Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1978, Blaðsíða 7
 í- X . t. ' < , . ' t - ')0V. 1». fX< v- x-yXí Sveinbjörn Beinteinsson SNORRAMINNING 1978 Oft þegar kvöldar koma kvæöi dagsins í huga ort mér einum til gamans oröum og stuölum búin. Stuttoröar stökur fljúga stundum á hljómsins vængjum þegar aö sunnan svífur söngfögur lóa til heiöa. Fyrstu vorblómum fagnar fámælt en hugstæö vísa þegar himinninn hlýnar hlíöar klæöast úr snjónum. Vekur haröari hljóma hergnýr og aökeypt sneypa glataöur gróöurdraumur glapráð fávísra manna. Hugsjónir helgra kvæöa hagspekin lítils metur list í Ijóöum og verki lygin og þögnin gleypa. Ósköp er á aö hlýöa — einhver fer þá aö segja — skáldamál skriftir prýöa skáld hljóta þó aö deyja. Satt er aö svefninn langi síöast við öllum tekur, eitt skal þó alltaf muna. Orö og hugsjónir lifa. Því vil ég heilum huga hvarfla nokkuö til baka finn þar hjá fræöum og sögu fegurö og vit í máli. Afbragðsmanns auö og veldi ekki má lengur skoöa blóö hans af bööla vopnum burt fyrir löngu þurkað. Eitt er þó enn viö lýði: orölist mikilla verka, bragvís og bjartur hugur bjarmar af hverri línu. Reit hann sannyrði sögu svipmikil voru þau fræöi styrktur stuölum og háttum stór í hugsun og máli. Hefur nær átta aldir orðhelgi sinnar þjóöar variö meö heilögum vopnum vitsmunum Ijóös og sögu. Skildi Þveræings þykkju þekkti hvaö vörn hans gilti. Grímsey og Grundartangi gagnvart í sögunni standa. Sá hann aö Einars andi átti sér fækkandi stoöir gróöinn og gylliboðin geröu margan að lyddu. Orð hans og andi gilda enn þegar land skal verja, eins þegar Ijóöum okkar ógnar vesöld og tíska. Trú okkar fornu feöra flytur þau boö um aldir: minna er lífiö aö missa meira ef drengskapinn brestur. Orö hans: Eigi skal höggva. Enn viö höfum í minni gefum aö slíku gætur, gott er friðar að njóta. Samt þegar ekkert annaö okkar til bjargar veröur manndáð og metnað hugans metum viö hærra en lífiö. Svo þegar syrtir í lofti sakir og dómar mætast þá getur jafnvel þögnin þuliö framtíöarspána. Hins er þá holt aö minnast hvernig sem leikar fara orðsnilld sögur og edda áttu hér mann til varnar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.