Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1981, Qupperneq 16
Á bílaleigubíl
Framhald af bls. 10
hjákonu sína og hófst þá uppgangur
staðarins; nú búa þar 300 þús. manns.
FCthöfundurinn Robert Louis Stevenson,
sem skrifaði Gulleyjuna, bjó þar fyrir
siéttum 100 árum. Vegna veðursældar
og fegurðar, hefur Bournemouth orðið
bær eftirlaunamanna, sem sækjast eftir
aö kaupa sér hús þar. Einn slíkan — og
nærri níræöan aö aldri hitti ég eitt sinn á
Parkstone-golfvellinum. Hann hafði fyrir
venju aö leika alltaf einn hring á degi
hverjum, — nema á sunnudögum; þá
tók hann sér frí. í Ijósi þess, sem orðið
hefur í Reykjavík, er vert aö geta þess að
fjórir víðáttumiklir 18 holu golfvellir eru
innan bæjarins og hjngaö til hefur ekki
flögrað að neinum, að á þeim þurfi að
byggja.
Bournemouth er og kunn fyrir sumar-
skóla, sem taka að sér aö kenna fólki
ensku og kemur þaö víðsvegar að úr
heiminum. En umfram allt er Bourne-
mouth vinsæll sumardvalarstaöur og
þarf talsvert að ganga á, áður en allt er
fullbókað, því hótelin eru 1400 talsins.
Þar fyrir utan eru svo heimilin, sem selja
gistingu og morgunverð.
Grosvenor-hótelið, sem við bjuggum
á í þetta sinn, er nærri miöju bæjarins og
kostaöi 15 pund á mann meö morgun-
verði. Þjónustan þar var frábær; mikil og
einlæg hjálpsemi ríkjandi og þar var
lifandi kominn gamli þjónninn úr Her-
togastræti í sjónvarpinu. Very British.
Dýrustu hótelin í Bournemouth kosta
50 pund; það eru Bath Hotel og
Charlton, sem bæöi eru fimm stjörnu.
Fyrir sjö árum lentum viö ásamt fleirum
fyrir broslegan misskilning á þessu
Charlton-hóteli og meðalaldur gestanna
virtist ekki undir sjötugu. Þótt brezkir
séntilmenn af gamla skólanum séu því
vanastir aö sýna sem minnst svipbrigöi,
lá við að þeir hnerruðu, þegar vaður af
háværum íslendingum ruddist inní hin
helgu vé yfirstéttarinnar. En það var nú
önnur saga.
Einn aff meiri-
háttar sumardval-
arstöðum Breta
Mikill er sá mannfjöldi á torgum og
götum og mest er þó í garðinum, sem
hlykkjast frá ströndinni inneftir miðju
bæjarins. Megniö af þessu fólki var
augsýnilega Bretar; þeir sátu þarna í
sóistólum með Daily Telegraph og News
oLthe World og biöu þess aö hljómsveit
hersins byrjaði konsert úti undir beru
lofti. En þeir sem eru minna fyrir marsa,
geta fariö í Vetrargarðinn á fimmtudög-
um; þar leikur Sinfóníuhljómsveit
Bournemouth. Steinsnar fyrir utan er
baðströndin og þaö er alvöru baðströnd
með gulum sandi og núna var sjórinn
volgur. Bryggja með skemmtistööum er
hinn fasti liöur, en hér eru þeir aö byggja
nýja úr steinsteypu og uppaf henni hafa
þeir sett milljónir punda í stórhýsi, þar
sem túristar geta gert sér eitt og annað
til dundurs, ef veöur truflar útivist.
Annars virðist eftirlætisiðjan vera ein
og sú sama, hvar sem er: að fara í búöir.
Og það er sannarlega auðvelt aö finna
mýgrút af glæsilegum verzlunum í
Bournemouth, en verðlagið er ekki beint
þannig aö freistandi geti talizt. Yfirleitt
tek ég lítiö eftir búöargluggum; þeir eru
gleymdir um leiö og gengiö er framhjá.
