Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1979, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1979, Blaðsíða 4
Krossinn « Þaö marraöi í klefahuröinni og inn gekk fangavöröurinn. Hann var hár og magur. Útlitiö var moldarlegt og bláir baugar umkringdu augun, því aö hann þjáöist af lifrarkvölum, — allir, sem lengi höföu setiö inni, vissu um þaö, því aö hann kvartaði oft hástöfum. Fangavörðurinn ræskti sig ákaft. Maöurinn á bálknum leit á hann meö eftirvæntingu í svip. — Foreldrar yðar eru komnir, sagöi fangavöröurinn gegnum nefiö. — Þér veröiö aö fara á fætur og kveöja þau. Maöurinn á bálknum svaraöi ekki einu oröi. Hann sat og horföi í gaupnir sér; hendurnar voru stórar og grófar og fingurnir sprungnir. Slíkar hendur líta klunnalega út og sýnast ekki geta gert neitt sérstakt. Maður þarf aö sjá þær vinna til aö gera sér Ijóst hve margt þær geta framkvæmt. — Já, sagöi fangavörðurinn og tvístég. — Þér veröiö aö kveöja þau. Þau hafa beðið alveg síöan í morgun. Þau komu strax meö morgunlestinni. Maðurinn á bálknum stóð á fætur og teygöi sig. Hann var hár og sterklega byggöur meö kringlótt andlit. Stuttklippt svart hárið geröi það aö verkum aö andlitiö sýndist ennþá kringlóttara. — Er kalt í dag? spurði hann og neri hendurnar. — Viö förum ekki yfir garöinn, sagöi fangavöröurinn. Hann baöaöi út höndunum eins og til aö róa hann. Við förum bara niöur. Þar bíða þau. Þeir yfirgáfu klefann. Fangavörð- urinn læsti dyrunum á eftir þeim. Svo gengu þeir eftir ganginum — fanginn á undan meö hrammana fyrir aftan bak. Tveir fangar meö fötur komu eftir ganginum á móti þeim. Annar þeirra benti á þann sem fór framhjá og sagöi um leiö og hann píröi augunum: — Hvernig fer þaö, meistari? — Dauöadómur, sagöi fanga- vörðurinn — það er bannaö aö tala saman. Sá meö fötuna blístraöi. Þeir héldu áfram. maöurinn meö kringlótta höfuöiö spuröi þá: — Ég fer þá líklega ekki fleiri gönguferðir í garðinum, eöa hvaö? — Víst ekki, svaraöi fangavöröur- inn. Hann var meö þjáningarsvip. Alveg síöan um morguninn haföi hann fundið, aö heiftarlegt kast var í aösigi. Þeir sneru inn í næsta gang og hægöu á sér, þar eö fanginn haföi lítiö tækifæri haft til að hreyfa sig í seinni tíö og þess vegna ollu fæturnir í stórum tréskónum honum sársauka. Hann stundi og var aö því kominn aö hrasa á hverri stundu. Allt í einu sagöi hann: — Fæturnir brenna hræöilega. — Oh, sagöi fangavöröurinn og yppti öxlum. — Viö erum alveg aö koma. Fanginn urraöi eitthvaö og reyndi að ganga út á hlið. Hann staröi stíft á vegginn og sagöi svo skömmu síöar: — Þarna er sprungin pera. - — Hvar? spuröi fangavörðurinn. Þeir stönsuðu. — Þarna uppi, sagöi fanginn og benti meö geysistórum fingrinum upp í loftiö. Fangavöröurinn leit upp. — Þaö er alveg rétt. Ein peran, sem lýsti ganginn upp, var sprungin. Fanga- vöröurinn kinkaöi kolli. — Þarna getið þér sjálfur séö, sagði hann. — Og þetta kalla menn perur. Maöur dóttur minnar keypti þrjár í síöustu viku og tvær þeirra sprungu um leiö. Þá fór hann aftur í búöina til aö fá þeim skipt, en hvaö haldið þér aö honum hafi verið tjáö þar? — „Haldiö þér aö þér séuö fyndinn? Hvað getum viö gert aö þessu? Viö seljum þær eins og við fáum þær í hendur...