæmis forsíðu-
mynd á jólablað
Lesbókar. Yfirlits-
sýning á verkum
hennar að Kjar-
valsstöðum fyrr í
sumar, vakti verð-
skuldaða athygli.
Eins og þar mátti
svo vel sjá, var
Barbara jafnvíg á
margskonar tækni.
Aðalsmerki henn-
ar var þó, að hún
gat gert undra fall-
egar myndir, sem
um leið voru feyki-
lega vel gerðar og
sterkar myndrænt
og þrátt fyrir blíð-
una í innihaldi
þeirra, voru þær
aldrei væmnar.
Það var einmitt
þessi einstæða
blíða og velvilji,
sem var meginein-
kenni Barböru. Því
miður er það sjald-
gæf sameining að
vera stórbrotinn
listamaður og dýr-
leg manneskja. En
þannig var Bar-
bara Árnason, —
og þessvegna verð-
ur alltaf Ijúft að
minnast henn-
ar. GS.
Grafíkmynd eftir Barböru Ámason.
Bragi Ásgeirsson
Þrjðr
myndir
-þrjú
tímaskeiö
Um list Barböru Árnason
I tilefni sýningar ö verkum
hennar ö Kjarvalsstööum
fyrr í sumar
Sjálfsmvndina á forsfðu inálaði
Barbara Arnason árið 1941 í
vatnslitatækni og mun þetta eina
varðveitta sjálfsmynd hennar, en
hún kann að hafa gert fleiri en
eyðilagt þær. Enginn mun hafa
fengið að sjá neitt af verkum
hennar fyrr en þau voru fullgerð
og eru því hér engar tiltækar
heimildir. Sjálfsmyndin ber
greinilega vott hinnar ensku skól-
unar listakonunnar, hér er ensk
hefð f vatnslitatækni meðhöndluð
á ffngerðan kvenlegan hátt. Svip-
ur listakonunnar ungu er einlæg-
ur og opinn og svo er sem hún
bfði einungis eftir að hefja það
Iffsverk er við nú þekkjum mörg
svo vel. Er eftirtektarvert að lista-
kona sem teiknaði og málaði jafn-
mikinn fjölda barna- og manna-
mynda skyldi leggja svo litla
rækt við að festa eigin ásjónu á
blað eða léreft, og var þó andlits-
form hennar sennilega mynd-
rænna og konan glæsilegri flest-
um þeim er hún gerði skil. Máski
stafar það af þvf hve mikið hún
lagði jafnan af sjálfri sér f allar
myndir sínar, þær endurspegla
hina nærfærnu innri vitund lista-
konunnar, en annars lýtur fjöldi
sjálfsmynda myndlistarmanna,
engum sérstökum lögmálum að
því er best verður séð. Þannig
•iggja jafnvel engar sjálfstnyndir
eftir marga þeirra, er engu sfður
voru uppteknir af eigin sjálfi en
þeirra er máluðu fjölda sjálfs-
mynda. Sjálfsrýni og hin áleitna
spurning um takmark og tilgang
sjálfsins leitar á flesta f einhverri
mynd, og hér hefur listakonan
Barbara Árnason fest ásjónu
æsku sinnar á blað eftir að marka
list sinni stærri afrek. Þessi
mynd er fyrir margt einkennandi
fyrir myndstfl Barböru um all-
langt skeið og mettuð viðkvæmni
æskunnar f pensildráttum og
meðferð litaskalans.
Við upphaf fimmta áratugsins
gerist breyting á myndstfl Bar-