Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1977, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1977, Blaðsíða 2
Persónu- þroski °g ofdrykkja Glíma við ráðgátur, vanda og verk- efni er tryggur fylgifiskur mannlegs lífs. í raun má segja, að flestallar athafnir mannsins, — ef þær á ann- að borð bera í sér eitthvað nýtt, — krefjist endurskoðunar á venjum, hugmyndum og aðferðum og leiði til breyttra sjónarmiða og afstöðu. Þetta er eðli alls lifs. Frá uppeldislegu sjónarmiði, og í því samhengi sem hér um ræðir, er vert að hugleiða, hvernig persónu- leiki mannsins mótast í þessu tilliti. Barn er i fyrstu ósjálfstætt og háð foreldrum sínum, vegna bjargarleysis sins. Ætlazt er til, að það verði smátt og smátt sjálfstæðara og virkara og taki aðlögun sína meira og meira i sinar hendur, unz það að lokum sem fullorðinn einstaklingur er fært um að ráða ráðum sínum og standa á eigin fótum. Hafa verður þó i huga, að hér er sett fram líkan að stefnu og loka- marki persónuþroska, sem samsvarar tiltekinni þjóðfélagsgerð. Önnur líkön eru og til, sem henta annars konar þjóðfélagsháttum. Til þess að ein- staklingi farnist vel í þjóðfélagi okkar og öðrum ámóta, þarf hann að vera tiltölulega sjálfstæður, treysta getu sinni innan skynsamlegra marka, hafa til að bera sjálfsvirðingu og ríka tilfinningu fyrir þvi að honum beri að marka stefnu lífs síns og leysa þann vanda, sem upp kemur í einkalifi og samskiptum við aðra. Sá maður trúir eða treystir ógjarnan á kraftaverk eða tilviljanir, og hann hefur litla hneigð til að kenna öðrum um, þótt sitthvað gangi verr en skyldi. Samfara þessu þarf tilfinningalif mannsins að vera i sæmilegu jafnvægi: hann þarf að njóta sin í samskiptum við aðra og geta látið aðra njóta sin. Og afleiðing alls þessa er „lífsnautnin frjóva ', eins og skáldið kvað. Allir vita, að marki sem þessu er sjaldnast náð til fullnustu. Þetta er þvi ekki annað en hugsjón um velþrosk- aðan persónuleika. Fjölda margir eru þeir, sem alla tíð eru ósjálfstæðir og öðrum háðir. Þeir sem vantreysta getu sinni og komast ávallt í varnar- stöðu andspænis erfiðleikum. Þung- bært er í slikum tilvikum að taka sjálfur á sig sök ófara og misheppn- aðrar lifsstefnu og nærtækt fyrir þann, sem skipar sjálfum sér lágan sess, að lita svo á að öll vandamál séu utanfrá komin, öðrum að kenna, háð tilviljunum eða sprottin frá meinleg- um örlögum. En innra fyrir býr samt engu að siður sú sára og niðurlægj- andi tilfinning, að maður hefði átt að gera betur, standa sig betur. Líf sem þannig er markað, er ekki hamingjusamt lif, þvi að það er lif á flótta, lif í vörn. Út úr ógöngum sem þessum er aðeins ein leið rétt. Hún er fólgin í auknum skilningi á sjálfum sér, stöðu sinni og stefnu og átaki til breytinga í kjölfar sliks skilnings. Sé persónuröskunin ekki mjög rótgróin og ekki mjög viðtæk, tekst þetta stundum ýmist án eða með utanað- komandi hjálp. En ef aðeins ein leið er rétt, eru margar rangar þar sem hætta er á að menn festist í kviksyndi vandamála. Það er ekki á minu færi, að rekja allar þær slóðir um vegleysur lífsins, enda ekki viðfangsefni þessa greinarstúfs. En benda má samt á fáeinar blindgöt- ur. Sú hættulegasta er eflaust algjör uppgjöf. Menn gefast upp á vanda lifsins og binda beinlínis enda á það eða snúa baki við því og hrapa niður í myrk djúp geðveikinnar, þar sem öll sjálfsábyrgð hverfur. Hættuminni leið er