Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1977, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 06.02.1977, Blaðsíða 12
OFDRYKKJA Eftir Sigurjón Björnsson sálfræðing „sósfaldrykkja" sem svo er nefnd á erlend- um málum, þ.e. drykkja f sambandi við alls konar samkomur, mannfagnaði og fundi, hef- ur orðið mörgum að falli. „Líklega er fimmti hver karl og um tíunda hver kona alvarlega hád áfengi. Áætlunartölur sama eðlis fyrir landið allt eru til frá árinu 1957. Þá var gert ráð fyrir, að tæplega 10% karla væru of- drykkjumenn og 0,5% kvenna. Sam- kvæmt þessu hefur misnotkun nálega tvöfaldast hjá körlum á þessu tímabili og um tuttugufaldast hjá konum“. i Wmm ~~'4 f * ,, Glima við ráðgátur, vanda og verk- efni er tryggur fylgifiskur mannlegs lifs. í raun má segja, að flestallar athafnir mannsins, — ef þær á ann- að borð bera i sér eitthvað nýtt, — krefjist endurskoðunar á venjum, hugmyndum og aðferðum og leiði til breyttra sjónarmiða og afstöðu, Þetta er eðli alls lífs. Frá uppeldislegu sjónarmiði, og i þvi samhengi sem hér um ræðir, er vert að hugleiða, hvernig persónu- leiki mannsins mótast i þessu tilliti. Barn er í fyrstu ósjálfstætt og háð foreldrum sínum, vegna bjargarleysis sins. Ætlazt er til, að það verði smátt og smátt sjálfstæðara og virkara og taki aðlögun sina meira og meíra i sínar hendur, unz það að lokum sem fullorðinn einstaklingur er fært um að ráða ráðum sinum og standa á eigin fótum. Hafa verður þó í huga, að hér er sett fram líkan að stefnu og loka- marki persónuþroska, sem samsvarar tiltekinni þjóðfélagsgerð. Önnur likön eru og til, sem henta annars konar þjóðfélagsháttum. Til þess að ein- staklingi farnist vel í þjóðfélagi okkar og öðrum ámóta, þarf hann að vera tiltölulega sjálfstæður, treysta getu sinní innan skynsamlegra marka, hafa til að bera sjálfsvirðingu og rika tilfinningu fyrir því að honum beri að marka stefnu lifs sins og leysa þann vanda, sem upp kemur i einkalifi og samskiptum við aðra. Sá maður trúir eða treystir ógjarnan á kraftaverk eða tilviljanir, og hann hefurditla hneigð til að kenna öðrum um, þótt sitthvað gangi verr en skyldi. Samfara þessu þarf tilfinningalíf mannsins að vera i sæmilegu jafnvægi: hann þarf að njóta sin i samskiptum við aðra og geta látið aðra njóta sín. Og afleiðing alls þessa er ..lífsnautnin frjóva", eins og skáldið kvað. Allir vita, að marki sem þessu er sjaldnast náð til fullnustu. Þetta er þvi ekki annað en hugsjón um velþrosk- aðan persónulei|<a. Fjölda margir eru þeir, sem alla tið eru ósjálfstæðir og öðrum háðir. Þeir sem vantreysta getu sinni og komast ávallt i varnar- stöðu andspænis erfiðleikum. Þung- bært er i slikum tilvikum að taka sjálfur á sig sök ófara og misheppn- aðrar lifsstefnu og nærtækt fyrir þann, sem skipar sjálfum sér lágan sess, að lita svo á að öll vandamál séu utanfrá komin, öðrum að kenna, háð tilviljunum eða sprottin frá meinleg- um örlögum. En innra fyrir býr samt engu að siður sú sára og niðurlægj- andi tilfinning, að maður hefði átt að gera betur, standa sig betur. Líf sem þannig er markað, er ekki hamingjusamt lif, því að það er líf á flótta, líf í vörn. Út úr ógöngum sem þessum er aðeins ein leið rétt. Hún er fólgin í auknum skilningi á sjálfum sér, stöðu sinni og stefnu og átaki til breytinga i kjölfar slíks skilnings. Sé persónuröskunin ekki mjög rótgróin og ekki mjög víðtæk, tekst þetta stundum ýmist án eða með utanað- komandi hjálp. En ef aðeins ein leið er rétt, eru margar rangar þar sem hætta er á að menn festist i kviksyndi vandamála. Það er ekki á minu færi, að rekja allar þær slóðir um vegleysur lifsins, enda ekki viðfangsefni þessa greinarstúfs. En benda má samt á fáeinar blindgöt- ur. Sú hættulegasta er eflaust algjör uppgjöf. Menn gefast upp á vanda lífsins og binda beinlinis enda á það eða snúa baki við því og hrapa niður i myrk djúp geðveikinnar, þar sem öll sjálfsábyrgð hverfur. Hættuminni leið er taugaveiklunin í öllum sinum fjöl- breytilegu myndum og stigum. Henni fylgir oftast viss takmörkun á athafna- sviði manna, viss vernd, sem keypt er við verði margvíslegra þjáninga. Þá er og sjálfsblekkingin nauðatíð. Stað- reyndum er afneitað eða þær eru úr lagi færðar; falskar vonir eru gefnar sjálfum sér og öðrum; afrek eru upp- diktuð, ýkt eða stilfærð. Nú er það ofurskiljanlegt, að fólk, sem er meira og minna sundrað í persónuleika sínum, tvírátt og kviðið, öryggislaust og ósjálfstætt, vantreyst- ir sjálfu sér og vanmetur, leiti mest til þeirra lausna, sem næstar eru hendi, algengastar og mest boðnar fram. Sérhvert samfélag manna hefur upp á talsvert safn slikra lausna að bjóða. Sumar eru góðar og gagnlegar, aðrar miður æskilegar og enn aðrar afleitar. Sem dæmi úr okkar þjóðfélagi má nefna, að til skamms tima var vinnan talin ,,allra meina bót". Þá hefurtrúar- iðkun löngum verið hefðbundin leið til lausnar á lifsvanda. Skemmtiiðnað- urinn býður mönnum uppá ótal leiðir til að gleyma sjálfum sér. Og í tengsl- um við skemmtanir eða sérstaklega er áfengi og notkun deyfilyfja ein af hinum þekktari leiðum. Þar á áfengið sér langa sögu sem gleðigjafi. Hin almenna notkun þess byggist að sjálf- sögðu á því að það deyfir um stundar- sakir andlegan sársauka, dregur úr kvíða, losar um spennu og eykur sjálfstraust. En eins og allir vita, er áfengisnotkun hættuleg leið. Þær vonir, sem Baccus gefur eru falskar. Hann gerir menn háða sér og getur auðveldlega steypt þeim í glötun. Öll þau fyrirheit, sem hann gefur snúast fyrr eða siðar i andstæðu sína. Einmitt vegna þessarar miklu hættu, sem fólgin er i notkun áfengis fyrir þann mikla fjölda fólks, sem hér um ræðir, er ískyggilegt hversu viðhorfin i þjóðfélaginu halda þessari gervi- lausn fast að fólki. Einkum er hættan mikil fyrir unglinga, sem ekki hafa glímt til fullnustu við erfiðustu krepp- ur persónuþroskans. En allur þorri þeirra ætti að geta fundið rétta leið,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.