Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1977, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1977, Side 10
Smösaga effir SOYA Portretttil- einkaööll- umöhuga- sömum les- endumsaka mölasagna. Friðrik Ingimar Gyppel er lítill og fölleitur maður á fimmtugsaldri. Hann starfar við Lánasjóð opinberra starfsmanna, er kvæntur en á engin börn. Allt þetta má í raun og veru sjá utan á honum nema helst eftirnafnið. Gyppel er blíðlyndur maður og góðgjarn, lítillátur og hógvær. Þaðer ekki laust við að ókunnugum finnist hann hálf-kátbroslegur við fyrstu sýn. Han er fádæma vanafastur — alveg hreint óskaplega vanafastur — sem hann viðurkennir auðvitað alls ekki. Hann lýkur augunum upp á nákvæmlega sama tíma hvern ein- asta morgun. Að því búnu situr hann nákvæmlega tvær og hálfa mínútu á rúmstokknum og klórar sér á magan- um. Hvern einasta morgun fer han á salernið ásamt þvi dagblaði sem hann hefur keypt í 23 ár. Á hverjum morgni fær hann sér glas af sódavatni ásamt kruðum með hnetusmjöri og einum og hálfum bolla af annars flokks kaffi úr sölufélaginu. Undantekningalaust fer hann á skrifstofuna á nákvæmlega sama tíma hvern morgun, stansar á leiðinni við sömu búðirnar, kemur til vinnu 5 mínútum fyrir opnunartíma og skiptir um jakka 3/4 úr mínúti eftir kom- una. Hvern dag í matarhléi etur hann fjögur og hálft stykki smurbrauðs, ætíð með sýrðum agúrkum, drekkur hálfan lítra af mjólk og þurrkar sér meðákveðinni handahreyfingu um munninn með pappírsservíettu. Á hverjum eftirmiðdegi á sama tima klappar hann reiknivélinni, breiðir yfir hana og segir við sjálfan sig og vélina: „Hananú, þetta er nóg í dag." Og á hverjum eftirmiðdegi fremur hann morð. Girndarmorð. Gyppel gjaldkeri opnar fordyrnar og gengur inn í dimmt anddyrið á heimili sínu. Stynjandi og másandi afklæðist hann frakkanum, hengir hann á snaga og gengur fram í eldhús til að tilkynna eiginkonunni komu sina. Frú Gyppel stendur við eldhúsborð- ið nálægt bláhvítum lampa og saxar niður gulrætur. Hún snýr heitri kinn- inni að manni sínum og tekur við kossi. „Ég er ögn lúinn," segir Gyppel gjaldkeri. „Ég held að ég fari inn og fái mér smálúr." „Gerðu það," svarar kona hans sykursætri röddu. „Á meðan held ég áfram með matinn og þá verður hann tilbúinn þegar þú vaknar." Gyppel gengur inn i borðstofu án þess að kveikja. Því ekki að spara rafmagnið þegar stór Ijósastaur var rétt við gluggann? Til svefns er það alla vega nógu góð lýsing. Gyppel dregur rúllugluggatjaldið niður, — varlega, svo hann brjóti ekki blómin á asterinni eða blöðin á hvitasunnu- kastusnum. Hann sleppir ekki gluggatjaldinu fyrr en það hvilir kyrfi- lega niðri og engin hætta er á að það þjóti upp með skyndilegum ofsa. Hendur hans skjálfa eins og hann ætli á stefnumót! Nú tekur hann skammelið frá hægindastólnum — blásvörtum skoskum hægindastól, sem þau hjón- in höfðu fengið á silfurbrúðkaupinu, — nær sér i teppi og sveipar því um sig. Fölbleikar, skjálfandi hendurnar lætur hann hvila á maga sér undir teppinu. Gyppel lokar augunum. Ánægju- bros færist fram á varir hans og breiðist út um andlitið. Þessar sið- degisminútur eru bezti tími sólar- hringsins. „Hvern skal nú velja," hugsar hann. „Útibússtjórann i sölufélaginu, hótelstjórann, forstjórann, ungfrú Marsibil. . ." Gyþpel heldur áfram að þylja upp nöfn hverrar persónunnar á fætur annarri — þar til honum dettur i hug gamla ungfrú Löngren I númer 1 5. Hún er vellrik segja menn og svo býr hún alein. „Þá er að hugsa allt i gegn. Þaul- hugsa allt saman," segir gjaldkerinn við sjálfan sig. „Taka allt óvænt með í reikninginn, svo ekki verði nein vand- ræði. Hvernig á ég að komast héðan út?" Þarna kom fyrsta vandamálið. „Hvað á ég að segja Amalíu?" Hann endur- tekur hægt og með festu: „Hvað á ég að segja við. . . Hvað á ég að segja. . ." Svo segir hann snöggt: „Jú, ég segi að mig langi i vinarbrauð með kaffinu. Ég býðst sjálfur til að sækja það og þegar ég kem aftur, segi ég að það hafi verið lokað vegna jarðarfarar hjá Blómdal bakara og að ég hafi þurft að skoppa alla leið niður á Torg tiLað ná í vinarbrauð." Meðan hann si tur i stólnum sinum í borðstofunni læðist hluti af hans innra manni út úr honum, fer út um dyrnar, gengur þvert yfir götuna að nr. 1 5 og upp á tröppupallinn við hús ungfrú Löngren. Á þriðju hæð til vinstri stendur nafn hennar — Monróvía Löngren — á lítilli messingplötu. Gyppel sér greinilega dyrnar — brúngular, útflúraðar dyr með tveim- ar möttum glerrúðum I, dyrabjölluna

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.