Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1979, Side 3
Vilhjálmur Skúlason
Hvað getur
maður gert?
spýtur og þaö er ákveöiö aö taka ekki
almenningsvagninn aftur til Colmar fyrr
en aö deginum liönum. Ráöhúsiö er
miðpunkturinn og þaö er bezt aö hefja
vettvangsathugun í Gunsbach og ganga
upp meö því aö vestan, upp hlíðina. Hvaö
skyldi þessi gata heita? Á vegskilti
stendur Rue de l’Eglise, sem ku merkja
Kirkjuvegur. Þaö er ekki bara friðsældin í
Hafnarfiröi á dögum Andrésar rakara og í
Gunsbach, sem viröist þessum fjarlægu
stöðum sameiginleg, heldur eru sum
götunöfnin þau sömu. Þegar litiö er upp
Kirkjuveg blasir hin fagra kirkja viö
augum. Aður en lagt er á Kirkjuveg, er
gengiö aö leiöbeiningarskilti til þess aö
afla frekari upplýsinga um bæinn og þar
stendur m.a. Maison Dr. A. Schweitzer
og Monument Dr. A. Schweitzer ásamt
viðeigandi leiöbeiningum. Það fer ekki á
milli mála, að ferðamaður er kominn á
réttan ákvörðunarstað. Hann er kominn í
bæ Alberts Schweitzers.
Albert Schweitzer
í dagsins önn
Hinn 14. janúar 1875 fæddist svein-
barn, sem við skírn hlaut nafniö Albert, í
bænum Kaysersberg í Efra-Elsass, sem er
skammt frá Gunsbach. Þegar sveinninn
var 6 mánaöa gamall, fluttist hann meö
foreldrum sínum, séra Ludwig og Adele
Schweitzer, til Gunsbach og enda þótt
hann dveldi þar ekki nema hluta af
bernsku- og æskuárum sínum, leit hann
alla ævi á Gúnsbach sem heimili sitt í
Evrópu.
Flestir íslendingar, sem komnir eru til
vits og ára, þekkja Albert Schweitzer,
ekki sízt af frábærlega vel skrifaöri
ævisögu hans eftir Sigurbjörn Einarsson,
biskup, sem kom út hjá bókaútgáfu
Setbergs áriö 1955. Öllum þeim, sem vilja
kynna sér ævi og starf Alberts Schweitz-
ers, skal bent á þessa ágætu bók og leyfi
ég mér sérstaklega aö hvetja íslenzk
ungmenni til þess að kynna sér gagnlegt
ogi skemmtilegt efni hennar.
í þessari stuttu grein veröa aöeins
nokkur atvik gripin af handahófi, sem lýsa
þessum stórbrotna mannvini og siöfræö-
ingi aö nokkru leyti og jafnvel tínd til aö
því er virðist lítilvæg atvik, sem lýsa
honum í amstri dagsins. Slík atvik eiga
heima í hinni margslungnu mynd, sem
hefur veriö dregin af Schweitzer og er þá
meöal annars haft í huga þaö, sem
Vilmundur Jónsson, landlæknir, sagöi eitt
sinn svo réttilega, „aö smáir hlutir og
rislitlir atburöir eiga sér tíöum mjög
áþekka sögu og þeir, sem stórum meira
kveöur aö; ber þá einatt viö, aö gangur
sögunnar bregður því skærara og litríkara
Ijósi á sérkennandi afstööu manna, viö-
brögö og samskipti, því smávægilegra
sem viðfangsefniö er“.
Af Albert Schweitzer eru til margar
skemmtilegar og lærdómsríkar sögur, en
þær tvær, sem á eftir fara, veröa látnar
nægja.
Honum líkaöi bezt aö vera mjög yfir-
lætislaus í klæöaburöi, þegar hann var á
ferðalagi í Evrópu, ef til vill of yfirlætislaus
fyrir borgarastéttina. Hann skipti ekki um
hatt eða frakka, nema þegar það var
óhjákvæmilegt. Eitt sinn, er hann var í
París, haföi hann ákveöiö aö veröa
samferða heldri frú á tónleika. Þegar
Schweitzer kom aö húsi frúarinnar og var
í þann mund aö fara upp stigann í
aðalanddyri, var hann stöðvaður af dyra-
veröinum, sem benti honum á aö nota
stiga starfsfólksins. Meö leyndri gleði fór
Schweitzer aö ráöum dyravaröarins og
fór upp bakstigann til íbúöar frúarinnar,
sem varö mjög miöur sín vegna þessarar
móttöku heiöursgestsins. Þegar
Schweitzer leiddi frúna undir arminn og
þau yfirgáfu húsiö um aöalinnganginn,
hneigöi dyravöröurinn sig mjög viröulega
en gapandi af undrun.
Á heimili Schweitzers í Gunsbach er
Ijósmynd af honum, þar sem veriö er aö
skrýöa hann skrautlegri doktorskápu viö
heiöursdoktorskjör hans viö brezkan
háskóla. Á þessari mynd er Doktorinn allt
aö því spozkur á svip, sem bendir til þess,
aö honum hafi fundizt þessi framkvæmd
prjál og ekki er ólíklegt, aö honum hafi
dottiö atvikiö í París í hug eða jafnvel
atvikið, þegar hann, vegna fátæktar, fékk
lánaðar buxur hjá frænda sínum til þess
aö ganga í til stúdentsprófs, en þær
reyndust kvartbuxur, þegar til kastanna
kom og höföu nærri orðið þess valdandi,
aö hann félli á prófinu.
