Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1979, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1979, Síða 13
Deutscher Pavillion í einskonar hetjustíl. Arkitekt: Albert Speer. „Ljóskirkjan", mörgum sterkum Ijós- kösturum beint saman í einn punkt hátt á lofti. Það var sú tignarlega umgjörð, sem Albert Speer bjó flokkshátíö nasista 1937. fram, skipulagt sem „vígslustaður pjóðernisfélagshyggjunnar (Nationalsozialismus) „og par fóru fram hersýningar, kappleikir, fána- vígslur og minningarathafnir innan feikilegra fánaborga. Og „Hinn pýzki ípróttaleikvangur“ fyrir stolta og hrausta menn fagrar konur, en Speer gerði skömmu síðar uppkast aö honum, átti að vera 550 metra langur 460 metra breiður og rúma 400 púsund áhorfendur. Húsameistari Hitlers hugsaði fyrir persónulegum pörfum foringjans í svipuðum hlutföllum. Hið nýja ríkis- kanselí, sem aðeins átti að vera til bráðabirgða og byggt var á minna en ári í miðborg Berlínar, var 421 metri að lengd og 405 metra breitt. í reisugildinu sagöi Hitler meðal ann- ars: „Ég er of stoltur til aö ganga inn í hallir fyrri tíma, paö geri ég ekki, hið nýja ríki mun sjálft byggja sínar hallir og sín salarkynni", petta „nýja, pýzka lýðveldi“ mun „hvorki verða kostgangari né næturgestur í fyrr- verandi furstahöllum.“ Hið nýja pjóðernisfélagshyggju— vinnuherbergi Hitlers var 391.5 fer- metra stórt. í útskurðinum á skrif- borðinu kunni hann vel aö meta sverð, sem aö hálfu var dregið úr slíðrum: „Gott, ágætt... Þegar erlendir sendimenn sjá paö, skýtur pað peim skelk í bringu.“ Þá var hann og mjög hrifinn af gangsalnum myndskreytta, sem var 146 metra langur eöa tvisvar sinnum lengri en hinn frægi speglasalur í Versalahöll. En mest pótti honum pó vert um Arkitekt Hitlers, Albert Speer, sýnir foringjanum módel aö nýrri byggingu. Fyrir púsundáraríkiö skyldi byggt í klassískum stíl. hina 220 metra löngu salnaröð frá anddyrinu aö móttökusalnum: Sendimennirnir myndu „pegar fá nokkra hugmynd um veldi og stærð hins pýzka ríkis á peirri löngu leið“. Þeir byggingameistarar Hitler og Speer tóku til við að leggja drög að „heimshöfuðborginni“ með slíkum stórhug, aö til samjafnaðar veröur aðeins leitaö til kirkjunnar auk hinna fornu Egypta og Rómverja. Þegar árið 1925 haföi Hitler gert frumriss aö „fundarhöll“ og „Sigurboga“ í Berlín. En frá 1936 málaði Speer hugsýnir Hitlers. Samkvæmt peim átti „hin prúg- andi stærð hinna tígulegu bygginga ekki aöeins að gefa mönnum í skyn, hver heföi umráðarétt yfir peim, heldur tók Speer einnig mið af pví, aö pær ættu einnig að vera minnis- merki um pá sigra, sem í vændum væru, eins og gagnrýnandinn Arndt segir í hini nýju myndabók. Sálrænir þættir heilsugæzlu Eftir Geir Viðar Vilhjálmsson GREININGAR- VIÐTALIÐ Þegar einstaklingur leitar á náöir heil- brigðiskerfisins vegna vandamála eða sjúkdóma má gera ráð fyrir því almennt séö aö um helmingur fólks sé í þörf fyrir sálræna aðhlynningu fremur en líkamlega, ef marka má álit Alþjóða heilbrigðismála- stofnunarinnar. Einnig þeir sem koma vegna vandamála sem eiga sér fyrst og fremst líkamlegar orsakir eru í þörf fyrir sálræna aðhlynningu jafnhliða líkamlegri og þeir sem þurfa á sálrænni aðhlynningu fyrst og fremst að halda þurfa nær alltaf á líkamlegri aðstoð eða aðgerðum að halda líka. Þannig er líkami og sál ein samverkandi heild og einstaklingurinn þar aö auki nátengdur því félagslega og menningarlega umhverfi sem hann eða hún lifir í og spilar þar vitaskuld einnig mikilvægt hlutverk. Mikilvægi þess að afla greinargóðra upplýsinga frá skjólstæðingi og aðstand- endum er almennt viðurkennt grundvall- aratriði greiningar sálarlífs, en þar sem hin sálræna hlið heilsufarsvandamála vill oft veröa útundan er ekki úr vegi að líta nokkuö á þetta atriöi og nefna nokkur atriöi sem vert er að litast um eftir. Sállíkamleg (psykosómatísk) einkenni Litarháttur, hitastig húöar, rakar hend- ur, tíöni andardráttar og dýpt, spenna vööva, rykkjóttar eða vel samræmdar hreyfingar, limaburður, göngulag, blær og hljómfall raddar, framsögn, hreyfingar augna og