Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1982, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1982, Page 9
Fjögur málverk eftir Ragnheiöi, sem sýna mjög vei stíl hennar og geta vel talizt einkennandi fyrir myndir hennar síðustu árin. ÓTTIR REAM iag og af því tilefni er hennar minnst hér Leið Ragnheiðar lá til Washington þar sem hún var ráðin í vinnu hjá íslenzka sendiráðinu, en hún hélt heim aftur áriö 1944, ástæöuna veit ég ekki, en markverð- ir hlutir voru að gerast í lífi hennar, því hún haföi þá þegar kynnst mannsefninu sínu og þau giftu sig í októþer árið 1945. Samþúð- in varaði ævilangt, og Donald Forest Re- am, eölisfræðingur, mun vafalítiö hafa skil- ið köllun eiginkonu sinnar og stutt hana af ráðum og dáð. Annars hefði orðið snöggt- um minna um árangur og máski hefur mál- tækiö franska snúist hér upp á karlpening- inn: „Heyrir þú mikils manns getiö, spurðu þá hver kona hans sé.“ í beinu framhaldi af þessu má geta þess, að Donald Ream er einmitt af frönskum (og þýskum) ættum og forfaðir hans fluttist til Bandaríkjanna seint á 18. öld þar sem nú heitir Reamstown í Pennsylvaníu og aö sjálfsögðu í höfuðið á innflytjandanum. Er Ragnheiður fór að fikta við málara- áhöldin, lá leiðin fyrst í kvöldskóla og síðan i dagskóla áhugamanna í tvö ár. Þá var svo komið, að málaralistin haföi gripið huga hennar í þeim mæli, að hún innritaöist í Listadeild American University í Washing- ton þar sem hún var viö nám næstu fimm árin (1954—59). Myndlistarfræðsla skipar nefnilega þann sess innan Bandaríkjanna, aö velflestir háskólar hafa einnig sérstakan geira frjálsrar myndlistar innan veggja sinna. Af þessu öllu má ætla, aö myndlistarnám Ragnheiðar hafi verið vel traust er hún hverfur úr skóla, þá 42 ára að aldri. Á skólaárunum hafði hún tekið þátt í tveim samsýningum, árin 1957 og '58 í Society of Washington Artist, sýndi þar einnig 1961, 1962 og 1968. Hún gerist virkur þátttak- andi á ýmsum sarnsýningum, t.d. í Corcor- an Gallery of Art, Washington D.C. — Maryland Artists Invitional Exhibition og Baltimore Museum. Ragnheiður hafði fjórar einkasýningar í Washington D.C. 1962, 1964, 1968 og 1970 og sýndi einnig í Alexandria, Virginia 1966, svo og Baltimore Museum of Art 1964/65. Af þessari upptalningu má vel marka, að Ragnheiður gerist fljótt aðsópsmikil á sýn- ingavettvangi eftir að skólanámi sleppir, en þó má segja, að athafnasemi og listræn blómstran nái hámarki eftir aö hún flyzt alkomin hingað heim með manni sínum í desember árið 1970. Ragnheiður hafði reyndar alla tíð ræktaö gamla landiö vel meðan hún var ytra og komið heim til for- eldra sinna og Hólavallagötunnar á hverju sumri. Fyrstu sýningu sína hér heima heldur hún í Bogasalnum árið 1967 og vakti sýn- ingin slíka athygli að getum má leiða að því, hvort það hafi ekki vegið þungt við ákvörðunartökuna um heimförina, en fleiri þættir komu einnig viö sögu. Listrýnendur tóku sýningu Ragnheiðar vel, Valtýr Pétursson bendir sérstaklega á, „að styrkur listakonunnar liggi í litameð- ferðinni, að hún láti smáatriði og sjónar- spilið veg allrar veraldar og nái einhverju fersku og lifandi inn i málverkið sem verkar SJÁ NÆSTU SÍÐU 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.