Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1977, Blaðsíða 8
STAÐIR
OG
EERÐALÖG
1 Dalt Vila, gamla borgarhlutanum, eru hús og götur eins og hér sést. Þetta er
myndrænt umhverfi, en íbúðirnar kannski ekki uppá það bezta.
Það þykir sjálfsagður hlutur
nú orðið og heyrir eiginlega
til lifskjaramarki númer eitt að
geta árlega velt sér svo sem
tvær til þrjár vikur í makindum á
þeim fjörrum stöðum, sem almenn-
ingur nefnir einu nafni Sólarlönd.
Margir þekkja vist Mallorca heldur
skár en Vestfjarðakjálkann, Fljótsdals-
héraðið, að ekki sé nú talað um
ódáðahraun. Nýlega hafði ég spurnir
af hjónum, sem voru að fara i fjórt-
ánda sinn til Mallorca í sumarleyfinu
sinu. Ekki hafa þau kvalizt af forvitni
eða nýjungagirni. Þeir eru til — og
ófáir raunar, sem búnir eru að kemba
þessar sólarstrendur einu sinni eða
oftar: Costa del Sol suður i Andalúsíu,
Kanaríeyjar, Lignano á Adríahafs-
strönd Ítalíu, og í minni mæli: Al-
garve i suðurhluta Portúgal og Glyf-
ada-ströndina i námunda við Aþenu.
Allt er þetta dálitið hvað öðru likt,
þegar til kastanna kemur. Gildi ferða
af þessu tagi er þar fyrir ótvírætt og
helgast ekki hvað sist af þeirri til-
breytingu, sem nauðsynleg er hverj-
um manni. Þarna kynnast margir
önnum kafnir íslendingar þeirri hvíld,
sem þeir þekkja varla af afspurn
heima fyrir; hitinn á sinn þátt i þvi —
enginn simi, engir. fundir og kapp-
hlaup víð klukkuna. Menn kynnast
þvi að geta borðað góðan mat fyrir
brot af þvi sem kostar að snæða á
veitingahúsi heima og margir eiga
full erfitt með að láta þetta ódýra vín
ódrukkið.
í sumar var hamrað á þvi slagorði í
auglýsingum, að nú ætti maður að
koma með til Ibiza og ég lét vítaskuld
ekki segja mér það tvisvar og hefði þó
kannski verið nær að slást í för með
Þjóðverjum og Spánverjum, sem
hingað voru komnir til að sjá Öskju og
Herðubreiðarlindir með eigin augum.
í þeirri von að Askja og Herðubreiðar-
lindír verði ögn um kyrrt á sínum
stað, var gengið um borð í Flugfé-
lagsþotu á úthallanda degi uppúr
réttum og lent í myrkri eftir fjögurra
tíma flug á þeirri eyju, sem menn
nefna nú Ibiza og er í Baleariska
eyjaklasanum í Miðjarðarhafinu; spöl-
korn vestur af Mallorca.
Þarna var þá ein paradísin enn,
græn og gróðursæl yfir að líta og
hafið að sjálfsögðu blátt. Meira að
segja ku vera alveg sérstakur blámi á
Miðjarðarhafinu, sagði Jón heitinn
Engilberts mér og lygndi aftur augun-
um. „Nú er ég að synda í Miðjarðar-
hafinu", sagði Jón og tók sundtökin
þar sem hann sat í stólnum heima hjá
sér. Aftur á móti hefur ævinlega
vafizt fyrir mér að sjá þennan sér-
staka bláma öðrum bláma fegurri,
sem rómantikerar á síðustu öld gerðu
frægan, þegar Capri var tizkustaður
kóngafólks. Sé himinninn heiður og
blár, verður hafið venjulega blátt lika,
það er allt og sumt.
Flest kemur
spánskt fyrir sjónir
Ibiza er á stærð við Reykjanesskag-
ann, gróðursæl með afbrigðum, aJ-
sett hæðum og fjöllum og undirlendi
sáralítið. Ekki er mannfjöldanum til
að dreifa; ibúarnir aðeins 40 þúsund
og þar af búa 1 7 þúsund i Ibizaborg,
sem er stærsti bærinn og höfuðstaður
eyjarinnar, að hluta ævagamall og
skemmtilegur. Verður nánar vikið að
þvi síðar. Hinum megin á eyjunni
stendur bærinn San Antonío við fall-
egan fjörð; þar búa 8 þúsund manns,
en aðrir bæir eru mun minni og
dreifðir viðsvegar um eyjuna. Inn-
fæddir tala að sjálfsögðu spænsku,
en þó öllu fremur sin á milli mállísku,
sem nefnd er ibiceno. Þjónusta við
erlenda ferðamenn er vaxandi at-
vinnugrein og talsverður fjöldi hótela
upp risinn í Ibizabæ, San Antonio, St.
Aulalia, Cala Portinatx og víðar. Allt
er það þó smátt i sniðum á móti þeim
stóriðnaði í túrisma, sem fjöldi Islend-
inga þekkir af eigin raun frá Mallorca.
Á Ibiza er enginn yfirþyrmandi mann-
fjöldi, engin stórborgaíumferð. Flest
er þar þægilegt, Ijúft og létt og stað-
urinn kjörinn fyrir þá, sem vilja af-
slöppun, næði og hvíld. Ekki svo að
Eyjan hvíta hefur hún verið
nefnd — eftir byggingun-
um, en Ibiza er græn yfir
að líta, gróðursæl og frið-
sæl. Þar er eitthvað fyrir
alla, tízkudvalarstaður
hippa, Paradís venjulegra
túrista og i seinni tíð eru
íslendingar þar á meðal.
I
Ánæj
anna
um n
ingai
Á mj
á Ibi:
NÝR
ÁFANG.
VIÐ
MIÐJARÐARHAF
San Antonio er næst stærstur bær á Ibiza og þar eru hðtelin fyrirferðarmest. Túrisminn er sú atvin