Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Blaðsíða 6
 ENDUR- HEIMT PARA- DÍS Smásaga eftir Guömund L. Friðfinnsson Vox og litur grasvallarins sker vel af viö malbik götunnar. Nývöknuö blóm meöfram hellulögöum stígum. Skeggjaöi maðurinn meö háriö kem- ur slangrandi inn á völlinn og stefnir aö bekknum þar sem gamli konsúllinn situr í góðviörinu og hallast fram á staf sinn. „Hæ, ömmubróðir, þú hér, gamli gæi,“ kallar ungi maðurinn, „og ekkert aö gera, situr bara á bekk. Skárri er þaö nú aldarhátturinn." Hann hlær og buxur hans, pilsvíöar um mjóalegginn en þröngar um hné, slettast skrýtilega þegar hann gengur. „Skömm er aö sjá þig, afmánin þín,“ segir gamli maðurinn og lítur seinlega viö komumanni. „Þú ert ekki einu sinni hreinn, eða þá uppdrátturinn." Hann hristir höfuöiö og púar. „Ég sem er í litklæðum eins og frjálsræöishetjurnar góöu. Séröu þaö ekki, maöur? Kanntu ekki lengur að meta fornöldina, aha?“ „Sér eru nú hver litklæðin,“ segir sá gamli meö fyrirlitningu, „önnur skálmin rauö, hin blá. Aldrei hefur maöur nú séö annað eins. Hvar í ósköpunum færöu svona flíkur ef flíkur skyldi kalla?" „O, kærastan mixaði. Eins og þaö sé ekki alltaf hægt aö mixa og sletta bót ofan á bót. Er þaö ekki einmitt þaö sem ber aö gera til að viðhalda velferöarrík- inu, ha?“ Slíku geipi svarar konsúllinn auðvitaö ekki en varpar fram oröi í framhaldi af fyrri spurningu: „Eitthvað áttu þó skárra. Ekki trúi ég öðru.“ „Ég á aö minnsta kosti tíu galla af gamla skólanum. Þér er velkomiö aö fá þaö allt eins og þaö leggur sig.“ Hármaöur slær út höndum eins og tilbúinn aö faöma alheiminn, bætir síöan viö: „Aldrei er aö vita nema virðulegur gamlingi geti reddaö einum milljaröinum eöa svo þangað til hann er orðinn aö engu, hahaha." „Þú getur átt þína leppa fyrir mér,“ svarar gamli maöurinn þurrlega. „En ertu svo trúlofaöur í þokkabót einu sinni enn?“ „Trúlofaður og trúlofaöur ekki,“ svarar hármaður kæruleysislega og snýr rauöu buxnaskálminni aö frænd- anum. Síöan kveikir hann sér í vindlingi, dregur reykinn djúpt og blæs loks meö hægö út um nefiö, víkur sér enn einu sinni dálítið viö og veit nú bláa buxnaskálmin aö gamla manninum. „Auövitaö er maöur trúlofaöur. Eins og það sé nokkuö verri bissness en hvaö annaö. Er ekki heimurinn einn allsherjar bissness? Mér er spurn.“ Gamli maöurinn lítur á piltinn — virðir hann fyrir sér svo sem af sjónhending. „Eru trúlofanir þín atvinna, kannski?" Ungi maöurinn andar tóbaksreyk út í voriö. „Þaö er ekki verra djobb en hvaö annaö," svarar hann af tómlæti, „allavega eins gott og aö vera alltaf aö bjarga helvítis þjóöfélaginu og steypa því um leið.“ „Hættur á skrifstofunni?" Konsúllinn púar. „Hvaöa nútímamaöur heldurðu að nenni aö hanga á skrifstofu frá níu til fimm?“ heldur ungi maöurinn áfram. „Svoleiöis er ekkert frelsi og ekkert líf. Þeir sem enn láta teyma sig á nasahring gera þaö ýmist af eintómum ræfildóm eöa vana, nema hvorttveggja sé.“ „Efnilegur ungur maöur. Einkar efnilegt ungmenni,“ muldrar konsúllinn í bringu sér. „Og auövitaö atvinnulaus," bætir hann viö hærra. „Vinn þegar mér sýnist og slæpist þegar ég vil, en slæpist þó langmest. Ég er Adam aö endurheimta paradís. Það er djobb út af fyrir sig. Ertu meö á nótunum, gamli?" „Heillandi paradís þaö,“ segir gamli maöurinn. Eitthvaö hefstu þó aö. Ekki slæpistu endalaust.“ „Ég lifi og er bara,“ svarar ungi maðurinn og snýr nú rauöu buxna- skálminni aö þeim gamla. „Viltu smók?“ Gamli konsúllinn hristir höfuöið. „Pillu þá, gamli hasar, stoff — upp á frændsemi?" spyr skeggmaöur og glottir. Þessu svarar gamli maöurinn heldur ekki en rís upp af bekknum meö erfiðismunum og styöur sig viö stafinn. „Ljótt er, Ijótt er,“ tautar hann. „Eitthvaö þarftu þó aö éta, vænti ég, og skilding. Pening eruö þiö vanir aö þurfa, þessir höföingjar sem eigiö aö erfa landiö.“ Hann hristir höfuöuö. „Og trúlofaður í þokkabót, púfúff.“ „Eins og það séu ekki alltaf til nógir helvítis peningar,“ staöhæfir ungi maðurinn og dregur reykinn óvenju djúpt. „Til hvers er velferöarríki og til hvers er veriö aö redda ef ekki er svo til annar eins bölvaöur tittlingaskítur og peningar, ha?“ Gamli maðurinn horfir þegjandi á unga manninn — viröir hann aö þessu sinni fyrir sér hátt og lágt — ógreitt háriö niöur á heröar — skeggflókann, sem hylur verulegan hluta af yfirborði andlitsins, og fötin, hvoluö eins og legiö heföi veriö í þeim í beituskúr eöa á pakkhúslofti. „Og þú sem einu sinni varst efnis- og myndarbarn og eftirlæti á góöu heimili, enda af ágætisfólki kominn,“ stynur konsúllinn í uppgjöf. „Drottinn minn sæll og góöur. Margt getur komiö fyrir. Hvaö er það oröiö sem ekki getur gerst?“ Hann gerir sig líklegan til aö staulast burt, en tekur sig allt í einu á, snýr sér aö unga manninum og spyr: „Af hverju ertu eiginlega svona? Ekki er þetta þú sjálfur — þinn rétti maöur. Því trúi ég ekki fyrr en ég má til.“ „Víst,“ svarar ungi maöurinn. „Víst er þetta ég — Homo sabiens eins og hann lítur út þegar búiö er aö reyta af honum gervifjaörirnar sem þiö hafið tyllt á hann — Adam kominn aftur aö endurheimta sína glötuöu paradís. Æösta dýr jaröarinnar gengur nakiö milli ilmandi trjánna eins og í árdaga". Hann slær út höndum. „Bölvunin aöeins sú aö búiö er aö eta af skilningstrénu og síðan veit raunar enginn hvar paradísin er og því síöur hvort hún er eilíf. Og hvað er þá hægt annaö en leita og lifa svo bara meöan lifaö er? Ég kem í blesspartíið þitt, frændi." Hann veifar og snýst á hæli eins og hann sé aö fara. „Neí, bíddu,“ segir gamli maöurinn og færist ofurlítiö í aukana. „Ég er ekki dauður enn og óvíst hvor annan grefur. Framhald á bls. 19

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.