Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.1979, Side 8
Létt sóíasett, sem er í senn þægilegt og frumlegt í útliti. Utskurðurinn á grindum og
fótum gefur hugmynd um handverk.
Verslunin heitir einfaldlega TM-hús-
gögn; er stór og glæsileg og sker sig í
fljótu bragöi ekki úr öðrum ámóta
verslunum. Aö einu leyti er hún þó
einstæð á þessum síöustu tímum lækk-
andi tolla og vaxandi samkeppni frá
erlendum framleiöendum: Hver stóll og
hvert borö, hvert sófasett, borðstofu-
húsgögnin, veggskáparnir, hjónarúmin
og aðrir smærri hlutir, — þaö er allt
framleitt hér á staðnum.
Framkvæmdastjóri og eigandi fyrir-
tækisins, Emil Hjartarson, er sjóaður
oröinn í þessari grein, en auk þess
sauöþrár að eigin sögn og ekkert nema
slík þrjózka, sem er í ætt viö sauökind-
ina og komin í bland viö suma íslend-
inga í gegnum tíðina, getur haldiö þessu
á floti.
Hér berst „síöasti Mohíkaninn" viö að
gera þaö ómögulega: Aö keppa viö
erlenda sérhæfingu, sem býr viö full-
komnustu tækni og lægra orkuverö en
viö gerum, þrátt fyrir vatnsafliö. Þar
halda menn sér á floti í samkeppninni
meö því að reisa verksmiöju til þess aö
framleiða kannski einn einasta stól, eða
í mesta lagi eitt sófasett. En Emil
Hjartarson storkar þróuninni meö því
aö framleiöa flest sjálfur, sem í fljótu
bragöi er hægt aö sjá aö fólk þurfi til
heimilisbrúks. Og þaö er sannarlega
enginn afdalabragur á mublunum þeim.
Sameiginlegt einkenni er sterklegur
svipur og ágætur frágangur. Allt er
þetta hannað á verkstæöi Emils og má
þar ekki á milli sjá aö sögn hans sjálfs,
hvers þáttur er þar veigamestur. Árang-
ur næst ekki nema til komi gott
samstarf þeirra, sem vinna aö fram-
leiðsunni; jafnt þeirra sem koma meö
fyrstu hugmynd og hinna, sem þróa
þær í verklegri framkvæmd, þar til úr
verður vel geröur hlutur, sem gleöur
augaö og er góöur til síns brúks.
Verkstæðið er raunar handan viö
búðarvegginn og ekki neitar höfuöpaur-
inn því, að stundum sé tekiö miö af
útlendum hlutum, sem sannaö hafa
ágæti sitt. Lenti hann af þeim sökum í
deilu viö Norömenn og hefur þaö veriö
tíundað, meöal annars í Morgunblaöinu
á sínum tíma.
í framhaldi af þeirri deilu vaknar sú
spurning; Hvenær stelur maöur stól, —
hvar enda áhrif og hvar byrjar stæling
eöa þaö sem kallað er iönaöarstuldur?
Stóllinn Emils og sá norski eru fljótt á
litiö harla líkir. Þrátt fyrir þaö eru
einingarnar allar frábrugönar og Emil
hefur boöið hverjum þeim kassa af
koníaki, sem geti fundiö þó ekki væri
nema tvær einingar eins.
2
Þróunin í íslenskri húsgagnagerð
hefur veriö hálf átakanleg upp á síö-
kastið. Sú var tíöin ekki alls fyrir löngu
aö landsmenn bjuggu aö sínu eins og
Veglegasta sófasettið hans Emils — kennt við Picasso. Traustlegt yfirbragð og þægindi í fyrirrúmi. 11
tízku. Allt er þetta framleitt á staðnum.
tíökaöist aö segja hér fyrrmeir og var
taliö til búmennsku. Fyrir níu árum var
hins vegar ákveðið aö fella niöur tolla af
innfluttum húsgögnum í nokkrum þrep-
um og lýkur því um næstu áramót. Þá
veröa erlend húsgögn ótolluð meö öllu
og fer þá aö gerast þröngt fyrir durum
hjá þeim „búandköllum“, sem enn hafa
ekki lagt niöur þann ósiö aö framleiða
tslensk húsgögn. Þeir hafa lagt upp
laupana hver af öörum og snúið sér í
staöinn aö innflutningi á húsgögnum.
Úrvaliö er slíkt, aö útilokað er fyrir
innlenda húsgagnasmíöi aö keppa viö
þaö. Hægt er að velja um borðstofu-
húsgögn frá Belgíu, Danmörku eöa
Englandi, finnsk leöursófasett, norskar
bændamublur svokallaöar, belgísk
rókókóborö, ítölsk framúrstefnuhús-
gögn og þýsk sófasett.
Hver ætlar sér aö keppa viö annað
eins úrval hér; hver hlutur er afkvæmi
sérhæfingar, þar sem ýtrustu tækni er
beitt. Það á ekki aö vera hægt og má
sennilega ekki vera hægt. Markmiöið
sýnist vera að ganga af innlendri
Streitist á móti straumm
Emil Hjartarson reynir
að standa meðan stætt
er á tímum versnandi
aðstöðu og sífellt vax-
andi innflutnings á hús-
gögnum, sem erfitt er að
keppa við. Hann rekur
stóra og glæsilega hús-
gagnaverzlun og fram-
leiðir hvern einasta hlut
sjálfur, sem par er seld-
ur.
Emil i
þessun