Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1979, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1979, Page 8
f>órarinn Þórarinsson frá Eiöum skrifar um kynni sín af Jóhannesi Kjarval KONA ARMI Þaö mun hafa veriö einhvern tíma á haustdögum 1961 aö ég kom sem oftar til Reykjavíkur þeirra erinda aö undirbúa skólastarf vetrarins sem fram undan var. Þá var þaö eitt sinn er ég nálgaöist Lækjartorgiö aö ég sá tilsýndar hvar Jóhannes Kjarval var á tali viö mann á torginu. Því miöur man ég ekki nú hver maöurinn var, sem gæti hafa komið sér betur meö tilliti til þess, sem hér á eftir veröur sagt um þessa endurfundi okkar Kjarvals. Tæplega veröur þaö sagt aö meistar- inn hafi veriö uppábúinn þar sem hann stóð þarna á torginu, þó skar úr hattkúfurinn, sem hann haföi á höföinu i þaö sinn. Vafalaust einn af hans elstu höttum; vel lúinn af handfjatli málarans og slútandi niður með eyrum og marg- yeöraöur. Þegar Kjarval sér hvar ég kem og nálgast hann til að heilsa upp á hann, grípur hann til hattsins á höföinu, stingur honum í vasa sinn og dregur upp úr öörum vasa annan hatt, sem var mun betur á sig kominn en hinn fyrri og setur upp í skyndingu. Stóö þaö í járnum að hann var búinn aö ganga frá hattinum og ég bjóst til aö heiisa honum. í staö þess aö rétta mér hönd sína grípur hann til hattsins á höföinu, sveiflar honum ofan með miklum elegansa sem minnti á franska hofmenn fyrr á öldum og segir „Þennan hatt nota ég til aö heilsa með höföingjum“. Lesendum þessara oröa ætti nú að vera Ijóst hvers vegna mér er þaö bagalegt aö geta ekki munaö nafn mannsins, sem hjá okkur stóð svo hægt væri aö leiöa vitni aö þessari kveöju meistarans, ef meö þyrfti. Eftir aö viö höföum svo heilsast á venjulegan hátt og Kjarval spurt ýmislegs austan af Héraöi, tók hann af mér loforö um aö hitta sig á vinnustofu hans í Sigtúni, en þangaö haföi ég aldrei komið. í bók sinni um Kjarval lýsir höfundur, Thor Vilhjálmsson, þessu nýja athafna- svæöi meistarans, himnasainum viö Sigtún, eins og Kjarval kallaöi þessa nýju vistarveru sína sem Ragnar Jóns- son, vinur hans haföi útvegaö honum. Þar sem sumt af því er Thor segir um „himnasalinn“, snertir þó óbeint sé heimsókn mína þangaö, leyfi ég mér að birta hér orðrétt nokkuð af því hann segir þar, um salinn góöa, en sleppi því úr sem ekki kemur viö þeirri minningu sem rifjuö er hér upp. „Og sviðsetningin í salnum vekur margar spurningar pví í uppstillingu hlutanna liggur gjarnan fólgið viðhorf... Víöa eru myndir af mönnum sem af einhverjum ástæðum hafa sótt á hugann, persónur úr viðburðum daganna eöa gömul kynni... Á mörg- um stööum eru greinar úr dagblööum veggfestar, Ijóö. Stundum gæti flogiö í hugann aö myndirnar og dagblaöa- snifsin væru til þess aö summa upp dægurmál samfélagsins hverju sinni.“ Frásögn Thors af vistarveru Kjarvals þarna í Sigtúni er lengri þótt meira úr henni veröi ekki tekiö hér upp. Þegar ég heimsótti Kjarval þarna í himnasalinn leit salurinn út eins og Thor lýsir honum; blaðagreinar og myndir upp um alla veggi, alveg eins og veriö haföi á vinnustofu hans í Austurstræti en þang- að kom ég nokkrum sinnum til hans, einkum man ég þar eftir myndum og greinum úr dagblöðum m.a. mynd af Guernica, hinni frægu mynd Picassos. Meistarinn tók mér hiö besta, bauö uppá hangikjöt og haröfisk, koníak og jóla- köku. Nógu var af aö taka, hvarvetna stóöu flöskustútar uppúr blómakörfum eöa blómvöndum þar sem Kjarval var nýbúinn aö eiga afmæli. En til skýringar á því sem eftir fer, er nauösynlegt að gera hér lítinn stans og hverfa eilítiö aftur í tímann. Áriö áöur, nánar tiltekiö í júní 1960, brann skólahúsiö á Eiöum. Þar brann innbú mitt allt, þar á meöal allstórt bókasafn og allmargar myndir, m.a. eftir Kjarval. Hvort tveggja var árátta á mér þá; aö safna bókum og myndum eftir góöa málara. Ég var í orlofi er þetta geröist og vorum viö hjónin búsett i Reykjavík um veturinn, rétt ókomin heim þegar brann. Svo sem áöur segir íþessum minning- um höföum viö Kjarval veriö góökunn- ingjar um árabil og gisti hann oft hjá okkur og því kunnugur hvernig umhorfs var í stofum þeim er uröu eldinum að bráö. Eftir brunann brá svo viö aö Kjarval var ófáanlegur til að gista, þótt hann kæmi til okkar, sem var miklu sjaldnar en áður. Auöfundiö var aö hann tók út viö aö horfa á þá auðu veggi er komu í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.