Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1977, Qupperneq 8
Riitta Mðkinen: KAPLÖB
„Vefnaður verður til á þann
hátt að þræðir mætast sinn úr
hvorri átt, bindast eða fléttast
saman og verða að einni sam-
hangandi heild...“. Þetta eru
upphafsorð f Vefnaðarbók frú
Sigrúnar P. Blöndal og þau
standa enn f fuilu gildi, en
verkin sem til sýnis eru á Kjar-
valsstöðum um þessar mundir
eiga það eitt sameiginlegt sem
fólgið er í þessu grundvallar-
atriði, þvf bæði er þar um að
ræða fjölbreyttan efnivið og
margskonar og ólfka úrvinnslu.
Dúkar og voðir þjóna enn
sfnu gagnlega hlutverki eins og
verið hefur frá alda öðli, en
vefnaður sem sjálfstæð list-
grein hefur hins vegar átt
ttokkuð erfitt uppdráttar. Á síð-
ustu áratugum hefur veflistin
víkkað að mun svið sitt og lista-
fóik notar þennan efnivið með
æ fjölbreytilegri tiibrigðum til
Hstrænnar tjáningar.
Nú er svo komið að þessi list-
grein hefur skipað sér fastan
sess meðal annarra viður-
kenndra listgreina, jafnt hjá
okkur á norðlægum slóðum
sem annars staðar um heim.
Sýningin á Kjarvalsstöðum
ber þess órækan vott og má
segja að hún marki tfmamót f
þessum efnum hérlendis þar
sem svo yfirgripsmikil sýning á
veflist hefur ekki áður sést hér
á landi.
Eins og komið hefur fram f
blöðum er hér um að ræða sam-
norræna sýningu sem komið
var á með styrk frá Norræna
Menningarmálasjóðnum og
fleiri aðilum, þar sem veflista-
fólk frá Danmörku, Finnlandi,
tslandi, Noregi og Svfþjóð sýn-
ir verk sfn. Sýningunni var um
leið ætlað að fara á milli allra
aðildarlandanna. Hingað er
hún komin frá Finnlandi en fer
héðan til Færeyja. Áður hefur
hún veríð bæðí f Danmörku,
Noregi og Svfþjóð.
Þegar að þvf kom að velja
verk á þessa sýningu var sá
háttur á hafður að skipuð var
dómnefnd með einum fulltrúa
frá hverju Norðurlandanna en
fulltrúi af Islands hálfu var
valin Ásgerður E. Búadóttir.
öllum var heimilt að senda inn
verk til dómnefndar en af rúm-
lega 600 verkum sem bárust
henni voru valin 116, sem skipt-
ast þannig: frá Danmörku—34,
frá Svfþjóð—31, frá
Finnlandi—21, frá Noregi—17
og frá tslandi—6 og megum við
lslendingar vel við una. Dóm-
nefndin vann út frá þvf sjónar-
miði að hver þátttakandi væri
sinn eigin fulltrúí, en ekki
sinnar þjóðar.
Má segja að henni hafi verið
mikili vandi áhöndum að veija
úr svo miklum fjölda verka,
enda haft eftir einum nefndar-
manna að setja mætti upp tvær
aðrar jafngóðar sýningar með
þvf sem hafna varð f fyrstu
atrennu. En ætlunin er að
halda sýningar sem þessa
þriðja hvert ár.
Ummæli blaða á Norðurlönd-
um um þessa sýningu hafa ver-
ið mjög lofsamleg og þykir hún
hin merkasta f alla staði. Þar er
fslenzku listakonunum gert
hátt undir höfði og standa þær
að dómi þarlendra hvergi hin-
um að baki.
1 einstaka blaðaummælum
sést Ifka að þessi tjáningarmáti
á ekki jafngreiðan aðgang að
öllum — þetta er nýjung, sem
taka ber með varúð, hugsa sum-
ir, og þá ekki hvað sfst þar sem
f sköpunargleðinni má marka
nokkra gamansemi. „Prjónað
brúðkaup", jú, það er svo sem
skaðlaust — en er það list? Á
öðrum stað er þessu prjónaða
brúðkaupi lfkt við verk eftir
Chagall eða Miro.
En bvað sem um gamansem-
ina má segja, þá er það vfst að
veflistin á tvfmælalaust erindi
við allan almenning. Þarna læt-
ur listamaðurinn efniviðinn
tala sfnu máli f meðferð, lfnum
og litum. Samspil þessa upplif-
ir áhorfandinn f heild — áhrif-
in eru þægileg, ekki framandi
— ef til vill vegna þess að efni-
viðurinn er öllum nákunnugur.
Hér er ekki ætlunin að gera
einstökum listamönnum eða
verkum skil, sýningin er svo
margbreytileg og fjölþætt að
hún verður að tala fyrir sig
sjálf — og þvf ekkert þarfara
gert en hvetja fólk, unga og
aldna til að sjá með eigin aug-
um.
Ef skilgreina ætti áhrif að
lokinni heimsókn á þessa vef-
listarsýningu verður efst f huga
fullvissa um að þarna fer alvar-
legt listafólk, sem vinnur mark-
visst að verkefnum sfnum með
frábærum árangri — en við
hlið alvöruþungans rfkir einnig
gáski og gleðí, eins og oft er f
bópi þeirra sem fara ótroðnar
slóðir og sjá möguleika til f jöl-
breytni við hvert fótmál.
Sé tiigangur sýningorinnar
aó Kjarvalsstöðum sá aó sanna
tilverurétt veflistar með öðrum
listgreinum, þá er honum
vissulega náð.
up
sýni
Þó
Ragi
Svi