Heima í Lambaréne var hann vegna vits
síns og þekkingar dómari í öllum vafamál-
um, sem upp kunnu aö koma og sá, sem
smitaöi alla í umhverfi sínu meö andagift.
Starfiö á sjúkrahúsinu var af augljósum
ástæöum oft erfitt bæöi andlega og
líkamlega, þegar árangurslaust var búiö
aö reyna allt, sem í mannlegu valdi stóö,
til þess aö bjarga lífi og heilsu sjúklinga,
er komu of seint til meöferöar. Þegar
samræöur viö matboröið uröu of einhæf-
ar eöa þunglamalegar endurheimti
Doktorinn kátínu viöstaddra meö
skemmtilegri smásögu, sem jafnan flutti
einhvern boöskap. Ein af þessum litlu
sögum var sögö vegna umræöna starfs-
fólksins viö matboröiö um minnkandi
athyglisgáfu aldraös fólks. „Auövitaö er
þetta einstaklingsbundiö", sagöi
Schweitzer meö uppgeröar alvörusvip.
„Þegar ég var 16 ára gamall, var ég oft
hjá afa mínum. Dag nokkurn kom frændi
minn, sem ég var mjög hændur aö í
heimsókn til okkar. Viö ætluðum aö fara
út í ákveðnum tilgangi, en óttuðumst, aö
afi mundi ekki gefa okkur leyfi. Þess
vegna sögöum viö honum, aö viö ætluö-
um aö heimsækja frænda okkar, sem bjó
í nágrenninu og leyfiö var veitt. Þegar við
vorum komnir úr augsýn, tókum viö
krappa beygju og héldum í áttina aö
okkar raunverulega ákvöröunarstaö, sem
var bjórkrá. Þegar viö höföum dvaliö þar í
10 mínútur, settist maður viö boröiö
okkar. Þaö var afi.“ „Gamall maöur er
ekki eins blindur og þiö haldiö,” sagöi afi,
„og stundum er hann alveg eins þyrstur
og yngri menn. Hvers vegna buðuð þiö
mér ekki strax aö koma meö ykkur? Gefið
mér nú eitthvað aö drekka.“
Hvað getur einn maður gert?
Trúlega hafa fáar spurningar veriö oftar
notaöar en sú, sem að ofan greinir, til
Ný útgáía a/ „svertingjanum í Colmar“, en hann er hluti af minnismerkinu um Bruat
fiotaforingja. Vpphaflega útgafan hafði djúpstseð áhrif á Schweitzer og hann leitaði
alltaf á vit þessa svertingja, þegar hann kom til Colmar. ímerkri ræðu, sem Schweitzer
hélt í Colmar árið 1949 sagði hann: „Það var þessi stytta, sem kallaði mig til Afríku".
Albert Schwitzer.
þess aö slá ryki í augu fólks og fullvissa
þaö um, að ekki sé þaö neins virði, að
einn maður hefji sjálfstæöa hugsun og
sjálfstæöa framkvæmd vegna þess, aö
þaö þjóni engum tilgangi. En slík spurning
er aöeins skynsamleg í augum þeirra, sem
ekki hugsa sjálfir, heldur láta aöra gera
þaö fyrir sig. Og því miður eru þeir allt of
margir, sem falla í þá hættulegu freistni.
Fáum heföi átt aö vera Ijósara en Albert
Schweitzer, hvaö einn maður getur gert.
Hann fór einn síns liös ásamt eiginkonu
sinni til Lambaréne áriö 1913 til þess aö
hefja læknisstörf á svæöi þar sem fáir
læknar voru fyrir, mannfjöldi var mjög
mikill og sjúkdómar útbreiddari og fjöl-
breyttari en á öörum stööum jaröarinnar.
Þaö er því ekki hægt aö segja, aö ráöist
hafi veriö á garðinn, þar sem hann var
lægstur.
Rökstuöningur Schweitzers viö þessari
spurningu er sá, aö hún beinlínis svari sér
sjálf, ef tilgangurinn sé nógu mikilvægur.
Enda hafi þaö engin áhrif á ákvöröun
Schweitzers þótt hann vissi, að þaö þyrfti
þúsundir lækna til þess aö annast allar
þær milljónir manna í Afríku, sem höföu
þörf fyrir þjónustu þeirra. Einn læknir gat
sýnt, hvaö var mögulegt og ekki kom til
mála aö svipta þá fáu læknisþjónustu,
sem hann gat annazt vegna þess, aö
margir fleiri þörfnuöust hennar.
Þeir sjúkdómar, sem eru bæöi alvar-
legir og mjög útbreiddir á þessum slóöum
eru til dæmis svefnsýki, allskonar sár,
sem ígeröir hlaupa gjarnan í, malaría,
berklar, holdsveiki, kynsjúkdómar, bóla
og margir fleiri, auk flestra þeirra sjúk-
dóma, sem þekktir eru á norölægari
breiddargráðum. Þörfin er því yfirgnæf-
andi. Með þeim feikilegu framförum, sem
átt hafa sér staö í lyfja- og læknisfræöi á
undanförnum áratugum, hefur tekizt aö
gera flesta þessa sjúkdóma útlæga úr
mörgum menningarlöndum þar, sem
heilbrigöisþjónusta stendur á háu stigi.
Sjúkdómar eins og holdsveiki eru varla
eöa ekki til lengur hér á landi né í
nágrannalöndum íslands, en viö
Schweitzer-sjúkrahúsið í Lambaréne er
heilt þorp, sem sér um lækningu og
endurhæfingu holdsveikra. Þessi sjúk-
dómur er mjög útbreiddur í hita- og
Sjá næstu I
síðu /A