Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1980, Page 5
Sprengjur hryöjuverkamanna hafa
sprungiö víösvegar um Evrópu og
Mið-Austurlönd, og sérfræðingar
segja, aö þaö sé aö styttast í
tundurþráðnum í Bandaríkjunum.
Hryöjuverk, sú aöferö „aö drepa
einn til að skjóta 10.000 skelk í
bringu“, er nú orðin margslungin og
útsmogin alþjóðleg starfsemi, sem
hrjáir Evrópu og Miö-Austurlönd
miklu meira en Bandaríkin. Á undan-
förnum árum hafa ekki ýkja margir
Ameríkumenn orðið fórnarlömb
hryöjuverkastarfsemi heima eöa er-
lendis. En eftir því sem margir þeirra
telja, sem gerzt ættu aö vita, er nú
hætt viö því, aö slíkar árásir á
bandaríska borgara og bandarískar
eignir færist mjög í vöxt.
„Ég er ekki spámaður," segir
Robert Kupperinan, einn af helztu
sérfræöingum Bandaríkjanna í mál-
um, er varða hryðjuverk, „en ég verö
aö segja, aö þaö eru verulegar líkur
á því, aö viö munum eiga viö nokkur
mjög alvarleg vandamál aö glíma á
næstu árum. Viö höfum ekki orðiö
fyrir meiri háttar áföllum af völdum
hryöjuverkamanna ennþá í Banda-
ríkjunum, en þaö mætti segja sem
svo, að klukkan gengur.“
William Webster, forstjóri hjá FBI,
sagöi nýlega: „Reynslan hefur sýnt,
að þegar farsótt á borö viö þessa
geisar víösvegar í heiminum, er mjög
sennilegt, aö hún berist til Banda-
ríkjanna."
Kemur rööin aö Banda-
ríkjunum á næsta áratug
Háttsettir embættismenn Carters
hafa í eitt ár haft undir höndum
trúnaöarskýrslu frá CIA, þar sem
segir aö gera megi fastlega ráö fyrir,
aö Bandaríkin veröi fyrir heiftar-
legum árásum hryöjuverkamanna
snemma á tímabilinu 1979—80. CIA
telur, aö hryðjuverkamenn í Vestur-
Evrópu og Miö-Austurlöndum hafi
samband viö fylgjendur sína meöal
vinstri öfgasinna í Bandaríkjunum og
búast megi viö atlögum aö olíu-
stöövum og orkuverum (þar á meöal
kjarnorkuverum) sem og flugstöðv-
um.
Bandaríkjamenn fá sinn skammt
af blóðugu ofbeldi heima fyrir gegn-
um sjónvarp og blöö. Ýmsir halda
því fram, aö fólk fái svo mikiö af
ofbeldi þar í landi, aö þaö skapi
sljóleika fyrir því. En hvaö myndi svo
ske, ef hryöjuverkamenn tækju til viö
sprengingar, mannrán og morö aö
verulegu marki?
Það eru ýmsar ástæöur tii þess,
aö veitzt er aö Bandaríkjunum og
öllu, sam amerískt er erlendis, í
þessum blóöuga leik. Gremjan út af
velgengni Bandaríkjanna, hinum
góöu lífskjörum þar, festu og stöö-
ugleika í stjórnmálum og þjóölífi
samanboriö viö aöra heimshluta,
hefur grafiö um sig í hugum hryöju-
verkamanna hvar sem er. Þeir eru
margir, sem fá ekki skiliö eöa vilja
ekki skilja, hvernig þeir gætu breytt
neinu til batnaöar meö þjóö sinni, og
þess vegna finnst þeim, aö þeir veröi
aö eyöileggja eitthvaö. Bandaríkin
eru lifandi tákn þess, sem þeir gætu
ekki stuöiaö aö því aö skapa, og
þess vegna leggja þeir fæö á þau og
sjúklegt hatur.
Annað er þaö, aö Bandaríkin hafa
haft mikil afskipti af málefnum Miö-
Austurlanda, meö því aö ríkisstjórn
þeirra hefur haft úrslitaáhrif á friöar-
samninga ísraels og Egyptalands.
Meöal róttækra og einnig hófsamra
Araba er litiö á Bandaríkin sem
óþokkann, sem brást vonum Pale-
stínumanna og neitaði þeim um þaö
réttlæti, sem þá haföi svo lengi þyrst
eftir.
