Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1979, Side 2
Minnismerki úr sandsteini um Albert Schweitzer í Giinsbach. Það er staðsett í hlíðinni
fyrir ofan heimili Schweitzers að hans eigin ósk vegna þess, „að þar vil ég halda áfram
að vera til svo að vinir mínir geti heimsótt mig, hugsað hlýtt til mfn og hlustað á
árniðinn, þá tónlist, sent lékundir hugsunum mínum“. Og þarna íhlfðinni hlustar hann
sjálfur á árniðinn og hljómfögru klukkurnar í kirkjunni, þar sem hann var vanur að
prédika. Ljósm.: Vilhjálmur G. Skúlason.
Heimili Alberts Schweitzers við MUnstergötu í GUnsbach. Þegar faðir Schweitzers lézt
árið 1925, fluttist nýi presturinn á prestssetrið. Þetta svipti Schweitzer tengslum við
Gtinshach, þar sem hann þekkti alla íbúana persónulega og hann leit á sem heimili sitt í
Evrópu. Goethe verðlaunin, sem borgarstjórn Frankturt veitti honum árið 1928, gerðu
honum kleift að kaupa lóð, þar sem hann reisti sér heimili.
Dálítiö um Albert Schveitzer og sagt
frá heimsókn á heimili hans f Gíinsbach.
Inngangur
í Munsterdalnum, sem gengur inn á
milli Vogesafjalla í Noröaustur-Frakklandi
er bær, sem hæglega getur farið á mis viö
athygli feröamanna vegna smæöar sinn-
ar. Ef leitað er aö bænum á allnákvæmum
landakortum, verður sú leit árangurslaus.
En íbúarnir hafa fundið snjallt ráö til þess
aö vekja athygli á litla og kyrrláta bænum
sínum meö því aö setja upp skilti viö
þjóöveginn, sem á er letrað GUnsbach —
Village du Dr. A. Schweitzer. Þegar
ferðamaður kemur akandi í almennings-
vagninum frá Colmar, sem er fremur lítil
en merk borg um 70 km. fyrir sunnan
Strassborg, til þessa litla og friösæla
bæjar dettur honum ósjálfrátt í hug þaö,
sem Andrés rakari í Asbúö lét letra á
bæjarburstina forðum:
„Ég á heima utan viö
ólánskjörin höröu
Ásbúö heitir heimilið
himnaríki á jöröu.“
En þó aö ferðamaöur hafi ætíð verið
sammála Andrési í Ásbúö aö þessu leyti,
þá sér hann þegar í staö, að himnaríkin
geta veriö fleiri en eitt. Ávalar hliðar og
ásar eru vaxnir greni, beyki og vínviði, en
á láglendi eru tún og akrar. Og hér er
óvenjufallegur fuglasöngur, en tónleikar
þeirra lyfta huga feröamanns í æöra veldi.
Hvílíkar móttökur og sami fuglasöngurinn,
sem orgelsnillingurinn Schweitzer lýsir
svo vel.
Ekki veldur þaö ferðamanni vandræö-
um, hvar hann eigi að stíga út úr
almenningsvagninum, því aö svo virðist
sem aöeins sé einn staður, þar sem
vagninn nemur staöar innan bæjarmarka
Gúnsbach. Þegar út er komið, blasir viö
gamalt en viröulegt hús meö áberandi
skilti, sem á er letraö Mairie de
GUnsbach, Ráöhús Gúnsbach. Þaö hlýtur
að vera miösvæöis í þessum vinalega bæ.
Og bærinn er ekki stærri en svo, aö hægt
er aö finna allt markvert upp á eigin
Séð yfir GUnsbach í MUnsterdal frá minnismerkinu, sem er fremst á myndinni. Ávalar
hlfðar, ásar og gróður er einkennandi fyrir þetta landssvæði. Minnismerkið er í um 200
metra fjarlægð frá kirkjunni og svipuð vegalengd er að heimili Schweitzers. Þaðan var
þvíhægt að veifa hvftum líndúki til merkis um, að hann ætti að koma heim til að matast.
Á klettinum, sem minnismerkið stendur á, varð „Siðmenning og siðfræði“ til og þar
mótuðust einnig hugsanir, sem mörkuðu þáttaskil ískilningi Schweitzers á lífi og starti
Jesú.
Tómasarkirkjan og Prestaskólinn (til hægri á myndinni) í Strassborg. Kirkjan stendur
á stað, þar sem frskir munkar byggðu klaustur á 6. öld. Framhlið kirkjunnar er frá
byrjun 13. aldar. Albert Schweitzer þjónaði þessari kirkju og naut þess að spila verk
eftir J.S. Bach á orgel hennar, sem var byggt af Silbermann, en hann var mjög merkur
orgelsmiður, er uppi var á dögum Bachs (fyrri hluta 18. aldar).
Litla, fallega, friðsæla kirkjan í Giírísbach. Það er kaldhæðni örlaganna og nánast
óskiljanlegt, að þessi kirkja hefur ekki farið varhluta af sprengjukasti tveggja
heimsstyrjalda og í bæði skiptin varð orgel kirkjunnar fyrir barðinu á vitfirringunni.
Schweitzer og vinir hans sáu um endurbyggingu orgelsins eftir sfðari eyðilegginguna og
var þessu „síðasta verki“ hans ekki lokið fyrr en 1961. En Schweitzer heyrði aldrei í
þessu göfuga, hljómfagra orgeli, þvf að hann lézt íLambaréne 4. september 1965.
©