Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1980, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1980, Blaðsíða 8
Borgundarhólmur er vinsæll feröamannastaöur og hefur reynd- ar upp á margt aö bjóöa sem heillar. Náttúrufegurö er þar mikil, landslag fjölskrúöugt, þótt ekki geti þaö talist stórbrotiö á okkar mæli- kvarða, en listmálarar vföa aö hafa sótt þangað í leit aö viðfangsefnum og andagift. Þar skiptast á granít- klettar og gljúfur, akrar og lyngi vaxnir ásar, birki og greniskógar, klettóttar og sendnar strendur meö hvítum sandhólum á stöðugri hreyfingu. Þar stunda menn sjó en landbúnaöur er þar líka í blóma. 65% eyjarinnar er ræktað land en 20% vaxið skógi. Kaupstaöir og þorp eru á víö og dreif um ströndina utan eitt inni í landi. Talsvert er gert til aö laða ferðamenn til eyjarinnar. Þar hafa risið sumarhótel með öllum nýtísku þægindum. Hægt er að taka á leigu sumarhús eöa fá inni á einkaheimil- um og tjaldstæði eru víða. Hér og þar hafa verið lagðir sérstakir göngustígar og hjóla- brautir enda eru hjólreiöar mikiö stundaöar. Reiðhjól fást til leigu af ýmsum stæröum og gerðum. Allt viröist einkar þægilega smátt í sniöum — fjarlægöir allar litlar (40 km frá austri til vesturs þár sem eyjan er breiöust) snyrtimennska einkennir allt umhverfi og fljótt á litið er eins og allt mannlíf renni í rólegum föstum farvegi. Þó hefur á ýmsu gengið í ald- anna rás í sögu Borgundarhólms. Eyjan var löngum stríösepli kirkju og veraldlegs valds og Hansakaup- menn sóttust á sínum tíma eftir yfirráöum þar. Framan af 17. öld réöu Svíar þar lögum og lofum en yfirráöum þeirra lauk með uppreisn eyjaskeggja áriö 1658 en þá gengu þeir Danakonungi á hönd meö ýmsum skilyrðum þó. Síöan er Borgundarhólmur amt í Danmörku. Ekki veit ég hvort íslendingum er svo farið almennt aö þeir finni til meiri skyldleika meö fólki sem byggir eyjar en þeim sem á megin- landi búa. Þó er ekki ósennilegt aö ýmislegt sé sameiginfegt í fari lítilla eyþjóöa eöa þjóöabrota vítt og breitt um veröldina þótt ekki sé nema vegna nábýlis við hafið og stööug hamskipti þess. Á Borgundarhólmi, smáeyju í Eystrasalti verða tengslin viö ís- lendinga aö minnsta kosti óneitan- lega náin þegar staöiö er frammi fyrir þriggja metra háum rúnasteini meö ristum frá því um áriö 1000. Þessi steinn stendur á grasbala skammt frá stærsta kaupstað eyj- unnar, Rönne, svokallaður Brog- ards-steinn og af rúnunum er lesiö: „suenkir lit raisa stein þena eftiR tosta faþur sin auk eftiR alflak broþur sin auk eftiR moþur sina auk eftiR systur sina.“ Rithátturinn er engu líkari en íslensku og kemur engum á óvart. En það er samt gaman aö sjá þetta úti í náttúrunni. Á Borgundarhólmi eru margar merkar minjar frá fyrri tíö. Mann- vistarleifar hafa jafnvel fundist frá því um 8000 árum fyrir Krist og leifar af mannabústööum frá yngri steinöld, helluristur frá bronsöld með áristum skipum og sólum gefur aö líta úti í haga innan um nautgripi á beit og fornir bauta- steinar eru á þriöja hundraö talsins hér og þar. Rúnasteinar eru hins vegar 40 og allir sennilega frá því um áriö 1000—1100 enda bera áletranirnar vott um kristin viöhorf. © Hulda Valtýsdóttir Gömul „blndingsverks“-hús setja mjög svip sinn á þorpin meðfram ströndum Borgundarhólms. Sá bygg- ingarmáti var víða við hafður fyrr á tímum á þessum slóðum þar sem timbur var af skornum skammti. Húsgrindin var reist úr viði en síöan fyllt í fletina á milli ýmist með leirklíningi, tígulsteini eöa múrsteini. Grindin er tjörguð svört og hornstoöir víða fagurlega útskornar. Þessi hús eru hið mesta augnayndi, — afar vel viö haldið enda stolt íbúanna. Hvergi hrukka eöa blettur og hvergi gefur að líta eins vel pússaöar gluggarúöur. Engu er líkara en íbúarnir setji líka metnað sinn í smekkleg gluggatjöld og listmuni í gluggakistum — jafnvel svo að postulínsstyttur og annað því um líkt sem á sér forhlið og bakhlið snúa forhliöinni að vegfarendum, þeim til heiðurs og ánægju, en ekki aö þeim sem innan dyra eru. Göturnar í gömlu hverfunum eru mjóar og steinlagðar og hlykkjast að því er viröist eftir óskráðum lögmálum — reglustika hefur hvergi komiö þar vió sögu. Af því leiðir aö umferð farartækja veröur hæg og manneskju- leg. Borgunarhólmsbúum liggur ekki þau ósköp á.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.