Ef palestínskir hryöjuverkamenn
gera atlögu aö bandarískum borgur-
um og eignum þeirra, er sennilegast
aö þaö muni gerast í Mið-Austur-
löndum og annars staðar en í
Bandaríkjunum, þó aö árásir þar séu
ekki útilokaðar.
Stjórnvöld fráhverf
eftirliti meö
grunsamlegu fólki
Og loks ber þaö aö athuga, aö
yfirleitt er greind hryöjuverkamanna
langt fyrir ofan meöallag, og þeim er
vel kunnugt um allar aöstæður í
þeim löndum, þar sem þeir kjósa aö
legga til atlögu. Undanfarin ár hafa
menn mjög velt vöngum yfir því í
Bandaríkjunum, hvert hafi veriö hiö
eiginlega hlutverk F.B.I. og CIA í
öryggismálum heima fyrir og á al-
þjóölegum vettvangi. Gagnrýni á
fyrri aöferöir og misbeitingar hjá
þessum aöilum hefur gert þingiö og
stjórnvöld fráhverf mjög ströngu
eftirliti meö grunsamlegu fólki.
Leynilegar aögeröir hafa í rauninni
verið útiiokaöar.
Þær hömlur, sem lagöar hafa
verið á F.B.I. og sérstaklega á
gagnnjósnastarfsemi hennar, og
þær starfsreglur, sem fyrrum
dómsmálaráöherra, Edward Levi,
setti stofnuninni, hafa veikt aöstööu
hennar aö verulegu leyti til aö skipta
sér aö marki af sérstökum öryggis-
málum innanlands. Eins er CIA
miklum mun síður en áður í stakk
búin til aö fást við þau, þó aö hún
geti safnað upplýsingum eriendis um
hættur, sem öryggi Bandaríkjanna
séu búnar. Þetta vita hryöjuverka-
menn betur en almenningur í Banda-
ríkjunum.
Evrópumenn bera miklu betra
skyn á hryðjuverkastarfsemi en
Ameríkumenn, því aö hún hefur
mætt mest á þeim. Samkvæmt
upplýsingum frá CIA varö Vestur-
Evrópa aö þola 38% af öllum hryðju-
verkum á áratugnum 1968—78,
meira heldur en Suöur-Ameríka
(27%) og Mið-Austurlönd ásamt
Noröur-Afríku (16) og Norður-
Ameríka (10) samanlagt.
Hryðjuverk hafa veriö aöferöir
skæruliöahernaöar um aldir og voru
framin í stórum stíl í Evrópu á 19.
öld. Þeim var beitt af hálfu
þrautpíndra þjóöa, sem bjuggu viö
grimmdarlegt einræöi. í Rússlandi
keisaratímans voru hryöjuverka-
menn ekki geðsjúklingar, stjórnleys-
ingjar eöa siölausir moröingjar. Oft
iðruðust þeir gjöröa sinna, eftir aö
kúgurunum haföi verið rutt úr vegi.
Ennfremur „störfuöu" 19. aldar
hryöjuverkamenn oft sjálfstætt og
tilheyröu aldrei neinum alþjóölegum
samtökum. Þeir réttlættu hinar blóð-
ugu geröir sínar með því, aö þær
væru fyrsta áhlaupiö í baráttunni
fyrir frelsi og lýöræöi.
Framhald á bls. 22.
Margur á um sárt aö binda í Rhodesíu eftir endalausar árásir skæruliöa. Frá
Mozambique og Zambíu hafa sknruliöar kommúnista meö rússnesk vopn í höndum,
flætt inn yfir landamærin og drepiö 2.500 svarta, óbreytta borgara, 390 hvíta og 680
lögregluvaröliöa.
í kvalalosta sínum grípa hryöjuverkamenn til hinna fúlmannlegustu bragða. Chikombe
Mazvida, sem sést á myndinni, varö fyrir hryðjuverkamönnum frá Mozambique, sem
skáru af honum eyrun, nefiö og varirnar og neyddu konuna hans til aö óta þaö.
Mazvida liföi samt af.
Eins og enn er í fersku minni, drápu japanskir rauöliöar 27 manns á Lod-flugvelli í
ísrael 1972. Þaö grimmdarverk var ekki unnið í neinum sórstökum tilgangi, nema því
sem almennt gerist, aö valda glundroöa og ótta. Hór sjást líkin borin á brott.