“ Það er ekki einu sinni hægt að fá almennilegar perur lengur. — Hvaö kostar eiginlega svona pera? — Þaö hef ég ekki hugmynd um, svaraði fangavöröurinn vandræöa- lega. Skyndilega spuröi hann tortrygg- inn: — Hverju skiptir þaö? — Ekki neinu. Fangavörðurinn gaumgæföi hann af athygli og sagöi svo byrstur: — Komiö yöur svo áfram! Hvaö eruö þér aö hugsa? Haldiö þér aö þér séuð hérna til aö grínast? Þeir héldu áfram fram hjá læstum dyrum. Út viö stigaganginn voru nokkrir fangar úr vinnuhópnum aö hefjast handa meö aö þvo ganginn. Þeir skúruöu og skrúbbuöu meö stuttskeftum burstum. Það var fnykur af brúnni sápu og heitu vatni. Þegar þeir gengu fram hjá sneri einn þeirra sveittu andlitinu mót þeim og hvísl- aöi: — Heyrðu hérna félagi, stingdu pípu að mér. Þú skalt fá hana aftur þegar þú kemur út. — Dauðadómur, sagöi fanga- vöröurinn. — Þaö er bannaö aö tala saman. — Þaö segir enginn orð, sagöi fanginn, sem var aö þvo gólfið. — Fjandinn hafi þaö, hef ég kannski sagt nokkuö? Eg segi ekki orö... Hann fleygði kústinum frá sér og ýtti fötunni til hliöar. Fangavörðurinn og sá meö kringlótta andlitið gengu fram hjá. Fanginn misstég sig aftur og stundi. — Svona, svona, sagöi fanga- vörðurinn róandi, nú erum viö alveg aö koma. Þeir gengu gegnum annan gang og inn í litla herbergiö þar sem foreldrar fangans sátu og biöu. Þegar þau sáu hann koma inn risu þau á fætur. — Nú getið þiö heilsast,.sagði fangavörðurinn og á mögru andliti hans brá einhverju fyrir, sem aðeins þeir, sem vissu hvaöa sjúkdómi hann var haldinn, gátu merkt sem bros. — Þið megiö vel setjast niöur. — Hann hagræddi beltinu sem þung byssan hékk viö og settist á stól nálægt glugganum. Fanginn stóö í miöju herberginu og drap tittlinga. Ljósiö hérna var miklu sterkara en í klefanum, þar sem hann haföi setið fram aö þessu. Svo gekk hann til foreldra sinna. Fyrst kyssti hann fööur sinn á höndina og svo móöur sína. — Komuö þið snemma í morg- un? spuröi hann. — O já, sagöi faðir hans. Hann var hár og mikill um sig. Hálsinn pokaöi út yfir kragann, sem var lítill og allt of þröngur. Röddin var djúp og drynjandi jafnvel þótt hann reyndi viö þetta tækifæri aö hemja hana af einhverjum ástæöum. Sonurinn líktist honum ekki, hvorki aö útliti eöa hegöun. — Viö höfum feröast alla nóttina til aö sjá þig, sagöi faöirinn hranalega. — Skiptuö þiö þá í Jodlowo? — Nei, svaraöi móöir hans, nú á maöur aö skipta í Rostaszewo. — Hm, sagöi fanginn. Hann reyndi aö sitja þannig aö hann gæti hvílt fæturna dálítiö. Hann hallaði öxl- unum upp aö veggnum og teygði úr fótunum. Allt í einu fór hjartaö aö hamra ákaflega; hann varö óttasleg- inn viö þá tilhugsun aö faöir hans — eins strangur og hann var — kreföist þess aö hann stæði upp og talaði viö hann standandi, þar eö hann þoldi ekki aö börnin hans töluðu viö hann án tilhlýðilegrar viröingar. Fanganum datt þetta í hug og flumbraöi út úr sér óstyrkur: — Hvernig gengur þaö hjá Sid- orowicz? — Hjá Sidorowicz? endurtók fað- irinn hugsandi. Þaö varö stundarþögn meöan hann leitaöi eftir hæfilegu svari. Svo sagði hann: — Svona eins og vant er. Hann missti hest. — Drapst hestur — fanginn leit út sem hann gleddist yfir tíöindunum. Hann langaöi aftur í klefann til aö losna viö skóna. — Hvernig bar þaö til? — Hann drapst. Þannig var þaö, sagöi faöirinn. — Þau náöu í dýra- lækninn en þá var þaö orðið of seint. Hann klóraöi sér í hárinu og þagöi aftur um stund. Svo sagöi hann í predikunartón: — Maður neyöist til aö fara varlega meö hestinn sinn. — Nú verðiö þiö aö reyna aö fara aö Ijúka ykkur af, sagöi fangavöröur- Teikning: Kjartan Guöjónsaon.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.