Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1979, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1979, Blaðsíða 5
inn og sneri sér aö þeim. — Þaö eru bara fimm mínútur eftir. — Jæja, hesturinn er dauöur..., sagöi fanginn og teygöi fæturna lengra fram. — Já, já, hesturinn, hesturinn... Þaö eitt er víst aö maöur veröur aö fara varlega meö hestinn sinn... Já... já... — Og hvaö á maöur svo aö gera þegar hann er dauður? Maöur verö- ur aö vera aðgætinn og þar meö búiö... ja' ja'.. Hann stundi viö tilhugsunina um að hann neyddist brátt til aö standa uþp þegar þau kveddu. Hann stundi og spuröi hraðmælt- ur: Og hvernig gengur heima? — O jæja, viö þökkum guði, sagöi faöirinn, ef allt gengur vel getum viö keypt okkur kú í vor. — Búið, sagöi fangavörðurinn. hann var staöinn á fætur og lagfærði beltiö. Stóra byssutaskan sýndist hlægileg viö magran kroppinn. — Nú já, sagöi faðirinn. Þaö er ekki tími til aö fjasa. Nú veröur þú aö tala við guö þinn, drengur minn. Þú ert þegar í hans umsjá. Hana nú, biddu nú. Hann lyfti hendinni og fangavörö- urinn sneri sér undan. — Ég blessa þig meö Drottins krossi, sagöi faöirinn hárri röddu. — Krjúptu! Fanginn þagöi. — Nei, sagöi hann svo. Hann var viss um að hann myndi kenna mikiö til í fótunum og aðeins viö tilhugsunina perluöust tárin fram í augnakrókana. — Krjúptu, drengur minn, sagði faöirinn hátíölegri röddu. — Fyrir krossi Drottins á maöur aö krjúpa. Fanginn hristi höfuöið. — Nei, sagöi hann. Hann greip hönd föður síns og kyssti hana. Svo kyssti hann móður sína og gekk út meö fangaverðinum. Gömlu hjónin gengu einnig út; þau skrefuðu yfir garöinn og komust út á götuna. Svo tóku þau stefnuna á járnbrautarstööina, þaöan sem lestin þeirra færi eftir tvo tíma. Eins og siöur er til sveita gekk húsbóndinn á undan. Konan kom nokkrum skrefum á eftir. — Þeir hafa breytt honum, sagöi konan. — Hann vildi ekki falla á kné. — Hún fór aö gráta. Gamalt andlit hennar herptist eins og af sársauka. — Kannski er hann hættur aö trúa á guð, sagöi hún. — Þetta er í fyrsta skipti, sagöi faðirinn meö rödd sem gaf til kynna að hann tryöi ekki sínum eigin orðum — þetta er í fyrsta skipti, sem hann hefur sett sig upp á móti vilja mínum. En samt er hann gott barn. Þau settust viö garö einn til aö hvíla sig dálítið. Þetta var hlýr dagur og snjórinn var byrjaður aö bráöna. Vorboöinn sást á litum himinsins, bólgnum kvistum trjánna, skínandi gljáa hestanna, sem fram hjá fóru og rakri slikju járnbrautarteinanna. Fót- gangandi fólk haföi losaö yfirhafnirn- ar, skólabörnin hlupu og léku sér í flokkum og óhreinn snjórinn rann iöandi niöur í rennusteinana. — Já — í haust veröur Mietek sendur heim, sagöi faöirinn. Hann getur fengiö fötin hans Janeks. Viö veröum víst aö taka á öllu okkar til haustsins. . . — Janek var þróttmeiri, sagöi konan. — Þróttmikill og ekki þróttmikill, sagöi faöirinn... Ég er viss um aö Mietek leggur sig fram í herþjónustunni. Þar fær hann eins mikiö aö boröa og hann getur torgað... Hann þagöi langa stund og staröi á fægö stígvéiin. — Hann var okkur góöur sonur. Hann sagöi ekki stakt orö um aö þaö var ég Framhald á bls. 15 KVEÐSKAPUR SEM HEYRIR UNDIR NATTIJRUVERND / okkar landi vantar allar skynsamlegar forsendur fyrír ofstæki í stjórnmálum. Fólk getur naumast verid mjög hart í pólitíkinni af réttlætiskennd, örbirgð eða frelsisprá, pví vaknar