taugaveiklunin i öllum sínum fjöl- breytilegu myndum og stigum. Henni fylgir oftast viss takmörkun á athafna- sviði manna, viss vernd, sem keypt er við verði margvislegra þjáninga. Þá er og sjálfsblekkingin nauðatið. Stað- reyndum er afneitað eða þær eru úr lagi færðar; falskar vonir eru gefnar sjálfum sér og öðrum; afrek eru upp- diktuð, ýkt eða stilfærð. Nú er það ofurskiljanlegt, að fólk, sem er meira og minna sundrað i persónuleika sinum, tvirátt og kviðið, öryggislaust og ósjálfstætt, vantreyst- ir sjálfu sér og vanmetur, leiti mest til þeirra lausna, sem næstar eru hendi, algengastar og mest boðnar fram. Sérhvert samfélag manna hefur upp á talsvert safn slíkra lausna að bjóða. Sumar eru góðar og gagnlegar, aðrar miður æskilegar og enn aðrar afleitar. Sem dæmi úr okkar þjóðfélagi má nefna, að til skamms tima var vinnan talin „allra meina bót". Þá hefur trúar- iðkun löngum verið hefðbundin leið til lausnar á lífsvanda. Skemmtiiðnað- urinn býður mönnum uppá ótal leiðir til að gleyma sjálfum sér. Og i tengsl- um við skemmtanir eða sérstaklega er áfengi og notkun deyfilyfja ein af hinum þekktari leiðum. Þar á áfengið sér langa sögu sem gleðigjafi. Hin almenna notkun þess byggist að sjálf- sögðu á því að það deyfir um stundar- sakir andlegan sársauka, dregur úr kvíða, losar um spennu og eykur sjálfstraust. En eins og allir vita, er áfengisnotkun hættuleg leið. Þær vonir, sem Baccus gefur eru falskar. Hann gerir menn háða sér og getur auðveldlega steypt þeim í glötun. Öll þau fyrirheit, sem hann gefur snúast fyrr eða síðar i andstæðu sína. Einmitt vegna þessarar miklu hættu, sem fólgin er í notkun áfengis fyrir þann mikla fjölda fólks, sem hér um ræðir, er ískyggilegt hversu viðhorfin i þjóðfélaginu halda þessari gervi- lausn fast að fólki. Einkum er hættan mikil fyrir unglinga, sem ekki hafa glimt til fullnustu við erfiðustu krepp- ur persónuþroskans. En allur þorri þeirra ætti að geta fundið rétta leið, ef áfengisneyslan lokar henni ekki. Nú eru viðhorfin þau til áfengis, að það er eins og hvislað sé úr hverju skoti: „Kjóstu mig". Væri framboðið minna og viðhorfin önnur, er llklegt að fjölda fólks gengi betur að finna sjálft sig og leiðina til farsæls lífs. Persónuþroska mannsins er ekki lokið, þó að hann komist í tölu fullorð- inna. Á fullorðins árum byrjar maður- inn með vissum hætti nýtt lif, því að nýjar aðstæður verða til (starf, fjöl- skylda, þátttaka i félagslífi, sam- félagsleg ábyrgð), sem taka þarf af- stöðu til og fella að þeirri sjálfsmynd, sem fyrir er. Endanleg lífsstefna og lífsviðhorf mótast sjaldnast að fullu fyrr en komið er alllangt fram á fullorðinsár, enda er naumast raun- hæft að slikt gerist fyrr. Ef undirstað- an er traust og aðstæðurnar, sem fengizt er við ekki tiltakanlega flóknar eða nýstárlegar, eru verkefni sem þessi yfirleitt viðráðanleg. En fyrir getur komið, að þau séu þess eðlis, að þau verði mörgum um megn. Afleiðing þess verður, persónuleikinn nær aldrei þeirri festu, sem æskilegt væri, og getur það lýst sér i ýmsum myndum m.a. f óeðlilega mikilli áfengisnotkun. Margt bendir til þess, að skilyrði fullorðinna hér á landi til að „Ijúka" persónuþroska sinum hafi verið eink- ar slæm á síðari áratugum, raunar allt frá þvi snemma á fimmta áratugnum. Þar á ég við þær gifurlegu breytingar, sem hafa átt sér stað i þjóðfélagi

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.