Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Side 3
Siro Angeli Heimkoma Kýr bauJar, barn grætur, hundurinn fer aö gelta. Allt eins og áöur var. Ó, aö ég heyröi nú einnig hamarshögg kveða viö frá smiðjunni. Einhvur heilsar mér: Ertu á lífi? En fótatak foreldra minna það berst mér ekki til eyrna, aðeins í hjarta mínu greini ég þaö. Hávaxiö illgresi þekur matjurtagarðinn á baklóöinni — /' sólskini og allt í kring einhvurjir húsveggir... Jerzy Wielunski frá Pólandi þýddi á íslensku úr retorómönsku, máli sem talað er í suö- austur Sviss mannalatína. hreinskrifaði. - stundum kallaö sveita- Guðmundur Daníelsson Jachen Juzzi Þeir framliðnu og við Hinum framliönu líöur vel þeir eru heima hjá sér meöan við þreytum gönguna flakkandi hvíldarlaust stað úr stað um þessa jörð. Og ekki vitum viö hvurs er að vænta fyrr en aö leiöarlokum, þegar einnig við erum komnir heim. JERZY WIELUNSKI frá Pólandi þýddi á ís- lensku úr friulönsku máli, en Friuli er hérað á Ítalíu. Guðmundur Daníelsson hreinskrifaði. ( Hjálmar frá Hofi Einn af sonum Braga Hjálmar Þorsteinsson frá Hofí andaðist 20. maí sl. á 96. aldursári, fæddur 5. sept. 1896. Hann var kunnur fyrir kvæði sín og stökur. Bækur hans voru þessar: Geisla- brot, Kvöldskin, Munarósir og Rökkurstundir. Hér koma nokkrar vísur eftir hann: Hann átti góða konu, sem hann mat mikils og með henni mörg börn. En hann var alltaf mann- blendinn og þótti ekki verra að tala við konur en karla. En hvort hann hefur sagt satt í þessari vísu, er ekki gott að vita. Þegar ég segi eins og er, er það rétt að vonum: Albest hefur yljað mér ást frá giftum konum. Þessi er ort við heimaarinn: Enn er sagan sönn og góð sögð af Bragaþingum: Oft er fagurt ástaljóð ort af hagyrðingum. Um rógbera orti Hjálmar: Ef þú angrar meira mig með þitt ranga slaður, tukthúsfanga tel ég þig, tungulangi maður. Skáldkonurnar Ólína og Herdís Andrésdætur sendu Hjálmari bók sína og fengu að launum þessa stöku: Sannleikann vill segja þér sonur íss og fanna. Ennþá getur yljað mér ylur skáldakvennanna. Þetta er haustvísa: Breytast tímar nú á ný, naum er skíma orðin. Valdið grímu veldur því, vona hrímar storðin. Það kom fyrir að Hjálmar fengi nokkurn glaðning hjá úthlutunar- nefndum. En ekki var á þá lukku að treysta. Þessi vísa er frá 1938. Ekkert sæti enn ég hef inn við Braga línu, þótt ég rauli rímnastef rétt aö gamni rnínu. Sjálfsgagnrýni: Enn skal herða orkustarf, auðna högum ráði. Ég fékk góðan ættararf, illa þó hans gáði. Lengi var það í minnum haft þegar þeir Hjálmar og Sveinn frá Elivogum háðu einvígi í Varðar- húsinu í Reykjavík. Það var á ár- unum á milli stríða. Þeir ortust þar á og hljóp báöum kapp í kinn. Urðu sumar vísurnar ljótar, að- sókn var mikil og skemmti fólk sér vel. Þetta munu báðir hafa gert til að afla sér nokkurs skotsilfurs, bændur hvor á sínu landshorni og börðust í bökkum á kreppuárun- um. Fæst mun af þeim kveðskap hafa verið tíundað í bókum þeirra hagyrðinganna. Þeir voru kunn- ingjar fyrr og síðar. Þegar Sveinn féll frá orti Hjálmar: Ekki skal ég erfa það, óðar fyrr á þingi þó að reiddir bæsingsblað bróður hagyrðingi. Um viðskipti þeirra Sveins orti Hjálmar: Ekki hlaut ég af þeim mein, er þó skylt að greina, aö skylmingar við skáldið Svein skyldu fáir reyna. Aður hafði Sveinn ort þessa vísu um þá Hjálmar og Gísla Ólafsson frá Eiríksstöðum. Lengi hvíslast lýðum hjá lakir píslarsálmar. Hver eins áysla oftast á einhvern Gísla og Hjálmar. Hér er enn ein af vísunum um Elivoga Svein og sýnir að hlýtt hefur Hjálmari verið til þessa skáldbróður síns, þótt oft væru kaldar kveðjurnar sem á milli þeirra fóru: Hér er lundin hlý í kveld, hraðar undir streyma. Enn hef ég fundið að ég held óskastundir heima. Eins og oft hefur verið haft á orði haft um skáldmælta menn mun Hjálmar á sínum bestu árum nokkuð hafa hallað sér að Bakk- usi, þó kannski ekkert meira en gengur og gerist. Svona svaraði hann ávítum: Láttu þér ekki svör þau sæma, sigraöu heldur glöpin þín. Það er ekki þitt að dæma þótt ég drckki brennivín. Hann segir á öðrum stað: Það er enn í böli bót, — bjargar fornum siðum: Alltaf leyfast ástarhót okkur Bragasmiðum. Þetta er kveðja til vinar: Þá mig höföu glöpin grætt, gafstu Ijós í skugga, hlýjan frá þér hefur brætt hélu af sálarglugga. Um vetur var Hjálmar að koma í bíl að norðan. Nú hallaði suður af. Þig mig tekur sárt að sjá svona blómum rúna. Þú ert fremur fól á brá fjallameyjan núna. í sömu ferð, þegar sást til Reykjavíkur: Helgi skoðum bræðrabands, birtist goðahöllin. Sjáum boða suðurlands, sólin roöar fjöllin. Geymast lengi gullin hans, gróður í andans haga, Elivoga útlagans, eins af sonum Braga. Hér eru svo lokavísurnar þrjár að þessu sinni. Þær bera það með sér að aldinn maður kveður: Höfuð mitt er hæra grá, hnígur sól að kveldi. Björt er folnuð blysin frá bernsku minnar eldi. Skylt er að hlýða skapadóm, skini hallar dagsins. Eins og kalið brekkublóm bíð ég sólarlagsins. Yfir nóttin færir frið, fegurð óttu þrotin. Þá er hljótt að hlusta við húsa tóttarbrotin. J.H.J.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.