Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1979, Blaðsíða 8
Rafn tekur myndir sínar jófnum hondum á
Hasselblad og Canon.
AUGU
Stutt spjall við Rafn Hafnfjörð
í tilefni Ijósmyndasýningar
hans á Kjarvalsstöðum
Boöskapur sýningarinnar er, aö viö sem búum í þessu fallega landi, erum ekki alltaf meö augun
opin — og feguröin opinberast jafnt aö vetri sem sumri, þeim sem vilja sjá. Hér eru tvö dæmi:
Sólblik viö hvalstööina í Hvalfiröi og ísuö strá á Þingvöllum. Kannski er þó mestur fengur aö
myndunum, sem Rafn tók á vinnustofu Kjarvals, efftir aö meistarinn kvaddi hana í síöasta sinn. Hér er
Vinnustofa Jóhannesar Kjarval við
Sigtún er þeim minnisstæö, sem
þangað komu á síöustu árunum,
sem þessum stórmeistara í myndlist
entist heilsa til vinnu. Loftið var
mettað af þeim ilmi, sem verður af
litum, málaralérefti og ekki sízt
varnis. Þarna var sérstakur heimur,
þar sem öllu ægði saman; hálfgerð-
um og fullunnum málverkum, alls-
konar rissi og skyssum ásamt meö
úrklippum úr blöðum og myndum af
vinum listamannsins. Minningar-
greinar um gengna samtíöarmenn
voru þar heftar upp á veggi innan um
myndir af snilldarverkum heimslist-
arinnar og mörgum varð starsýnt á
rúm málarans með hrúgu af litatúb-
um við höfðalagið.
Það er grátlegt, að vinnustofa
Jóhannesar Kjarval skyldi ekki varð-
veitt eins og hann skildi við hana.
Ekki minnist ég þess aö neinn
hreyfði þeirri hugmynd á meðan þaö
hefði kannski verið hægt, en seinna
fóru menn að tala um, hvað það
hefði verið stórkostlegt að geta
varðveitt vinnustofuna eins og hún
var. En þá var allt á tvist og bast og
tækifærið gengiö úr greipum. Það er
þó huggun og sárabætur, að ágætur
listamaður, sem vinnur með mynda-
vél, tók upp hjá sjálfum sér að
mynda vinnustofuna og atvikin hög-
uðu því svo til, aö hann geröi það
einmitt, þegar meistarinn var ný-
genginn þaðan í síðasta sinn, —
kominn á sjúkrahús og átti ekki
afturkvæmt.
Listamaöurinn meö myndavélina
er Rafn Hafnfjörö, kunnur fyrir fram-
lag sitt á sviði Ijósmyndalistar og
tilefni þessa formála er einmitt sýn-
ing, sem Rafn opnaði í gær, 12.
október, að Kjarvalsstöðum. Þar
sýnir Rafn 26 myndir úr vinnustofu
Kjarvals; úrvalsmyndir, sem teknar
voru við dagsljós og hver einasta
©