Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Blaðsíða 22

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Blaðsíða 22
Desember kaldur — ég með hita Smásaga eftir Hrafn Gunnlaugs- son Desember kaldur, ég meö hita. Ráfa um íbúöina, finnst allt tilgangslaust og ónýtt. Stundum hringir síminn og ég æsi mig upp út af engu, ríf kjaft og læt smámuni fara í taugarnar á mér, ímynda mér aö allir séu aö ofsækja mig. Barnsgrátur í stigaganginum. Diselbíll fyrir utan. ískápabragö af mjólkinni. í gær byrjaöi ég á leikriti um fólk sem festist í lyftu. Þrjár konur og tvo menn. Þau hafa búiö í sama stigagangi í fjögur ár, án þess að kynnast, aðeins kinkað kolli þegar leiöir skerast á morgnana og kvöldin. Viö lyftubilunina er þeim hins vegar þrýst inn á hvert annað í tvo tíma. Ég breyti þessu fljótlega í fjóra tíma. Nálægöin veröur til þess aö þau missa hversdagsgrímuna, hvert á fætur ööru, og innri maöur birtist í öllum sínum öfgum. Áöur en ég vissi af var allt logandi í samförum í lyftunni og búiö aö drepa eina konuna. Ég fékk andstyggö á hugmyndinni, hætti og fór aö skrifa ástarsögu. Sagan fjallar um konu sem á kött og kampavín. Og þótt veturinn gnauöi viö glugga fer ég meö hana upp í Heiömörk og legg hana í lyngiö meöal blómanna. Þá koma fáeinar Ijóðlínur upp í hugann: Er næturkuldinn blés í kaun kveikti hún grýlukerti og vafði um mig vorsins ilm ef vetrarfrostið herti. Og um leið sé ég allt aftur og sagan segir sig sjálf: Krókloppinn meö grýlukerti í skegginu villtist ég um í hitasvækju sumarsins, þegar konan meö köttinn tók mig í faöm sinn og kyssti burt frostiö af vörum mínum. En hver var hún, spyr ég haustvindinn sem ríður net úr rjúkandi mjöll yfir götuna? Ég veit aö ég varö mjúkur leir í örmum hennar og hún tók mig á siglingu um eldrauð höf. Og samt er ég ekki viss um að þaö hafi verið ég sem hvíldi í faömi hennar, þótt ég muni greinilega andardráttinn í ym hafsins og líkama hennar sem ruggaöi á öldunum. Ég var langförull ísjaki, læstur í farveg daganna meö kulnaða drauma á heröum og tók ekki eftir vorinu sem vekur elskendurna upp frá dauðum. í lífi mínu var eilífur febrúar. En þegar viö komum aö landi yfir höfin rauöu, rann morguninn upp inn í mér og utan viö gluggann. Var hún sólsterkjan eöa svartnættiö? Eöa stjarna sem missteig sig á festingunni og féll til jaröar? Vindurinn feykir burt spurningum mínum, og þær koma aftur til baka en drukknaðar í hlátri hennar, og ég veit ekki mitt rjúkandi ráö frekar en um morguninn þegar hún flögraöi meö mig út í hraun og lagði mig til þerris í sólinni þar sem ilmurinn úr lynginu er svo sterkur aö maöur breytist í flugu, blóm eöa fjall og á hvergi heima nema í miöju augnablikinu sem rúmar miljón eilíföir, og ég skildi ekkert í því af hverju viö vorum í fötum. Eöa hefuröu séö blóm í gallabuxum, eöa fjall í sportskyrtu? Hún sagöist eiga kött og hann heföi fundist meö Lenín á botni Eystrasalts- ins og ég skreiö í faöm hennar eins og kötturinn Lenín og hún kyssti burt alla kossana sem ég hef safnað gegnum árin og iímt á hörund mitt eins og frímerki, og áöur en ég vissi af voru gömlu unnusturnar lagðar á flótta meö atlotin í farangrinum og ég leit um öxl og sá þær breytast í saltstauka. Steinrunnin nátttröll sem elska ekki einu sinni í minningunni, og konan með köttinn ein í örmum mínum og ég yndislega ruglaöur inn í frönsku mál- verki af nakinni konu sem situr á teppi meö tveim prúöbúnum mönnum, og ég beið bara eftir því aö málarinn stryki blautum pensli yfir andlit