oft sú spurning, hvort pað fólk sé eitthvað bæklað í sálinni, sem ekki sér sólina á björtum sumardegi fyrir hatri á pólitískum andstæðingum. Sér aldrei útúr hinum pólitíska sorta. Það var um daginn, að ég rakst á gamla úrklippu úr Þjóðviljanum. Ég hef líklega haldið henni til haga, af pví að mér hefur pótt hún bera vott um athyglisvert sálarlíf. Al- pýðubandalagið var á sumar- ferðalagi um Jónsmessuna (24. júní 1973), en pá skartar íslenzk náttúra sínu skásta, sólfar mest, ilmur úr gróandi grasi, fuglasöngur fyllir tært fjallaloftið — öll náttúran and- ar í sálir venjulegs fólks, friði og sáttfýsi, og Pað gerir að gamni sínu græskulaust. Nú er það einnig svo, að á slíkum degi fyllist margur rómantík, og fer að yrkja, sem er í lagi, ef ekki er birtur kveðskapurinn. — Þessi rómantíski kveðskap- ur, á góðum sumardegi, er oftast hástemmd náttúru- eða ættjarðaríjóð. Það reyndist pó ekki aldeilis svo hjá Alpýðu- bandalaginu, pegar pað fór að yrkja í sumarblíðunni. Það fólk settist niður á skemmtiferða- lagi sínu milli angandi blóma baðað i sólskini, við að yrkja níð um pólitíska andstæðinga, og vægast sagt meira af vilja en hagmælsku. Og það var svo ánægt með kveðskapinn, að Þjóðviljinn birti úrval úr hon- um — og ber að harma, að fá ekki heildarútgáfu af þessum sérstæða sólarkveðskap. Hér er sýnishorn af kveð- skapnum — tekið úr Þjóðvilj- anum 4. júlí 1973. Til að spara rúm læt ég nægja skástrik á milli vísuorða: Fyrri partur: llla tókst hjá Gylfa og Geir að græða á landhelginni. Nokkrir botnar: Ekki hafa aular þeir/ ást á fóstru sinni. — En það er vel, að þorskar tveir/ þjóni flónsku sinni. — Sam- anspyrtir sitja tveir/ síðan í háðunginni. — Öngvan höfðu aular þeir/ ábatann að sinni. — íhaldsbullur eru þeir/ aum- ingjarnir báðir tveir. — Það væri happ ef hrútar peir/ héldu kjafti að sinni. — Dálag- lega dárar þeir/ dilluðu rófu sinni. — Fengu illa útreið þeir/ með undirhyggju sinni. Fyrri partur: Lafði Tweedsmuir leggur net Lúðvík vill hún fanga. Nokkrir botnar: En hún er engin Elsabet/ illa mun það ganga. — En það væri meiren met/ ef manninn færi að langa. — Það væri algert Englandsmet/ ef það skyldi ganga. — Sendum Bret- um kindaket/ kosti hörku- stranga. — En lítt vill bragðast Lúðvíks ket/ lafði fyrir svanga. Fyrri partur: Þegar Bréznéf framhjá flaug, fauk í Óla og Stjána. Nokkrir botnar: Fréttamiðill margur laug./ Mikíð er um bjána'— Það er ekkert andans spaug/ að elt- ast við þann bjána. — Ætli þeir sendi argan draug/ á eftir pessum bjána. — Þeir kváðu hann bæði dóna og draug/ og dæmalausan kjána. Fyrri partur: Ekki heldur herinn enn heim af Suðurnesjum. Nokkrir botnar: Vöðum á þá, vaskir menn,/ og vegum þá með kesjum. — Förum að sem frjálsir menn/ og flengjum þá með kesjum. — En barið getur og bölvað enn/ á bandarískum gresjum. — Hann á sína mektarmenn/ og mergð af drullublesum. — Ef við burt hann sendum senn,/ sannast að við erum mennl Þetta voru nú sýnishorn af kveðskap Alþýðubandalags- fólks á skemmtiferðalagi 1973, og pá var nú geðslagið tiltölu- lega gott, Alþýðubandalagið í stjórn. Forvitnilegur væri sól- arkveðskapurinn um Jóns- messuleytið í fyrra um kaup- ránsmanninn Geir og „samn- ingana í gildi“. Æskilegt væri og að hafa sýnishorn til sam- anburðar af kveðskap þeirra í skammdeginu? Ásgeir Jakobsson. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.