En einn smáhlutur er mér minnisstæður
úr búöarglugga í Bournemouth: kven-
mannsúr, sem kostaöi 6 milljónir gam-
alla króna. En ekki er allt jafn slæmt; ég
lagöi í þá fjárfestingu aö kaupa ágætan
frakka, sem kostaði um það bil helming
þess, sem hann hefði kostað hér.
16
ÁSTKÍKUR OG GULLSIGÐIN
J/EJA.ASTRIKL/R,
MÁ BO ?
!//£> FENGUM EKKl.
AÐ ÚTSMRA MAUN.
„ EN BÍPDU A ÐE/NS 'Á
ÞOGN.
EftjrGoacfamyðg Uderao. Birt I samráði við FWvrtMgAftnut
TJÆJA, PA FÆ EG MER T
SMA GÚLSOPA AF
KJARNA DRVKK 06 BRÝT,
AF MÉR KEÐJUNA! Á
JÁ.éO KEM06SÆKI
ÞIG, STE/NRÍKUR '.
A6ÆTT! E6FÆMER
BLUNP A.MEDAN
É6 &/{>...
&ERPU SVO VEL
06 OAKKTU /NN/
~ÞAÐ ER ALVEG'
'OÞARF/ AÐ LOKA
DYRUNl/M É6 ER
ALVEO At> FARA
^ UT! A
EN 'H/KKf
HVARHEFEG
HirrÞ/oÁPuR
’ EN Æ! HVERN/6 A
ÉG AP NA PELA/VUM,
MEÐAN E6 ER BUNP - .
JNN AF KEÐJUNN.
r HVAP ERÞETTA'T
ÞÚ ERT ENN A
GAMLA STAÐNUM>
r JA... éo SKRApp\
AP VISU IIT.'HlKK:
EN ÞE/R MAfrWÉKKh
MISSA MIG! Á
Sólarhringur í Bournemouth var sann-
arlega í knappasta lagi, en dugði mér aö
minnsta kosti til staðfestingar á því, að
líklega vildi ég hvergi fremur vera í fríi.
En þaö komst ekki í verk að sjá sig um í
Poole og ekki heldur að líta á skrúö-
garðana þar, sem heita Compton Acres
og Bretar segja aö séu „hugsanlega"
fegurstu garðar Evrópu. Aftur á móti
snæddum við hádegisverð úti í garöi á
kránni Whitbread, sem stendur á lækjar-
bakka spölkorn noröur af bænum. Kráin
er meö stráþaki eins og talsvert er
algengt um gömul hús til sveita og
gullregniö slútti niöur í lækinn, en
risastórar eikur aö baki. Hluti af boröun-
um stendur úti í garöinum; öll skökk og
skæld, en þarna var gott aö teyga
bjórinn í rúmlega 20 stiga hita og boröa
brauð og cheddarost meö.
Á leiðinni þangaö fórum viö gegnum
gamla bæinn í Christchurch, þar sem
göturnar eru svo skemmtilega krókóttar
og húsin úr fyrndinni. Viö vog sem
skagar inní bæinn, var mikiö um dýröir;
spakir svanir, fjöldi báta og þar höfðu
margir tekiö upp nesti og sátu aö
snæðingi. Þannig nýtur fólk lífsins hér á
einfaldan og ódýran hátt og auöséö aö
þetta er í verulegum mæli hjón meö
börnin meö sér. Allt er til í Bournemouth
sem gesturinn óskar, hvort heldur þaö
er kúluspil fyrir gamlar konur ellegar
alvöru rúlleta, þar sem menn setja upp
pókerfeis og leggja myndarlega undir.
Niöuriag í næsta blaði.
i / /
HEYRÐU! VILLTU TAKA
PELANN FRA BELT/ MÍNU
06 RÉTTA, MÉR T/L ftf>
SÚPA A... Á
r LIFI :'mr- ^
VERKINGÉrkÍKm
■rN,
ER ÞAÐ-HIKK/GOTT,
SEM ERÍ PELAN- .
UMP A
' hjalpi oss rum / ^
FLÝTTU ÞÉR'NE! það
ER EKKI GOTT! EINSKONAR
LYSI... J