okkar og festi okkur um eilífö á léreftiö svo allur heimurinn gæti séö hversu heitt ég elskaöi hana. Þá heyröi ég klikk fyrir aftan mig og lítill álfur meö myndavél stóö efst í lautinni og horföi á okkur stórum augum án þess aö segja orö, og þegar hún hætti aö kyssa mig og bauö honum aö koma og fá sér súkkulaði, tók hann til fótanna og hélt áfram aö hlaupa, þar til hann var aöeins örlítill díll á iöi í tíbránni. Hann hélt aö viö værum ímynd eöa draumur, þar til hann framkallaöi myndina og gat skoöaö okkur þar sem viö liggjum nakin í sólinni. Hann geymir myndina á leyndum staö upp í skáp og þegar hann hefur læst herberginu sínu og gengiö úr skugga um aö enginn liggi á gægjum tekur hann okkur fram úr pússi sínu og starir á okkur þar sem viö liggjum í lautinni, föst í faömlögum og heimurinn stendur kyrr. En þótt hann skoöi okkur þúsund sinnum efast hann á stundum um atburöinn í hrauninu, nær í myndina og rekur ofan í hana nefið og fitlar viö sjálfan sig, dreymandi um aö vera sjálfur á milli okkar, og þá verö ég jafn ruglaöur og hann og þrýsti þér að mér af enn meiri ákafa, til aö sannfæra mig um aö þú sért ekki ímyndun eöa draumur, faöma út í loftiö og ligg allt í einu út á gólfi meö kófsveitta sængina í fanginu og finn aö ég er veikasti maöur í heimi og hreint kraftaverk aö ég er ekki löngu kominn í hóp englanna — eöa púkanna og óþægilegur hrollur fer um háls og herðar. Ég reyni aö boröa, en matarlystin er engin, samt er ég viss um aö ég sé sársvangur. Geislalaus sólin gægist upp fyrir húsþökin í hádeginu, en er fljótlega horfin og skammdegiö grúfir yfir. Ég sit tímunum saman viö gluggann, horfi á umferöina, veit ekki hvaö ég á af mér aö gera. Ég byrja aö spinna upp sögu um rithöfund sem hittir sögupersónu sína Ijóslifandi. Persónu, sem hann hélt aö væri aöeins til í hans eigin hugarheimi. Þegar sögupersónan uppgötvar hver rithöfundurinn er, kvartar hún fyrst yfir þeim hræöilegu örlögum sem höfundur- inn hefur valið henni, ákveöur aö losa sig undan ofurvaldi skapara síns og drepur rithöfundinn. Allt í einu opnast sagan og dýpkar, ég sé Manninn drepa Guö sinn. Ofurmenniö sem öðlast fullt frelsi með því að höggva Guð og losa sig undan refsidómi almættisins. Synd- in hverfur og gullöld listanna hefst. Svo byrja ég aö efast um hugmynd- ina, finnst hún gömul og slitin, slengi henni frá mér. Fer að hugsa um konuna. Kannski þessa sem bjó á fjallinu? í konunni leynast tveir eölisþættir, ambáttin og haröstjórinn. Geristu þræll haröstjórans ertu ekki vaxinn vinskapn- um, en gerist þú frjáls maöur með sigri á haröstjóranum, eignastu ekki vin, heldur ambátt. Konan getur aldrei fetaö hinn gullna meöalveg vináttunnar. í brjósti konunnar búa glýja og svart- nætti hlið viö hliö. Hún skilur aöeins ofríki eöa undanlátsemi, ástina. Konan er eins og lax. Ekki hendir maður fiskinum aftur út í ána, heldur reynir aö setja í nýjan ... Móöurást er eitur í beinum kynvilltrar konu, því hún veit aö móöurástin stendur í vegi fyrir aö hún geti táldregiö konuna. Ég les yfir þaö sem ég hef skrifað og skammast mín. Líklega er ég kvenhatari eins og Strindberg, svo ég bæti viö: Ég ber eilíft í hjarta mínu djúpa viröingu fyrir konunni, fyrir brjóstum hennar, maga og ... Nei, fyrir aö fæöa af sér lífið, stærsta listaverk tilverunnar. Siguröur Pálsson kemur í heimsókn og segir að frézt hafi af manni sem hlaupi ýlfrandi um hverfiö á síðkvöldum og leiki vofu. Ég sé á svip hans, aö hann

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.