augnaráð, vaxtarlag, holdarfar, misræmi eða samræmi milli aldurs og útlits, allt eru þetta atriði sem glöggur greinandi tekur eftir og notfærir sér við heildar úttekt á ástandi þess sem til hans eða hennar leitar. Þegar út í viðtal er síðan komið er mjög mikilvægt að kanna gaumgæfilega lifnaðarhætti viðkomandi: Mataræði, — hverskonar mat hvenær og hve mikið borðað, athuga þarf álag frá mat sem inniheldur rotvarnarefni, litarefni og önnur aukaefni, eru tekin bætiefni og hverskonar. Þolir viðkomandi illa suman mat, fer það eftir tilreiðingarmáta, t.d. steikingu, hve mikið er drukkið af kaffi, te, áfengi, reykir viðkomandi, tekur lyf, verkjatöflur o.s.frv.? Hvað með lifnaöar- hætti er varðar líkamlega hreyfingu, göngur, íþróttir, sund, böð, þol gegn hita eða kulda, áreynslu o.fl.? Tilfinningalíf Hvaða tilfinningar upplifir viökomandi helst í sínu lífi; kemur oft fram reiði, ótti, gleði, sorg? Hvernig bregst hann eða hún við þegar reiði kemur upp, getur viðkom- andi fengið útrás í gráti, skemmtunum eða í vinahóp? Er tilfinningaálag til staðar frá ættingjum, vinum, vinnustaö eða fjölskyldu? Eru fjárhagsáhyggjur eða er atvinnan ótrygg? Hvernig voru aðstæður heima fyrir á barnsaldri, hvar í systkina- röðinni, hvernig voru tengsl viö foreldra, hvað með myrkfælni, martraðir fyrr eða nú? Hvernig bregst viðkomandi við ótta? Hvaö hvetur hann eða hana til dáða. Hver er afstaðan til kynlífs og ástar? Hugarlíf Stundar viðkomandi starf sem krefst verulegrar beitingu greindar, nýtast vits- munir til fulls eins og lífsmynstri er nú háttað, skortir skilning eða yfirsýn hjá viðkomandi er varðar samhengi lífs hans eða hennar? Er hugarleg afstaða, skoð- anir eða fordómar til hindrunar er varðar samcæmingu tilfinningalífs og huga. Hvaða mynd gerir viðkomandi sér af sjálfum/sjálfri sér, — er sjálfsmyndin í samræmi eða ósamræmi við þær upplýs- ingar sem greinandinn hefur fengið frá viðkomandi? Hvert viröist greindarstigið vera, beinist athyglin meir aifchlutlægum eða huglægum viðfangsefnum, hefur viðkomandi innlimað sterk hugmynda- kerfi t.d stjórnmálaleg, heimspekileg eða trúarleg, standa slík hugmyndakerfi við- komandi fyrir þrifum eöa veita stuðning: Hvaða tilgang sér hann eða hún með lífinu, hver er afstaöan til dauðans, til alþjóðlegra vandamála s.s. hungursneyð- ar, til félagslegra vandamála, s.s. félags- legs misréttis, afbrota, verðbólgu og efnahagsvanda? Hefur viðkomandi þróast hugarlega eöa staðið meira eða minna í stað frá því að tullorðinsárum var náö og svo mætti lengi telja. Félagsleg atriöi Virðast félagsleg samskipti nægileg eða Framhald á bls 14. Þannig átti „Stóri möndullinn“ gegnum Berlín að vera 130 metrum breiðari en Champs-Elysées í París, „Boginn mikli“ meira en heilmingi hærri * en Sigurbogi Napóleons og „Þjóðarhöllin" sautján sinnum stærri en Péturskirkjan í Róm. „Möndullinn“ átti að vera prýddur herteknum vopnum (Hitler sagði stærstu skriðdrekum). í „Boganum“ áttu nöfn allra peirra, er féllu í fyrri heimsstyrjöld, að vera meitluð. Undir „Höllinni" átti að byggja grafhvelf- ingu handa látnum hershöfðingjum og föllnum hetjum. í hinni 220 metra háu höll með hvolfpaki áttu að rúmast allt að 180 púsund manns. í 28 metra breiöu veggskoti og 50 metra háu átti Hitler að standa fyrir framan gylltan örn með hakakross. Af sömu alvöru teiknaði Speer nýtt ríkiskanselí handa foringja sínum, höll, sem líktist kastala, en nú var göngubraut erlendra sendimanna gerö hálfs kílómetra löng. Fyrir pess konar byggingar samdi Speer sérstaka „rústareglugerð“, sem kvaö á um byggingarefni og gerð, sem átti að tryggja fagra hrörnun. Þúsundum ára síðar skyldu rústirnar bera vitni „viljakrafti vor- um“ og „mætti vorrar sannfæring- ar“. Nú bera pær vitni um hroka og sjálfsdýrkun peirra, sem með múrum og minnismerkjum vildu innræta mönnum og pjóðum ótta og auð- mýkt. Úr leifunum af marmara Nýja ríkiskanselisins byggðu Rússar minnismerki sér til heiðurs í sjálfum Tiergarten í Berlín, stærsta og fegursta skemmtigarði Berlínar, sem

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.